Bjarni kveður FH

2.7.2010 Heiðar Arnarson
Bjarni Fritzson hefur sagt skilið við okkur FHinga og ákveðið að leika fyrir norðanmenn á Akureyri á næsta tímabili. Bjarni hefur verið að hugsa sinn gang frá því að tímabilið endaði í vetur og hafði úr mörgum möguleikum að velja, m.a. að halda áfram að spila fyrir FH.



Það er auðvitað svipur hjá sjón að missa Bjarna úr FH enda drengurinn markahæsti leikmaður deildarinnar síðasta vetur og var valinn í lið ársins í lok móts.

Bjarni hafði þetta að segja um flutning sinn norður við visir.is:

„Ég flyt norður með alla fjölskylduna, það verður að taka þetta alla leið. Það heillar mig mjög mikið og ég hef alltaf haft áhuga á að búa utan höfuðborgarsvæðisins. Þetta gerðist ekki á einum degi en var á endanum ekki erfið ákvörðun. Það er fínt að prófa þetta áður en strákurinn minn byrjar í grunnskóla og svona," sagði Bjarni sem hafði úr fleiri tilboðum að velja.

Nokkur lið úr N1-deildinni vildu fá Bjarna til sín sem og lið í Danmörku. „Á endanum var þetta bara val á milli FH og Akureyrar. Það eru fjölmargar ástæður fyrir því að ég valdi Akureyri og þetta verður skemmtileg tilbreyting. Það er gaman að prófa eitthvað nýtt, maður þroskast við að breyta um aðstæður," segir Bjarni.

„Síðasti vetur í Reykjavík var mjög erfiður hjá mér, það var mikið að gera á öllum vígstöðum. Ég var í krefjandi námi en ég tel að með þessum flutningi geti ég einfaldað lífsmunstrið og því sinnt þeim hlutum sem skipta mestu máli enn betur. Ég gæti alveg spilað hérna fyrir sunnan í hálfkæringi en mér finnst betra að geta einbeitt mér alveg að fullu og tekið þetta alla leið. Lífið verður einfaldara og þægilegra og ég kem kannski frekar suður í frí," sagði Bjarni.

Honum líst vel á liðið hjá Akureyri og ekki síst umgjörðina. „Hún er best þarna, og reyndar hjá FH. Það er svo gaman að spila fyrir fullu húsi í hverri umferð. Það eru ungir og sprækir strákar í liðinu í bland við einhverja jaxla," sagði Bjarni. Atli Hilmarsson mun þjálfa liðið.

Bjarna var einnig boðið að fara til Danmerkur en segir það ekki spennandi kost. „Landslagið úti er ansi erfitt og samningarnir lélegir og óspennandi, í það minnsta fyrir mig. Ég er ekki að rífa mig frá því sem ég hef hérna heima fyrir eitthvað drasl," sagði Bjarni Fritzson."


FH.is þakkar Bjarna fyrir hans frábæra framlag í þágu FH og óskar honum góðs gengis fyrir norðan.



Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?