Upphitun: FH - Haukar, N1-deild karla
17.12.2011
Árni Freyr Helgason
Margir hafa hildirnir verið háðir. Sigrar hafa unnist og þeim verið fagnað. Leikir hafa tapast og tár verið felld í kjölfarið. Aldrei er gott að segja til um hver mun sigra. En eitt er víst: ávallt er barist til síðasta blóðdropa. Sama hver staða liðanna í deildinni er. Sama hver fyrri úrslit hafa verið.

Það skemmir því ekki fyrir að í dag eru grannliðin FH og Haukar að berjast á toppi deildarinnar. Í leiknum sem þessi pistill fjallar um er nefnilega ekki bara stoltið að veði – heldur einnig tvö stig sem skipta gríðarlegu máli þegar horft er til framvindu deildarkeppninnar. Hafi FH-ingar sigur þá er munurinn á liðinum einungis eitt stig þegar haldið er í jólafrí en sigri Haukar þá auka þeir forskot sitt á toppi deildarinnar í fimm stig.
Þetta verður veisla.
Haukar
Nágrannar okkar í Haukum hafa leikið með miklum ágætum það sem af er vetri og sitja fyrir leik liðanna á mánudaginn í 1. sæti N1-deildar karla með 18 stig eftir 11 leiki. Í þessum 11 leikjum hafa Haukarnir unnið 9 leiki en tapað einungis tveimur leikjum. Haukar hafa skorað 285 mörk en fengið á sig 243, fæst allra liða í deildinni.
Leikur Haukanna framan af tímabili endurspeglast nokkurn veginn í tölunum sem hér eru gefnar að ofan. Haukar hafa fengið á sig 22 mörk að meðaltali í leik, sem að gefur varnarleik þeirra gott vitni. Þá stendur Birkir Ívar Guðmundsson ávallt fyrir sínu í markinu, en hann á það til að vinna leiki fyrir Haukana.
Reyndar er markvarðarstaðan í Haukum að öllum líkindum sú best mannaða í deildinni, því “varamarkvörður” Birkis Ívars er Aron Rafn Eðvarðsson, sem var einmitt valinn í landsliðshóp Guðmundar Guðmundssonar ásamt Birki nú nýlega. Aron Rafn átti frábæran leik gegn Aftureldingu í síðasta leik og er því ljóst að það skiptir í raun ekki máli hvor stendur í markinu, báðir eru markverðir Haukanna feikilega öflugir.
Uppstilling Haukanna hefur breyst talsvert frá því sem var í fyrra. Björgvin Hólmgeirsson yfirgaf félagið líkt og Guðmundur Árni Ólafsson, en báðir héldu þeir utan og gengu til liðs við atvinnumannalið. Í stað þeirra fengu Haukarnir meðal annars þá Gylfa Gylfason, hægri hornamann, og Nemanja Malovic, hægri skyttu. Þá sneri Matthías Árni Ingimarsson aftur í Hafnarfjörðinn eftir talsverða törn hjá Gróttu á Seltjarnarnesi.
Allir hafa þeir styrkt Hauka rækilega, hver á sinn hátt. Gylfi Gylfason er öflugur hægri hornamaður, ekki síðri en Guðmundur Árni, og getur á góðum degi valdið trafala. Hann er sérlega öflugur í hraðaupphlaupunum. Malovic er öflug hægri skytta og getur án alls vafa reynst okkur erfiður verði hann í stuði. Þá er Matthías Árni öflugur varnarmaður og leiðtogi sem hefur komið vel út við hliðina á Heimi Óla Heimissyni í hjarta Haukavarnarinnar.
Þá má ekki gleyma að minnast á þá sem voru fyrir í liði Hauka. Stefán Rafn Sigurmannsson og Tjörvi Þorgeirsson hafa báðir bætt sig mikið frá síðasta tímabili og munu reynast mikil ógn verði þeim ekki veitt mótstaða. Þá eru menn á borð við Frey Brynjarsson og Svein Þorgeirsson ávallt hættulegir.
Þjálfara Hauka þarf vart að kynna. Aron Kristjánsson tók við liðinu á nýjan leik í sumar eftir einn vetur í ævintýralandi og virðist hann hafa haft gífurleg áhrif á lið Hauka, sem endaði í 5. sæti deildarinnar síðasta vetur. Á það svosem ekki að koma neinum á óvart, enda hefur hann áður náð mjög góðum árangri með lið Hauka.
Það er því ljóst að Haukar eru verðugir andstæðingar fyrir FH-inga nú á mánudaginn og má búast við þeim feikilega grimmum.
