Vís

Ólafur Guðmundsson íþróttamaður FH 2011

31.12.2011 Steingrímur Gústafsson
Ólafur Andrés Guðmundsson var valinn íþróttamaður FH í Kaplakrika í dag að viðstöddu fjölmenni í Sjónarhóli. Ólafur, sem fæddur er árið 1990, varð í vor Íslandsmeistari FH, eins og flestum er kunnugt um. Hann lék lykilhlutverk í vörn og sókn og stóð sig frábærlega í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitillinn í vor. Ólafur var auk þess í landsliðshópnum og lék nokkra leiki með liðinu á árinu. Óli er uppalinn FH-ingur og hefur alltaf spilað með FH, þar til hann gekk til liðs við danska stórliðið AG frá Kaupmannahöfn á árinu en þaðan var hann lánaður til Nordsjælland, þar sem hann hefur spilað í vetur.

Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?