Vís

Árið gert upp - Handbolti og fótbolti

31.12.2011 Anton Ingi Leifsson

Magnús Már Einarsson - ritstjóri Fótbolti.net & mikill íþróttaáhugamaður:
Fótbolti:
Fyrsta titlalausa ár FH í fótboltanum frá því árið 2003 er staðreynd en þrátt fyrir það var nánast aldrei hægt að afskrifa Fimleikafélagið úr titilbaráttunni í sumar.  Gengið var fyrir neðan væntingar lengi vel en maður hafði alltaf á tilfinningunni að FH gæti verið í baráttunni út mótið.  Annað sætið varð niðurstaðan og það merkilega er að árangurinn var nákvæmlega sá sami og í fyrra, 44 stig og markatalan 48-31.  Ég er handviss um að FH liðið mun mæta ennþá sterkara til leiks á næsta tímabili og það þarf mikið að gerast ef liðið gerir ekki harða atlögu að titlinum á nýjan leik.
Handbolti:

Jafn stórt félag og FH hefur nánast á hverju ári ástæðu til að fagna og þegar árið var titlaust í fótboltanum var annað uppi á teningnum í handboltanum.  Það var magnað að sjá FH-inga leggja Akureyringa í spennandi úrslitaviðureignum síðastliðið vor.  Fimleikafélagið var þar að uppskera ríkulega eftir margra ára uppbyggingu þar sem félagið hefur alið af sér marga öfluga handboltamenn. 

 

Hjörvar Hafliðason - knattspyrnuspekingur & fjölmiðlamaður:
Fótbolti:
Árið 2011 er vornbrigðaár hjá FH í fótboltanum, enda kom ekki titill þar í meistaraflokki í fyrsta skipti síðan 2003. Árinu verður kannski minnst fyrir það að einn farsælasti leikmaður liðsins hætti, Tommy Nielsen, en hann er líklega einn af betri ef ekki sá besti útilendingurinn í sögunni hér heima. Það jákvæða við þetta tímabil hjá FH var að 2. flokkur félagsins varð Íslandsmeistari og er greinilega bjart framundan þar.
Handbolti:
Í handboltanum hélt ég með Kristjáni Arasyni og hans mönnum því Kristján Arason er mikill meistari og hann var einmitt átrúnaðargoð mitt á yngri árum. Ég fagnaði mikið að FH hafi verið meistari undir stjórn King Stjána, en hann þarf að fara leyfa Sigga rakara að spila aðeins meira þarna í markinu og skandall að hann sé þriðji markvörður. Ef hann fer ekki að spila meira í janúar þá fer ég með hann í annað lið.

 

Friðrik Dór Jónsson - tónlistarmaður & FH-ingur:
Fótbolti:
Fótbolta liðið okkar átti ekki nógu gott tímabil í ár. Voru lengi í gang og manni fannst liðið bara ekki ná saman fyrr en í seinni umferðinni. Við áttum svo sem aldrei almennilegan séns á titlinum, en maður var ánægður að sjá að leikmenn reyndu hvað þeir gátu allt til enda. Við þurfum að fá einhvern með "Davíðs Viðars" elementið í þetta lið. Einhvern sem getur, uppá eigin spýtur, lyft liðinu á hærra plan þegar á þarf að halda. Matti Vill var farinn að sýna vott af þessu á síðasta tímabili og vonandi heldur það bara áfram á því næsta. 2012 verður betra fyrir FH og titlarnir skila sér aftur í Krikann, það er klárt!
Handbolti:
Það var náttúrulega mjög gaman að fylgjast með liðinu okkar á síðasta tímabili. Frábær liðsheild og mikil stemning í kringum handboltann almennt. Ég held líka að síðasti leikur tímabilsins, þar sem FH tryggði sér titilinn, verði seint toppaður hvað stemningu varðar allavega. Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki verið eins duglegur að mæta á leiki í ár, en finnst liðið ekki vera að ná upp alveg sömu stemningu og ríkti í fyrra. Það eru þó fullt af ljósum punktum í þessu og ég hef fulla trú á að okkar menn nái sér á strik og klári titilinn aftur.


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?