Fyrri leikir liðanna
Á síðasta tímabili léku FH og Haukar þrisvar innbyrðis, tvisvar í Kaplakrika en einu sinni á Ásvöllum. Leikirnir voru eftirfarandi:
Haukar 19 – 28 FH, 9. október 2010, Ásvöllum
Liðin mættust strax í annari umferð N1-deildarinnar síðastliðinn vetur og mátti þar búast við hörkuleik. Sú var líka raunin fram í hálfleik, en þá leiddu FH-ingar 12-13. Í seinni hálfleik buðu FH-ingar hins vegar upp á flugeldasýningu á Ásvöllum og innbyrtu eftirminnilegan níu marka sigur á erkifjendunum, 19-28.
Ólafur Guðmundsson fór á kostum í þessum leik, en hann skoraði 9 mörk. Ásbjörn Friðriksson kom næstur með 6.
FH 16 – 25 Haukar, 30. nóvember 2010, Kaplakrika
FH-ingar máttu þola auðmýkjandi tap þegar Haukar mættu í heimsókn í Krikann í annarri viðureign liðanna í fyrra. FH-ingar voru líkt og skugginn af sjálfum sér, voru 8-13 undir í hálfleik og töpuðu að lokum sanngjarnt, 16 – 25.
Markahæstir í liði FH voru þeir Ólafur Guðmundsson og Ásbjörn Friðriksson með 4 mörk hvor.
FH 24 – 23 Haukar, 31. mars 2011, Kaplakrika
Þessi leikur var í raun hinn hefðbundni grannaslagur, jafn og spennandi frá upphafi til enda. FH-ingar leiddu 12-11 í hálfleik og unnu að lokum gífurlega mikilvægan sigur, 24-23. Þessi sigur kom á mikilvægum tímapunkti fyrir FH-inga, en mánuði síðar stóðu þeir uppi sem Íslandsmeistarar.
Markahæstur í liði FH var Ólafur Guðmundsson með 7 mörk og þá skoraði Ásbjörn Friðriksson 5 mörk.
FH
Strákarnir okkar sitja í 2. sæti deildarinnar, ásamt HK, með 15 stig eftir 11 leiki. FH-ingar hafa unnið 6 leiki, gert þrjú jafntefli en tapað tveimur leikjum. FH-ingar hafa skorað 306 mörk en fengið á sig 286, að meðaltali 26 mörk í leik.
Strákarnir hafa leikið ágætlega upp á síðkastið. Jafnir leikir gegn Akureyri og Val enduðu með jafntefli en þar hefðu sigrar vissulega átt að nást. Þá báru FH-ingar sigurorð af HK-ingum á góðan máta í síðasta heimaleik, 25-23. Síðustu tveir leikir liðsins hafa verið úti á Seltjarnarnesi gegn Gróttu – fyrst í Eimskipsbikarnum en svo í deild. Sigrar unnust í báðum tilfellum, öruggur 10 marka sigur í bikarleiknum en tæpur þriggja marka sigur í deild. Já, frammistaðan hefur verið með ágætum en strákarnir eiga mikið inni. Það vita þeir sjálfir.
FH-ingar þurfa að leika virkilega góðan leik til þess að skáka Haukaliði sem að mun án alls vafa mæta fullt sjálfstrausts til leiks í Krikann, ákveðið í því að spilla fyrir FH-ingum í titilvörn sinni. Allt þarf að vera upp á sitt besta – varnarleikur, sóknarleikur og markvarsla. Nái allir leikmenn liðsins að halda dampi í 60 mínútur eru góðar líkur á því að sigur vinnist. Okkar lið er vel skipað hæfileikaríkum leikmönnum sem geta sigrast á hverri þraut spili þeir sem lið. Undirritaður er bjartsýnn á það að FH-ingar sýni allar sínar bestu hliðar á mánudaginn og vonar innilega að þeir geri það.
Kæri FH-ingur, svona leikur er ekki á hverjum degi. Svona viðburður á sér ekki oft stað. Sem FH-ingur veist þú væntanlega hvað þessir leikir þýða fyrir félagið og fyrir bæjarfélagið. Þetta snýst um það að geta gengið um götur Hafnarfjarðar með höfuðið hátt, að geta mætt til vinnu með kassann þaninn til fulls. Og síðast en ekki síst snýst þetta um stigin tvö sem bíða sigurliðsins, stigin tvö sem ýta sigurliðinu nær því markmiði sínu að verða meistari.
Nú er þitt tækifæri, kæri FH-ingur, til að leggja lóð á vogarskálar þíns félags. Nú er þitt tækifæri til að skipta sköpum. Mættu í Kaplakrika á fmánudaginn og styddu við þitt lið, þitt félag. Öskraðu, klappaðu, hoppaðu, stappaðu. Gefðu þér 60 mínútur þar sem ekkert annað skiptir máli en sigur þíns liðs – þinn sigur.
Stórveldaslagurinn hefst kl. 19:30 og er leikinn í Mekka handknattleiksins á Íslandi, Kaplakrika, eins og áður hefur komið fram. Mikið verður um að vera að vanda og því er um að gera að mæta fyrr og upplifa stemninguna.
Ekki láta þig vanta.
Við erum FH!
