Frammarar mæta í Krikann í tvígang!

19.1.2009 Heiðar Arnarson


Það er sannarlega handboltaveisla framundan í Kaplakrika en karla- og kvennalið Fram munu mæta á fjalir krikans og etja kappi við FH karla og konur á miðvikudag og fimmtudag.

Á miðvikudag munu FH stúlkur mæta Fram stúlkum í 8 liða úrslitum Eimskipsbikarsins en á fimmtudag munu FH drengir mæta Fram drengjum á sama stað í fyrsta deildarleik liðsins eftir jóla- og áramótapásu. Báðir leikir hefjast kl 19:30 að hafnfirskum tíma.

 

Gengi liðanna;

              
Ásdís og Kristina, nýir leikmenn mfl kvenna

Bikar, stúlkur

FH stúlkur mæta Fram í bikarnum og mikill hugur er í stúlkunum Í 16 liða úrslitum atti FH kappi við Víkingsstúlkur í Víkinni þann 11. nóvember sl. Lið Víkings dró sig úr deildarkeppninni hér um árið og því talið fyrirfram að FH væri mun sigurstranglegra fyrir leikinn. Það kom líka á daginn að FH sigraði með miklum yfirburðum 16-35. FH liðið hefur verið að berjast við hinn margfræga stöðugleika í vetur. Liðið hefur átt alveg glimrandi leiki í vetur en inn á milli dottið á lægra plan. Liðið hefur þó verið á siglingu upp á við allt fram til áramóta en ekki náð að fylgja því nægilega vel eftir í fyrstu tveimur deildarleikjunum eftir áramót. Samt sem áður er enn afar raunhæfur möguleiki á að ná 4 sætinu í deildinni sem gefur sæti í úrslitakeppninni.


      
Tveir nýir, báðir örvhentir, Bjarni og Hermann

Deildin, karlar

FH er hér að spila sinn fyrsta leik síðan 13. desember sl og eru því rúmlega 5 vikur síðan strákarnir spiluðu alvöru leik. Ýmislegt hefur gerst í millitíðinni. Aron Pálmars kominn á samning hjá besta liði í heimi og Ólafur Guðmunds valinn í framtíðarlandslið Íslands. FH hefur einnig á þessum tíma fengið mikinn liðsstyrk en tveir nýjir leikmenn mættu á gólfjalir krikans í pásunni, þeir Bjarni Fritzson og Hermann Björnsson. FH hefur leikið vel í vetur, átt mjög góða leiki en átt sína slæmu leiki inni á milli. Liðið hefur þó haldið góðum stöðugleika þessa 11 leiki og á tímabili sat liðið á toppi deildarinnar. Liðið situr nú í 4-6 sæti með 12 stig, aðeins 4 stigum á eftir toppliði Fram.


Fram;

Konur

Kvennaliðið hefur verið að berjast á svipuðum slóðum og lið FH í vetur. Fram liðið lék geysivel á síðustu leiktíð og var óheppið að næla sér ekki í Íslandsmeistaratitil. Liðið hefur ekki náð að fylgja eftir góðum árangri frá síðasta tímabili en hefur eins og FH verið að rétta úr kútnum nýlega.


Karlar

Karlaliðið með FHinginn Andra Berg Haraldsson innanborðs hefur leikið vel í vetur og verið sannfærandi í síðustu leikjum sínum fyrir áramót og náði liðið að tryggja sér efsta sætið í síðasta leik.



N1 deild kvenna

Nr. Félag Leik U J T Mörk Nett Stig
1. Haukar 13 11 1 1 401:343 58 23
2. Stjarnan 12 11 0 1 335:262 73 22
3. Valur 12 8 0 4 350:280 70 16
4. Fram 13 5 1 7 346:342 4 11
5. FH 13 5 0 8 339:362 -23 10
6. HK 13 4 1 8 355:378 -23 9
7. Grótta 13 4 0 9 289:383 -94 8
8. Fylkir 13 1 1 11 293:358 -65 3

 

N1 deild karla 

Nr. Félag Leik U J T Mörk Nett Stig
1. Fram 11 7 2 2 307:292 15 16
2. Valur 11 6 3 2 307:263 44 15
3. Haukar 11 7 0 4 319:287 32 14
4. HK 11 5 2 4 292:299 -7 12
5. Akureyri 11 6 0 5 288:299 -11 12
6. FH 11 5 2 4 322:322 0 12
7. Stjarnan 11 2 2 7 274:295 -21 6
8. Víkingur 11 0 1 10 282:334 -52 1


Stuðningur

Stelpurnar hafa beðið lægri hlut í leikjum liðsins eftir áramót. Það er því enn meiri ástæða til þess að skella sér á völlinn og hvetja þær til dáða, því þær þurfa stuðning FHinga þarna úti til þess að koma sér á beinu brautina. Um er að ræða bikarleik milli svipaðra liða að getu og ekki nokkur spurning að FH stelpur ætla sér áfram í undanúrslit!

Drengirnir eru tilbúnir í seinni hluta mótsins og ætla sér að halda áfram að leika með FH hjartanu eins og þeir hafa gert hingað til. Stuðningur FHinga hefur verið frábær í vetur og nú er afar mikilvægt að drengirnir finni áfram fyrir stuðningi áhorfenda í þessum gríðarlega mikilvæga leik sem gefur mikil fyrirheit upp á framhaldið.

Missið ekki af handboltaveislunni í Kaplakrika á miðvikudag og fimmtudag. Mætið og sjáið fyrsta flokks handbolta!

 

Áfram FH!



Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?