Skylmingadeild FH
Skylmingadeild FH var stofnuð 1993. Fyrstu árin voru æfingar
haldnar í samstarfi við Skylmingafélag Reykjavíkur og fóru æfingar fram
í “gamla” ÍR-húsinu við Túngötu. Það var síðan haustið 2002 að Ragnar
Ingi Sigurðsson tók að sér að þjálfa hér í Hafnarfirði. Ragnar hafði
fram að því verið að læra þjálfun hjá landsliðsþjálfaranum Nikolay
Mateev. Haldið var úti tveimur hópum fyrstu tvö árin, annar fyrir yngri
kynslóðina og hinn fyrir 15 ára og eldri. Ekki var mikill fjöldi fyrstu
árin en mikil þáttaskil urðu í starfseminni veturinn 2004-2005 en þá
margfaldaðist iðkendafjöldinn. Í dag er fjöldinn sem stundar æfingar
reglulega rétt um 50 talsins á aldrinum 6-53 ára í þremur mismunandi
flokkum.
Til gamans má geta að á Íslandsmótinu undir 13 ára 2003 sendi FH
átta keppendur en árið 2005 áttu þeir þrjátíu keppendur eða um helming
allra þátttakenda.
Þeir sem hafa keppt fyrir Skylmingadeild FH hafa verið mjög
sigursælir á síðustu árum en þeir hafa til að mynda unnið ellefu sinnum
opna flokkinn á Íslandsmóti á síðustu þrettán árum. Á þessu ári átti
deildin tvo Norðurlandameistara og níu Íslandsmeistara.