Aron þýskur meistari

6.6.2010 Heiðar Arnarson

Aron Pálmarsson varð í gær þýskur meistari í handbolta með Kiel, sem Alfreð Gíslason þjálfar. Hreint út sagt ótrúlegt afrek á fyrsta ári Arons í atvinnumennsku.

Alfreð Gíslason og Aron Pálmarsson urðu í dag Þýskalandsmeistarar í handknattleik með Kiel. Sjötta árið í röð sem Kiel verður meistari og í sextánda skiptið í sögu þessa handboltastórveldis.

Kiel landaði titlinum með því að sigra Grosswallstadt, lið Sverre Jakobssonar og Einars Hólmgeirssonar á útivelli í dag, 27:24. 

Alfreð er að stýra Kiel til sigurs í annað sinn á jafn mörgum árum en hann gerði einnig Magdeburg að meisturum á sínum tíma. 

Aron er á sínu fyrsta ári í atvinnumennsku og vann einnig Meistaradeild Evrópu með félaginu á dögunum. 

Sverre lék í vörninni hjá Grosswallstadt. Einar og Aron komu lítillega við sögu í leiknum og náðu ekki að skora.

Tekið af mbl.is

Enn og aftur óskar fh.is Aroni til hamingju með stórglæsilegan árangur á sínu fyrsta ári í atvinnumennsku!


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?