Handboltaskóli Loga Geirs byrjar eftir verslunarmannahelgina

30.7.2010 Heiðar Arnarson

Handboltaskóli Loga Geirs verður starfræktur frá 4-13 ágúst í kaplakrika.
Það verður mikið fjör og mun Logi kenna krökkunum öll undirstöðuatriðin í handbolta.

Skólanum verður skipt upp í yngri og eldri, yngri fædd 99-03
verða frá kl 10-12 gæsla frá 9 og þau eldri fædd 95-98 verða frá kl 13-15.
Landsliðsmenn koma í heimsókn og allir þátttakendur fá bol frá NOVA og margt fleira verður á dagskrá. Námskeiðið kostar 5000-kr.
Skráning í handboltaskólann er í kaplakrika 3.ágúst frá 17-18 og 4.ágúst
frá kl 9-10 og frá kl 12-13.
Uppl.í síma gefur Sigurður 868-1676.




Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?