Íþróttaskóli FH Kaplakrika

Þann 10. september hefst að nýju Íþróttaskóli barnanna hér í Kaplakrika. Skólinn verður með sama sniði og í fyrra og lagt upp úr því að krakkarnir eigi skemmtilega og þroskandi leikstund.

Farið verður í marga leiki og fá börnin að prufa nánast allar íþróttir sem í boði eru. 2-3 ára börn eiga að mæta kl 09:30 - 10:30. 4-6 ára börn eiga að mæta kl 10:30 - 11:30

Umsjónarmenn skólans eru Bryndís Sighvatsdóttir, Eva Þórunn Vignisdóttir og Sigurður Víðisson.

Bryndís s: 611-6233
tölvupóstur: ithrottaskoli@fh.is

Bestu kveðjur, starfsfólk íþróttaskóla FH.

Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?