Nori
Skráningar- og greiðslukerfi

Nýskráning forráðamanns:

  • Einfalt er að skrá sig inn í kerfið og er það gert með því að fara á síðuna https://fh.felog.is eða smella á myndina hér að neðan og smella á Nýskráning neðst í innskráningarglugganum (einungis 18 ára og eldri geta skráð sig inn). Athugið að haka þarf við Samþykkja skilmála


  • Þar setur forráðamaður inn grunnupplýsingar: kennitölu forráðamanns, netfang og farsímanúmer og velur lykilorð. Forráðamenn geta alltaf farið aftur inn í kerfið og breytt þessum grunnupplýsingum. Hægt er að fá nánari upplýsingar á skraning@fh.is
  • Þegar þessu er lokið opnast gluggi með yfirliti yfir iðkendur í fjölskyldunni. Ef barnið er ekki á listanum skal ýta á Nýr iðkandi, velja barnið í flettivalmyndinni og skrá. Þegar iðkandinn hefur verið skráður er ýtt á Námskeið/flokkar í boði fyrir aftan nafn barnsins og þar er réttur æfingahópur valinn.

*Athugið að í vefskráningunni er einungis hægt að ganga frá greiðslu með kreditkorti en ef óskað er eftir því að staðgreiða/millifæra inn á reikning skal leggja inn á reikningsnúmerið er 0140-26-060100 kt. 570706-0120. Svo skal senda kvittun á skraning@fh.is í gegnum heimabankann. Þegar kvittunin hefur borist til barna- og unglingaráðs verður greiðslan bókuð inn í kerfið.
Leiðbeiningar á vef Nóra (.pdf) 

Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?