Úrslitaleikur um 5. sætið á morgun!

19.3.2010 Árni Freyr Helgason
Á morgun leika stelpurnar í mfl. kvenna gegn Fylki í Krikanum. Leikurinn hefur gríðarlegt mikilvægi fyrir bæði lið, enda berjast þau um 5. sætið þetta árið. Liðið sem að vinnur leikinn kemur vafalaust til með að enda í 5. sæti deildarinnar, og því verður hart barist.


Fylkir mætir í Krikann á morgun og leikur við mfl. kvenna

Fylkir
Fylkiskonur sitja fyrir leikinn í 5. sæti deildarinnar með 20 stig, 10 stigum á eftir Haukum en 2 stigum á undan FH, sem að er í 6. sæti. Þær hafa unnið 10 leiki en tapað 13 leikjum.

Síðasti leikur Fylkis var gegn HK síðastliðinn þriðjudag en þar unnu þær 4ra marka sigur, 28-24.

Síðasti leikur liðanna
Liðin tvö mættust síðan þann 2. febrúar síðastliðinn í Fylkishöllinni. Þá báru Fylkiskonur sigur úr býtum, 21-17. Það er því ljóst að FH-stelpur eiga harma að hefna, sem að bætir enn frekar á mikilvægi leiksins á morgun. Þar áður léku liðin í Krikanum þann 8. desember, en þá unnu FH-stelpur öruggan 7 marka sigur, 32-25.

FH
FH-stelpur sitja í 6. sæti deildarinnar með 18 stig, 2 stigum á eftir liði Fylkis en eiga þó 2 leiki til góða. Þær hafa unnið 9 leiki en tapað 12 leikjum.

Stelpurnar koma vafalaust til með að berjast eins og grenjandi ljón enda svekktar eftir erfitt tap gegn KA/Þór í síðasta leik, sem var vægast sagt vafasamt. Svo vildi nefnilega til að annar dómari leiksins er fyrrum þjálfari Akureyrarliðsins og ætti því samkvæmt öllu ekki  að hafa átt að dæma leikinn, sem og hann þó gerði. Margir vafasamir dómar féllu gegn FH-stelpunum og þær töpuðu leiknum á endanum, 28-25. Stelpurnar eru staðráðnar í að bæta upp fyrir það vafasama tap, enda mikið í húfi.

Það er semsagt mikið í húfi á morgun. Við hvetjum alla til að mæta í Krikann á morgun kl. 16:00 að styðja stelpurnar. Áfram FH!






Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?