Kaplakriki, sunnudagurinn 7. desember kl 15:30 (14:30 hefst fjölskylduhátíð)
Stórleikur í íslenskum handbolta mun fara fram í Kaplakrika þegar Hafnarfjarðarliðin FH og Haukar eigast við öðru sinni á þessu tímabili, nú í 8 liða úrslitum Eimskipsbikarsins. Leikið verður á sunnudaginn kl 15:30 og verður hann sýndur í beinni á RÚV. Fjölskylduhátíð verður í kringum leikinn og opnar húsið kl 14:30. Í síðustu rimmu þessara liða 5. nóvember fylltist Krikinn þegar um 2500 manns mættu á frábæran handboltaleik.
Fjölskylduhátíð í kringum leikinn!
Þó svo leikurinn hefjist 15:30 byrjar fjörið strax klukkutíma fyrr eða kl 14:30. Eins og auglýsingin hér að ofan sýnir mun enginn annar en Einar Ágúst úr Skítamóral troða upp fyrir leik. myndasýning úr leikjum FH verður varpað á skjá, það verður pizzusala, andlitsmálning, varningur merktur FH verður seldur og dreifing leikmannamynda verður einnig í boði ásamt fleiru. Ekki má gleyma ljósashowinu og hálfleiksleiknum fræga. Það er því af nógu af taka fyrir fjölskyldufólk á sunnudaginn en þess má geta að frítt er á leikinn fyrir ungmenni 16 ára og yngri! Við hvetjum fólk til að mæta snemma. Á síðasta FH-Hauka leik komust færri að en vildu...
Gengi liðanna í Eimskipsbikarnum og í deild.
FH lék þann 7. október gegn Víkingi 2 í Víkinni í 32 liða úrslitum og sigruðu léttilega 22-45. Liðið lék síðan gegn Akureyri 9. nóvember í 16 liða úrslitum á heimavelli og sigruðu 37-31 í hörkuleik þar sem FH snéri leiknum sér í vil í seinni hálfleik.
Haukarnir sátu hjá í 32 liða úrslitum. Þeir léku í 16 liða úrslitum 11. nóvember við ÍR á útivelli sem leikur í 1. deild og sigruðu létt 24-32.
Haukarnir hafa byrjað illa í mótinu, leikið upp á ofan en gengið vel í Meistaradeildinni og eru komnir áfram í Evrópukeppni bikarhafa. Haukarnir virðast þó vera komnir á beinu brautina eftir stórsigur á Akureyri um daginn og góðan sigur gegn HK í gær.
FH liðið hefur byrjað afar vel og tapað aðeins þremur leikjum í deild af tíu leikjum eftir að hafa komið úr 1. deildinni í vor. Hafa sigrað fimm og gert 2 jafntefli. FH sigraði Víking í gær sannfærandi og hafa verið afar stabílir í vetur miðað við ungt og reynslulítið lið.
FH liðið situr í 2. sæti en Haukar í 5. sæti.
Síðasta rimma
Síðasta rimma milli FH og Hauka var leikin í Kaplakrika fyrir framan troðfullu húsi og færri komust að en vildu. Áhorfendur upplifðu frábæran handboltaleik þar sem Haukamenn réðu lögum og lofum í fyrri hálfleik og leiddu í hálfleik 13-17. FHingar létu mótlætið ekki á sig fá. Jöfnuðu og komust yfir fljótlega í seinni hálfleik. Leikurinn var síðan jafn allt til leiksloka en Aron Pálmarsson skoraði síðan sigurmarkið 29-28 og allt ætlaði um koll að keyra í Krikanum.
Haukaliðið
Haukar hafa á að skipa geysilega sterkum hópi. Þeirra bestu menn í vetur hafa helst verið þeir Sigurbergur Sveinsson, Andri Stefan og Kári Kristjánsson og eru auðvitað með sterkan markvörð í Birki Ívari. Addi P er svo fastur fyrir á í vörn en það er í raun sama hvaða staða í Haukaliðinu er skoðuð, þar er sterkur leikmaður á ferð. Aron Kristjánsson er auðvitað afar snjall og öflugur þjálfari. Það yrðu stórtíðindi ef liðið ynni ekki titla í ár miðað við þann mannskap sem Ásvallarliðið hefur á að skipa.
Undirbúningar
Undirbúningur fyrir Haukaleikinn fer á fullt í dag eftir góðan sigur gegn Víking í gærkveldi þar sem okkar menn þurfti ekki mikið að hafa fyrir hlutunum. Það verður þó allt annað uppi á teningnum á sunnudag þar sem barist verður til síðasta blóðdropa um Fjörðinn!
