Vís

Topp-4 og sigur á Haukum

10.1.2009 Heiðar Arnarson


Ásdís Sigurðardóttir gekk til liðs við FH frá Stjörnunni á liðnu ári en hún er ekki ókunnug aðstæðum í Krikanum því hún hefur áður leikið með liðinu við góðan orðstír. Gengi liðsins í vetur hefur verið ágætt og eru stelpurnar búnar að koma sér í góða stöðu upp á að tryggja sér eitt af fjórum efstu sætum deildarinnar sem gefur sæti í úrslitakeppninni í vor. Fyrsta verkefnið á nýju ári í átt að úrslitakeppninni er leikur í dag við Fram. FH.is tók púlsinn á Ásdísi fyrir leikinn en hún er búin að kortleggja hvað þarf til að vinna sigur á Fram. Þá lofar hún einnig sigri á Haukastelpum þann 24. janúar.


Hvernig er stemmningin með að vera komin aftur í FH?

Það er mjög gaman að vera komin aftur, stelpurnar eru alveg frábærar og það er mjög gaman á æfingum.

 

Hver er munurinn á liðinu nú og síðast?

Það er miklu meiri breidd, hver sem er getur komið inn á og mér finnst liðið vera meiri heild.

 

Er ekki stefnan sett á úrslitakeppnina í vor?

Við ætlum klárlega að vera í topp fjórum og fá að spila skemmtilega úrslitaleiki. Svo langar okkur auðvitað alla leið í höllina í febrúar.

 

Sigurinn á Val fyrir jól hlýtur að hafa virkað sem vítamínsprauta á liðið?

Já, þar náðum við loksins að sýna hvað við getum og á svona degi hefðum við unnið hvaða lið sem er. Við þurfum að ná meiri stöðugleika í leikina og ef það tekst er mjög bjart framundan hjá okkur.

 

Hvenær ætlið þið svo að fylgja fordæmi strákanna og leggja stelpurnar frá Ásvöllum?

Það gerist 24.janúar!!!

 

Eruð þið sáttar með mætingu á leiki liðsins í vetur?

Já, það held ég bara. Það var til dæmis mjög góð mæting á FH-Haukar.

 

Hvernig fer leikurinn gegn Fram?

Ef við mætum einbeittar í leikinn, spilum góða vörn og fáum nokkur auðveld mörk úr hraðaupphlaupum þá er ég viss um að við náum góðum úrslitum.

 

Þá er það ákveðið, góð vörn, hraðaupphlaupsmörk og sigur er góð uppskrift fyrir laugardagseftirmiðdegi svo það er um að gera að leggja leið sína í Krikann.

 

Áfram FH!



Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?