FH mætir í Digranesið á laugardag

21.11.2008 Heiðar Arnarson

Digranes, laugardaginn 22. nóvember 2008, kl 14:10


Karlalið FH leggur leið sína í Digranesið í Kópavoginum á laugardaginn kemur þar sem HK er gestgjafi. Leikurinn hefst kl 14:10 og verður sýndur í beinni á RÚV. FH liðið virðist vera afar sjónvarpsvænt því af fjórum útsendum leikjum á  RÚV í N1 deild karla í vetur hafa FHingar leikið þrjá.

Danni verður væntanlega á tánum á laugardaginn líka

Gengi liðanna

HK menn hafa ekki staðið undir væntingum miðað við spá um gengi liða. Þeir hafa leikið 8 leiki í vetur í deildinni, sigrað þrjá, gert tvö jafntefli og tapað þremur. HK hefur sigrað Hauka, Víkinga og okkur FHinga, gert jafntefli við Fram og Val en tapað síðan fyrir Fram, Stjörnunni og Akureyri. HK situr nú í 5 sæti með 8 stig. FH hefur hafið mótið betur. Einnig spilað 8 leiki. Þeir hafa tapað fyrir HK og Akureyri, sigruðu reyndar Akureyri í fyrstu umferð, lögðu Hauka , Stjörnuna og Víking en gerðu jafntefli við Fram og Val. FH situr í 3. sæti  deildarinnar með 10 stig. Með sigri getur FH jafnað Akureyri að stigum í 2. sætinu.


Maggi hefur átt mjög góða leiki undanfarið



HK liðið

HK liðið hefur eins og áður sagði ekki staðið undir væntingum. Eins og gengið gefur til kynna hefur HK vantað stöðugleika.  Þeir eru þó með mjög breytt lið frá síðasta vetri og Gunnar Magnússon verið að slípa hópinn smátt og smátt. Þá sem helst ber að varast í liðinu er fyrst og fremst Valdimar Þórsson en kappinn er að setja 9 mörk í hverjum leik. Aðrir eru honum töluvert að baki en þeir hafa sterka leikmenn eins og Sverre Jakobsson og Ólaf Bjarka Ragnarsson. HK liðið er sterkt það er erfitt verkefni sem bíður FHinga á laugardag.

Undirbúningur

Það var súrt að tapa fyrir Akureyri í síðustu viku þar sem FH hafði undirtökin í leiknum í 50 mínútur. Menn eru þó búnir hrista það af sér, hafa æft vel og undirbúið sig af kostgæfni enda hefur liðið harma að hefna eftir  naumt tap fyrir HK á heimavelli sl. september

Ástand

Meiðsli eru orðin talsverð. Jón Helgi Jónsson er meiddur í öxl en verður vonandi orðinn góður innan 2-3 vikna, Benedikt Kristinsson er slæmur í ökkla og vonandi ekki langt í hann. Hjörtur Hinriksson er enn slæmur í ökkla og óvíst með þátttöku hans í leiknum. Ólafur Gústafsson er að jafna sig eftir tvær hnéaðgerðir og er líklegur til baka í janúar. Heiðar Örn Arnarson fer í eina slíka á öxl í dag en er ekki væntanlegur í boltann fyrr en á næsta tímabili. Árni Stefán Guðjónsson heldur áfram að berjast við slæma útbungun í baki en miðar áfram.

Staðan

 

Nr. Félag Leik U J T Mörk Nett Stig
1. Akureyri 9 6 0 3 247:247 0 12
2. Valur 8 4 3 1 224:192 32 11
3. FH 8 4 2 2 240:233 7 10
4. Fram 8 4 2 2 225:219 6 10
5. HK 8 3 2 3 207:217 -10 8
6. Haukar 8 4 0 4 230:210 20 8
7. Stjarnan 7 1 2 4 176:189 -13 4
8. Víkingur 8 0 1 7 207:249 -42 1


Aðrir leikir

Mán. 17.nóv.2008 19.30 Mýrin Stjarnan - Fram 27-29 (11-16)
Mið. 19.nóv.2008 19.30 Höllin Akureyri Akureyri - Haukar 22-34 (10-15)
Fim. 20.nóv.2008 19.30 Vodafone höllin Valur - Stjarnan

Lau. 22.nóv.2008 14.10 Digranes HK - FH


Stuðningur

FHingar eru hvattir til að kíkja í Digranesið og halda áfram að horfa á frábæran handbolta. Nú reynir á okkar unga lið og klárt mál að það þarf allan þann stuðning sem það getur fengið. Það á virkilega skilið að fá góða hvatningu á laugardaginn. Brunið upp í Digranes, sjáið FHingana selja sig dýrt og látið frekar taka hann upp en að sitja heima.


Ert þú ekki örugglega búinn að skrá þig í Mugg??

Hvað fæ ég við að skrá mig í Mugg?   

 

 

 

 

 

 

  • Frítt fyrir fjölskylduna inn á alla heimaleiki meistaraflokka karla og kvenna (ekki þó á tekjuskipta leiki svo sem bikarleiki og oddaleiki í úrslitakeppni)
  • Frítt fyrir korthafa og maka á hið veglega Muggarahóf sem haldið er á hverjum vetri og ýmsar aðrar uppákomur yfir veturinn.
  • Nafn skuldlausra korthafa lendir í potti einu sinni á ári sem úr er dregin utanlandsferð 
  • Þetta allt fyrir aðeins  1.400 krónur hvern mánuð.

Tökum þátt í handboltaveislunni í Krikanum og styðjum strákana og stelpurnar!

Ég vil skrá mig í Mugg

Frekari upplýsingar um Mugg

Áfram FH!!

 


Framkvæmdir í Kaplakrika

Eins og flestir iðkendur, foreldrar og almennir FH-ingar hafa tekið eftir er nóg um að vera á Kaplakrikasvæðinu þessa dagana. Áður en langt um líður komum við til með að eiga eitt allra glæsilegasta íþróttasvæði landsins. En á meðan framkvæmdum stendur þarf að sýna þolinmæði og fara varlega um svæðið. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina og aðgengi á svæðinu.

Myndasafn

Könnun

Ætlar þú að mæta á æfingar hjá Hlaupahóp FH