Viðtal við Kristinu Kvaderine

16.1.2009 Heiðar Arnarson


Kristina Kvaderine er tiltölulega nýr markmaður meistaraflokks kvenna en stúlkan sú kemur frá Litháen og hefur búið á Íslandi í um 6 ár. Kristina er liðinu frábær liðsstyrkur þar sem hún hefur leikið með Haukum og Fram við góðan orðstír. Hún hefur mikla reynslu af stórleikjum og segir að henni finnist skemmtilegast að spila mikilvæga leiki og standa bikarúrslitaleikir þar uppúr.


FH.is byrjaði á að spyrja hana hvort hún væri ekki ánægð með að vera komin á fjalir Kaplakrika?
„Jú, FH-stelpurnar eru fínar og ég er ánægð með þetta og Mummi er frábær þjálfari og það er hans vegna að ég kom til FH. Ef ekki hefði verið fyrir hann þá hefði ég sennilega ekki komið,“ sagði Kristina kát með Guðmund Karlsson þjálfara. Þegar spurt var út í úrslitakeppnina og möguleika FH-liðsins á að komast þangað sagði Kristina: „Ég vona að við komumst þangað enda eru það leikir sem alla leikmenn langar að spila. Það vantar enn smá upp á að við náum 4. sætinu.“

Mótherji FH-liðsins á morgun eru Íslands- og bikarmeistarar Stjörnunnar svo það er við ramman reip að draga en hafa ber í huga að FH vann Stjörnuna í fyrra og hefur sýnt góða spilamennsku á köflum í vetur samanber sigur á Val fyrir jól. Kristina var spurð út í hvað þyrfti til að leggja Stjörnuna.
„Í fyrsta lagi þurfum við að spila góða vörn og með vörninni kemur markvarslan. Eins þurfa stelpurnar að hugsa ekki of mikið um Florentinu í marki Stjörnunnar. Við þurfum bara að hugsa um okkur og hafa gaman af þessu,“ sagði Kristina sem að lokum spáði 24-24 jafntefli.

Við óskum Kristinu góðs gengis á morgun og hvetjum stelpurnar til góðra verka gegn sterku liði Stjörnunnar.


Áfram FH!




Framkvæmdir í Kaplakrika

Eins og flestir iðkendur, foreldrar og almennir FH-ingar hafa tekið eftir er nóg um að vera á Kaplakrikasvæðinu þessa dagana. Áður en langt um líður komum við til með að eiga eitt allra glæsilegasta íþróttasvæði landsins. En á meðan framkvæmdum stendur þarf að sýna þolinmæði og fara varlega um svæðið. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina og aðgengi á svæðinu.

Myndasafn

Könnun

Ætlar þú að mæta á æfingar hjá Hlaupahóp FH