Tveggja marka tap gegn Haukum

9.11.2008 Meistaraflokkur kvenna

Umfjöllun handbolti.is, nánari umfjöllun kemur síðar.


Kjóstu mann leiksins á 123.is/muggur


Haukar unnu góðan sigur á FH í Kaplakrika 27-29 í Hafnarfjarðarslagnum í N1 deild kvenna.

Haukar höfðu yfirhöndina í fyrri hálfleik og leiddu með fimm mörkum er gengið var til leikhlés 12-17.

FH náði að saxa á forystu Hauka í seinni hálfleik en lengra komust þær ekki en tvö mörk og urðu því lokatölur leiksins 27-29 eins og áður sagði.

Markaskorarar FH voru:

Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir 8
Hildur Þorgeirsdóttir 6
Gunnur Sveinsdóttir 4
Ebba Særún Brynjarsdóttir 2
Hafdís Inga Hinriksdóttir 2
Ingibjörg Pálmadóttir 1
Ásdís Sigurðardóttir 1

Helga Vala Jónsdóttir varði 22 skot þar af 2 víti.

Markaskorarar Hauka voru:

Hanna Guðrún Stefánsdóttir 12
Ramune Pekarskyte 7
Nína Björk Arnfinnsdóttir 3
Erna Þráinsdóttir 2
Hekla Hannesdóttir 2
Nína Kristín Björnsdóttir 2
Erla Eiríksdóttir 1

Heiða Ingólfsdóttir varði 7 skot þar af 1 víti
Bryndís Jónsdóttir varði 6 skot þar af 1 víti

Áhorfendur voru tæplega 400.

Dómarar voru þeir Sigurjón Þórðarson og Helgi Rafn Hallsson.


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?