Vís

Upphitun: FH - Afturelding, N1-deild karla

15.2.2012 Árni Freyr Helgason
 15. umferð N1-deildar karla fer fram á fimmtudaginn næsta, 16. febrúar, en þá taka FH-ingar á móti liðsmönnum Aftureldingar í annað sinn á tveimur vikum í Kaplakrika. Verður eflaust um hörkuleik að ræða, enda tvö lið að mætast sem þekkja ágætlega inn á hvert annað.


Afturelding
Lið Aftureldingar er sem fyrr í næstneðsta sæti deildarinnar, nú með sjö stig, eftir 14 leiki. Mosfellingar hafa unnið 3 leiki, gert eitt jafntefli en tapað 10 leikjum.

Líkt og síðast þegar liðin mættust var ljóst að um hættulegan andstæðing væri að ræða. Liðsmenn Aftureldingar hafa spilað vel í vetur og oft verið óheppnir að ná ekki í stig og sigra þar sem að þeir verðskulduðu slíka. Ef til vill var til dæmis óheppilegt fyrir Mosfellinga að fara með tap á bakinu úr Krikanum í síðustu viðureign liðanna, en þar voru þeir með yfirhöndina nánast allan leikinn. Barátta FH-inga skilaði sér þó að lokum og unnu FH-ingar því góðan sigur.

Undirritaður telur að lið Aftureldingar sé ef til vill erfiðara við að eiga í þessum leik en þeim síðasta. Mosfellingar sýndu mátt sinn og megin í síðasta leik, er þeir gerðu jafntefli við sterkt lið Framara í hörkuleik þar sem að þeir voru betri lengi vel – voru til að mynda yfir í hálfleik, 12-10. Þeir geta vel ollið öllum liðum deildarinnar usla séu þeir upp á sitt besta, og verður að gæta þess að vanmat sé ekki til staðar eigi ekki illa að fara.

Fyrri viðureignir liðanna
FH-ingar unnu 24-20 sigur á Aftureldingu síðast þegar liðin mættust í Krikanum, þann 2. febrúar síðastliðinn. Viðureignin var hörkuspennandi og hart var barist. Markahæstur í liði FH var Örn Ingi Bjarkason með 6 mörk en á eftir honum komu Hjalti Pálmason og Sigurður Ágústsson með 5 mörk hvor. Í liði Aftureldingar var Jón Andri Helgason atkvæðamestur, en hann skoraði 6 mörk. Daníel Andrésson fór á kostum í marki FH-inga í þessum leik og varði 25 skot, skv. Vísi.is.

FH
FH-ingar eru í 2. sæti N1-deildar karla eftir 14 umferðir með 19 stig, jafnir HK-ingum að stigum en stigi á eftir toppliði Hauka. FH-ingar hafa unnið 8 leiki, gert 3 jafntefli og tapað þremur leikjum.

Mikið gekk á í síðustu viku, eins og allir vita, en þá mættu FH-ingar liði Hauka tvisvar með þriggja daga millibili. Báðir fóru leikirnir fram á Ásvöllum. Í fyrri leik liðanna, sem var í deildinni, unnu FH-ingar flottan 6 marka sigur, 26-20, og stimpluðu sig inn af alvöru í slaginn um toppsæti deildarinnar. Flest allt við leik FH-liðsins var eins og best varð á kosið, varnarleikurinn var mjög góður, Daníel Andrésson varði frábærlega í markinu og sóknarleikurinn gekk ágætlega. Fyrir vikið var sigur FH-inga á Haukum sanngjarn. Í leik liðanna í bikarnum, sem fram fór síðastliðinn sunnudag, snérist dæmið hins vegar við og fóru FH-ingar illa út úr þeirri viðureign. Haukar unnu 8 marka sigur, 22-14, í leik sem að einkenndist af flottum varnarleik beggja liða og markaþurrð FH-liðsins.

Einn af fáum ljósum punktum við leikinn á sunnudaginn var sá að í þeim leik fékk Ragnar Jóhannsson, sem hefur verið meiddur um dágott skeið, að spreyta sig í nokkrar mínútur. Verða það að teljast gleðitíðindi fyrir FH-inga, enda Ragnar feikilega öflugur leikmaður sem að mikill söknuður hefur verið af síðan hann meiddist.

En nú er þeim leik lokið og mikilvægt fyrir okkar menn að horfa fram á við. Fyrstu tveir leikir liðsins á árinu, gegn Aftureldingu og Haukum í deild, lofuðu góðu upp á framhaldið að gera og gera það að vísu enn – toppsætið er enn góður möguleiki og þangað stefnum við. Undirritaður býst við því að FH-ingar mæti grimmir til leiks gegn sterku og baráttuglöðu liði Aftureldingar – já, nú er góður tími til að svara fyrir sárt tap síðastliðinn sunnudag.

Leikur FH og Aftureldingar er eins og áður sagði í Krikanum á morgun, fimmtudaginn 16. febrúar, og hefst kl. 19:30.

Allir á völlinn!
Við erum FH!




Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?