Ástand
Ástand er að mörgu leyti mjög gott. Við höfum endurheimt Jón Helga Jónsson úr axlarmeiðslum sem er okkur mikilvægur í hægri skyttunni og inn á gólfið mun stíga Hjörtur nokkur Hinriksson fyrirliði sem mun fórna sér í þetta stóra verkefni eftir erfið ökklameiðsli. Meiddir og missa því miður af þessum stórleik eru þeir Ólafur Gústafsson, Árni Stefán Guðjónsson, Heiðar Örn Arnarson og Benedikt Kristinsson.
Liðin
Staðan í deild
|
| Nr. |
Félag |
Leik |
U |
J |
T |
Mörk |
Nett |
Stig |
| 1. |
Valur |
10 |
5 |
3 |
2 |
278:243 |
35 |
13 |
| 2. |
Akureyri |
10 |
6 |
0 |
4 |
267:274 |
-7 |
12 |
| 3. |
FH |
10 |
5 |
2 |
3 |
302:293 |
9 |
12 |
| 4. |
Fram |
9 |
5 |
2 |
2 |
254:245 |
9 |
12 |
| 5. |
Haukar |
9 |
5 |
0 |
4 |
263:238 |
25 |
10 |
| 6. |
HK |
10 |
4 |
2 |
4 |
267:278 |
-11 |
10 |
| 7. |
Stjarnan |
9 |
2 |
2 |
5 |
225:237 |
-12 |
6 |
| 8. |
Víkingur |
9 |
0 |
1 |
8 |
235:283 |
-48 |
1 |
|
|
Aðrir leikir í Eimskipsbikarnum
| 8 liða úrslit |
| Sun. 7.des.2008 |
17.00 |
Mýrin |
Stjarnan 2 - Grótta |
|
|
| Mán. 8.des.2008 |
19.30 |
Framhús |
Fram - Valur |
|
|
| Mán. 8.des.2008 |
19.30 |
Selfoss |
Selfoss - Stjarnan |
Stuðningur
Stundin fer að renna upp. Ekki láta þér detta í eina einustu mínútu FHingur góður að láta þennan stórleik framhjá þér fara. Þeir sem mættu í Krikann 5. nóvember sl. þegar liðin áttust við síðast upplifðu ótrúlegan handbolta og fyrsta flokks stemmningu. Líkur eru á svipaðri upplifun aftur á sunnudaginn. Það er við hæfi að enda þetta á eftirfarandi Jóhanns Skagfjörð Magnússonar kynnis á leikjum FH, stórmúsíkants og ljóðsskálds með meiru:
“Stærsti leikur ársins í íslenskum handbolta er að renna upp. Bræðrabyltan. Slagurinn um Hafnarfjörð. FH gegn Haukum. Fræðimenn segja að orðtakið "blóð, sviti og tár" hafi fyrst verið notað um leik þessara liða snemma á síðustu öld.
Það er morgunljóst að stemmningin í Kaplakrika verður rafmögnuð. Bæði lið eru með frábært lið og munu leika til sigurs. Þegar öllu verður á botninn hvolft gæti vel farið svo að það verði stuðningur áhorfenda sem ræður úrslitum.
Við ætlum að leggja okkar af mörkum til að FH haldi efsta sætinu í N1 deild karla í handknattleik. Við ætlum að leggja okkar af mörkum í að hefja nýja gullöld í Kaplakrika.
Framtíðin er FH. Framtíðin er núna.”
Áfram FH!!!

Ert þú ekki örugglega búinn að skrá þig í Mugg??
Hvað fæ ég við að skrá mig í Mugg?
* Frítt fyrir fjölskylduna inn á alla heimaleiki meistaraflokka karla og kvenna (ekki þó á tekjuskipta leiki svo sem bikarleiki og oddaleiki í úrslitakeppni)
* Frítt fyrir korthafa og maka á hið veglega Muggarahóf sem haldið er á hverjum vetri og ýmsar aðrar uppákomur yfir veturinn.
* Nafn skuldlausra korthafa lendir í potti einu sinni á ári sem úr er dregin utanlandsferð
* Þetta allt fyrir aðeins 1.400 krónur hvern mánuð.
Tökum þátt í handboltaveislunni í Krikanum og styðjum strákana og stelpurnar!
Ég vil skrá mig í Mugg
Frekari upplýsingar um Mugg
Áfram FH!!
