Stelpurnar óheppnar í Garðabæ

2.11.2008 Heiðar Arnarson

         

30-29


FH tapaði naumlega fyrir Stjörnunni í N1 deild kvenna í gær, 30-29. Stelpurnar áttu heilt yfir mjög góðan leik og hefðu með herslumun getað náð í a.m.k. 1 stig útúr leiknum. Stelpurnar áttu frábæran seinni hálfleik en á kafla misnotuðu þær 3 víti í röð sem er alltof dýrt gegn eins sterku liði og Stjörnunni. Það varð þeim sennilega að falli. Stelpurnar náðu að jafna leikinn 29-29 þegar 30 sek voru eftir en Stjörnustúlkur brunuðu þá í sókn og náðu góðu marki úr hægra horni rétt fyrir leikslok og þar við sat.

Ragnhildur Guðmundsdóttir átti stórleik og skoraði 11 mörk og Hildur Þorgeirsdóttir var einnig frábær með 7 stykki.

Svekkjandi úrslit en engu að síður góður leikur hjá liðinu og mikið til að byggja á í framhaldinu. Nú er að taka þessa áræðni og baráttu með sér í  STÓRleikinn geng Haukum næsta laugardag!
Fylgist með umfjöllun á www.fh.is



Stelpurnar áttu góðan leik í gær







    

Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?