Vís

Fréttir af liðinni helgi: 5. flokkur karla

7.2.2012 Steingrímur Gústafsson
FH tefldi fram tveimur liðum í 5. flokki karla síðustu helgi en mótið var í umsjón FH og var bæði leikið í Kaplakrika og í Strandgötu. FH 1 sem lék í fyrstu deild og FH 2 sem lék í annarri deild.

FH 1 fékk ekki óska byrjun á mótinu en tapaði tveimur fyrstu leikjum mótsins gegn Selfossi og HK. Þeir unnu svo Stjörnuna (16-14), ÍBV (13-6) og Val (18-13).

FH 1 lenti í öðru sætinu með sex stig en HK sigraði með níu stig. Þrjú mót eru hins vegar eftir og á liðið enn möguleika á Íslandsmeistaratitlinum.

FH 2 var að spila í annari deildinni eftir að hafa spilað í þeirri þriðju á mótinu á undan. Liðið hefur tekið miklum framförum og gerði vel um liðna helgi og hélt sæti sínu í deildinni með því að lenda í fjórða sætinu með jafn mörg stig.

FH 2 með jaxlinn, Róbert Karl Segatta sem fyrirliða sigraði tvo leiki af fimm, gegn Fram 2 (14-13) og gegn Fram 1 (14-12). Liðið var svo grátlega nálægt því að sigra Hauka 1 en leikurinn gegn þeim tapaðist 12-11 en FH-liðið leiddi 11-9 er skammt lifði eftir leiks. Þá töpuðust leikir gegn Gróttu 1 og ÍR 1, sem eru bæði A-lið.

Þjálfarar 5. flokks karla eru: Sveinbjörn Sigurðsson og Þorvaldur Sveinbjörnsson.

Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?