Fimtudagurinn 2. febrúar: FH 24-20 Afturelding (10-11)
4.2.2012
Steingrímur Gústafsson
Umfjöllun Sport.is fimmtudaginn 2. febrúar
Íslandsmeistarar FH unnu í kvöld góðan sigur á Aftureldingu á heimavelli sínum, Kaplakrika, þegar að N1-deild karla hófst aftur eftir EM fríið. Sigurinn var þó síður en svo auðveldur þar sem gestirnir úr Mosfellsbæ gáfu Íslandsmeisturunum ekkert eftir og voru skrefinu á undan lengi vel í leiknum. Á endanum sigu FH-ingar þó fram úr gestunum og unnu fjögurra marka sigur, 24-20.
FH 24-20 Afturelding (10-11)
Allt var í járnum í fyrri hálfleiknum og til marks um það má nefna að jafnt var á öllum tölum út allan fyrri hálfleikinn. Gestirnir úr Mosfellsbæ voru þó alltaf skrefinu á undan og höfðu raunar getað náð að auka forystuna í tvö mörk í nokkur skipti en Daníel Freyr Andrésson, markvörður FH bjargaði sínu liði vel og varði ní skot í fyrri hálfleik. Munurinn var svo eitt mark, Aftureldingu í vil, þegar að flautað var til leikhlés, staðan 10-11 fyrir gestina.
Afturelding náði svo loksins tveggja marka forystu þegar að þrjár mínútur voru liðnar af síðari hálfleik, þeir hefðu svo getað aukið muninn enn frekar en aftur reyndist Daníel Freyr, markvörður liðsins, þeim dýrmætur en óhætt er að segja að hann hafi á köflum haldið FH inn í leiknum. FH-ingar létu það þó ekki slá sig út af laginu að lenda undir og náðu fljótlega að jafna á nýjan leik. Þegar að tíu mínútur voru eftir af leiknum höfðu heimamenn í FH náð þriggja marka forystu og allt stefndi í sigur FH-inga. Vörn FH-inga var hrokkin í gang og að lokum vann liðið góðan 4 marka sigur, 24-20.
Örn Ingi Bjarkason var atkvæðamestur í liði FH með 6 mörk en hjá Aftureldingu gerði jón Andri Helgason 7 mörk. Daníel Freyr Andrésson í marki FH var besti maður vallarins í kvöld og varði ein 20 skot. Þá var kollegi hans í marki Aftureldingar, Davíð Svansson, einnig öflugur og varði 11 bolta.
Tölfræðin:
Mörk FH: Örn Ingi Bjarkason 6, Sigurður Ágústsson 5, Hjalti Þór Pálmason 5, Ólafur Gústafsson 3, Baldvin Þorsteinsson 2, Þorkell Magnússon 2, Halldór Guðjónssn 1.
Varin skot: Daníel Freyr Andrésson 25.