FH lið ársins 2011
2.1.2012
SR
“Íþróttalið ársins 2011” var valið í sjötta sinn og fyrir valinu varð hinn sigursæli Meistaraflokkur FH, í handknattleik karla, sem vann frækinn sigur á Íslandsmótinu í handknattleik árið 2011. Einnig vann liðið Deildarmeistaratitilinn og urðu Meistarar meistaranna. Liðið tók þátt í Evrópukeppni félagslið.
Tuttugu og einn afreksmaður fékk sérstaka viðurkenningu fyrir árangur og frammistöðu í sínum íþróttagreinum á þessu ári.
Á Íþróttahátíðinni voru veittar viðurkenningar til á sjöunda hundrað íþróttamanna eða allra þeirra sem urðu Íslandsmeistarar eða 570 einstaklingar úr 14 íþróttafélögum í 24 íþróttagrein og 11 hópar Bikarmeistarar með félögum sínum í viðkomandi íþróttagreinum. Auk sérstakra viðurkenninga fyrir einn Heimsmeistaratitil og fimm Norðurlandameistaratitla.
Þá voru einnig veittir styrkir í viðurkenningarskyni frá Hafnarfjarðarbæ til þeirra íþróttafélaga sem unnið hafa Íslands- eða Bikarmeistaratitill í efstu flokkum á árinu, en það voru alls ellefu hópar og nemur styrkupphæðin kr. 300.000- á hvern titil.
Einnig var úthlutað til íþróttafélaganna samkvæmt samningi Hafnarfjarðarbæjar, Rio tinto Alcan og ÍBH vegna íþróttastarfs 16 ára og yngri með tilliti til menntunarþáttar þjálfara og námskrárgerðar. Styrkupphæðin samkvæmt samkomulaginu er kr. 6.000,000- vegna þessa.
tekið af mbl.is