Stjarnan-FH 27-22

FH beið lægri hlut í Bikarúrslitunum fyrir Stjörnunni í dag en lokatölur urðu 27-22. Fyrri hálfleikur var jafn og spennandi og komu FH stelpur mjög ákveðnar til leiks. Í hálfleik var staðan 14-13 fyrir Stjörnuna. Í seinni hálfleik náði Stjarnan fljótt yfirhöndinni og náðu FH stelpur ekki að fylgja eftir góðum fyrri hálfleik. Tap því staðreynd en engin skömm því liðið var að spila við frábært Stjörnulið.
Nánari umfjöllun og myndir úr leiknum síðar.
Lesa
Myndir: Jói Long

Framkvæmdir í Kaplakrika

Eins og flestir iðkendur, foreldrar og almennir FH-ingar hafa tekið eftir er nóg um að vera á Kaplakrikasvæðinu þessa dagana. Áður en langt um líður komum við til með að eiga eitt allra glæsilegasta íþróttasvæði landsins. En á meðan framkvæmdum stendur þarf að sýna þolinmæði og fara varlega um svæðið. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina og aðgengi á svæðinu.

Myndasafn

Könnun

Ætlar þú að mæta á æfingar hjá Hlaupahóp FH