Baráttan um fjörðinn - Aðdragandi kvk

7.11.2008 Hafdís Hinriksdóttir


Kaplakriki, laugardagurinn 8. nóvember, kl 16:00

7. umferð N1 deildar kvenna hefst á laugardaginn og munu okkar stúlkur taka á móti Haukum  í Krikanum.  Það er ekki h ægt að búast við öðru en hörkuleik þar sem um erkifjendur er að ræða. 



Gengi liðanna:

FH stelpurnar hafa byrjað ágætlega, spiluðu síðasta leik við Stjörnuna í Mýrinni og endaði sá leikur með eins mark tapi. En stelpurnar  voru yfir megnið af seinni hálfleik og voru í raun klaufar að sigra ekki, eða amk að koma útúr þeim leik með stig. Stelpurnar eru í 7. sæti með 4 Stig, en ætla sér meira en það.

Haukaliðið hefur átt góða leiki núna upp á síðkastið, unnu til dæmis Fram stelpur í síðustu umferð og Val þar á undan. Haukastelpur eru í 2. sæti með 10 stig.

Hauka liðið:

Haukastelpurnar búa yfir sterku liði með þær Hönnu Guðrúnu og Ramone í broddi fylkingar. Fyrir tímabilið misstu þær Helgu Torfadóttur, Hind Hannesdóttur og Hörpu Melsteð svo einhverjar séu nefndar. Þær hafa fengið Esteri Óskarsdóttur, Nínu Arnfinnsdóttur og Tatjana Zukovska. Haukaliðið er geysi sterkt og eru á mikilli siglingu.

Undirbúningur:

Stelpurnar hafa æft vel undanfarna viku og eru virkilega spenntar að spila fyrsta leik vetrarins í baráttunni um Fjörðinn.  Æfingarnar hafa gengið virkilega vel og liðið er á uppleið.  Það er mikil stemming í hópnum og ætla stelpurnar sér mikið í þessum leik, enda er Hafnarfjörðurinn undir.

Ástand:

Ástand hópsins er gott, allar heilar og hafa æft vel með liðinu. Okkur hefur borist mikill liðstyrkur þar sem að Ásdís Sigurðardóttir og Kristina Kvaderine hafa gengið til liðs við FH.  Það er mikil tilhlökkun fyrir þessum leik og hópurinn er virkilega vel stemmdur.

 

Líklegt lið:

Markverðir:

Helga Vala Jónsdóttir

Sigríður Arnfjörð Ólafsdóttir

Aðrir leikmenn:

Ingibjörg Pálmadóttir

Líney Rut Guðmundsdóttir

Ebba Særún Brynjarsdóttir

Birna Íris Helgadóttir

Gunnur Sveinsdóttir

Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir

Hildur Þorgeirsdóttir

Hafdís Inga Hinriksdóttir

Ásdís Sigurðardóttir

Arnheiður Guðmundsdóttir

Guðrún Helga Tryggvadóttir

Sigrún Gilsdóttir

 

Stuðningur:

FH stelpurnar þurfa á öllum ykkar stuðning að halda og vonast til að sjá alla FH-inga fjölmenna í Krikann kl 16 á laugardaginn. Stelpurnar eru til alls líklegar og þú, kæri lesandi, gætir verið sá sem gerir gæfu muninn eftir leik. Liðið er breytt frá því í fyrra, veturinn er í okkar höndum.FH hefur ekki unnið Hauka í langan tíma og nú er kominn tími á breytingar.  Það er bara spurning, ætlar þú að taka þátt í þessu ævintýri með okkur í vetur, og skila báðum liðum FH á toppinn?

 

Með baráttu-kveðjum

Áfram FH

Hafdís Inga Hinriksdóttir


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?