Sigur í Garðabæ – FH efstir!

27.10.2008 Heiðar Arnarson


    
27-31

Mýrin Garðabæ, laugardagurinn 25. október 2008 kl. 16

FH lagði Stjörnuna að velli á heimavelli Garðbæinga í Mýrinni 27-31 síðastliðinn laugardag. Frábær kafli sem hófst í lok fyrri hálfleiks og byrjun þess seinni skóp sigurinn eftir að FHliðið hafði byrjað frekar illa í leiknum.



línusending og mark

Fyrri hálfleikur

FHingar byrjuðu leikinn frekar illa eins og áður sagði. Stjörnumenn voru ákveðnari í sínum aðgerðum og FH liðið sat aðeins eftir lungan úr fyrri hálfleik. Stjarnan komst í 5-3 forystu komust síðan í 9-5. FH vörnin var stöð og fótavinna var lítil sem gerði það að verkum að Fannar Friðgeirsson og Vilhjálmur Halldórsson Stjörnumenn létu að sér kveða með lítilli fyrirhöfn. Hinu megin gekk sóknin illa og bæði létum við Stjörnumenn negla okkur þannig að lítið flæði komst á ásamt því að menn völdu illa ígrunduð skot. Eftir leikhlé Elvars þjálfara um miðjan hálfleikinn virtust menn vakna töluvert og við náðum að klóra í bakkann undir lok fyrri hálfleiksins og minnkuðum muninn í 14-15 með góðum leikkafla.



Steini skotinn af færi

Seinni hálfleikur

Góði kaflinn undir lok fyrri hálfleiks hélt í raun áfram því FHingar breyttu stöðunni úr 15-12 í 15-21. Á þessum kafla skoruðu Stjörnumenn ekki í 10 mínútur á meðan FH skoraði 9 mörk og komust síðan mest í 8 marka mun 18-26. Hér var FH að sýna sínar allar bestu hliðar. Guðmundur Pedersen var sterkur í vörn sem sókn, Ólafur Guðmundsson var atkvæðamikill og Aron Pálmarsson gerði oft á tíðum lítið úr vörn Stjörnumanna þrátt fyrir að vera hálfveikur. Daníel í markinu varði síðan eins og berserkur og var frábær. Frábær kafli FHinga og liðið leit í raun aldrei til baka þrátt fyrir að Stjörnumenn söxuðu töluvert á forskotið undir lokin og náðu að minnka muninn mest niður í tvö mörk 27-29 þegar tvær mínútur voru eftir af leiknum. Þetta virtist þó nokkuð öruggt. Menn héldu kúlinu og án efa hafa leikmenn lært af síðustu 2 leikjum, jafnteflisleikir við Fram og Val, hvað varðar að halda stöðugleika undir lok leikja. Leikurinn endaði svo með fjögurra marka sigri FH 27-31.



Þessi slengdist í sammarann


Niðurstaðan

Niðurstaðan verður ekki betri. Með sigrinum komst FH í efsta sæti deildarinnar með 8 stig ásamt Akureyri og Val en með betri tölfræði. Það hefur ekki gerst í háa herrans tíð og líklega ekki síðan 1998 en þá var Elvar einnig þjálfari hjá meistaraflokki FH. Það er eitthvað við kallinn... Frasarnir virðast virka. 

Eftir slæma byrjun þar sem menn voru engan veginn tilbúnir sýndu leikmenn frábæran karakter og keyrðu í raun yfir lánlaust Stjörnuliðið á ca 10 mínútna kafla, kafla sem skóp góðan sigur. Allt liðið var frábært á laugardaginn einna helst má nefna Daníel Andrésson sem varði helming þeirra skota sem á hann fóru, Guðmund Pedersen sem átt hefur töluvert inni til þessa en sýndi sínar bestu hliðar. Aron var stabíll sem fyrr og skoraði frábær mörk. Ólafur Guðmunds gat skorað nánast þegar hann vildi í seinni hálfleik og Ásbjörn Friðriksson var flottur á köflum í leiknum. Allt liðið átti síðan frábæran dag í vörn, sérstaklega í seinni hálfleik. Frábær leikur og ekki verra að alþjóð hafi séð hann í viðtækjunum.


Hvernig á ekki að standa í vörn

Markaskorarar FH (mörk/skot(víti)):

Guðmundur Pedersen 8/11(2)

Aron Pálmarsson 8/12

Ólafur Guðmundsson 7/11

Ásbjörn Friðriksson 4/9

Sigurður Ágústsson 3/3

Jón Helgi Jónsson 1/2

Ari Magnús Þorgeirsson 0/1

Guðni Már Kristinsson 0/1

Varin skot (varin/skot(víti)):

Daníel Andrésson 14/27

Magnús Sigmundsson 4/18

 

Markaskorarar Stjörnunnar:

Fannar Friðgeirsson 9

Fannar Þorbjörnsson 6

Hermann Björnsson 5

Vilhjálmur Halldórsson 3

Kristján Kristjánsson 2

Ragnar Helgason 1

Varin skot:

Svavar Ólafsson 8

Styrmir Sigurðsson 4

Árni Þorvarðarson 7


Elvar Erlingsson öskrar og baðar út höndum

N1 deild karla

    L U J T Mörk Stig
1. FH 6 3 2 1 179:171 8
2. Akureyri 6 4 0 2 158:153 8
3. Valur 6 3 2 1 171:148 8
4. Fram 5 3 1 1 139:130 7
5. HK 6 3 0 3 156:166 6
6. Haukar 6 3 0 3 168:159 6
7. Stjarnan 5 1 1 3 120:131 3
8. Víkingur R. 6 0 0 6 156:189 0


Aðrir leikir og næstu leikir

3.10.2008 Haukar 20 : 27 Fram
23.10.2008 Akureyri 24 : 22 Valur
23.10.2008 HK 25 : 24 Víkingur R.
25.10.2008 Stjarnan 27 : 31 FH
26.10.2008 Haukar 37 : 23 Víkingur R.
5.11.2008 FH
:
Haukar
6.11.2008 Víkingur R.
:
Stjarnan
6.11.2008 Fram
:
Akureyri
6.11.2008 Valur
:
HK



Óli setur hann meðan Stjörnumenn klæða Sigga úr


Stuðningur

FHingar fjölmenntu í Garðabæinn sem endranær í haust og frábær stemmning myndaðist, sérstaklega í seinni hálfleik. Fólk lét til sín taka þegar FHingar sóttu í sig veðrið í enda fyrri hálfleiks og allt ætlaði síðan um koll að keyra þegar 2 mínútur voru eftir og FH að ná sigrinum í höfn. Frábær stuðningur!

Næsti leikur er svo ekkert slor. Það eru Haukarnir! Nú eftir nokkurra ára hlé er loksins kominn derbí leikur milli FH og Hauka og nú er það alvaran. Það er klárt mál að næstu vikan verður rafmögnuð í firðinum. Fylgist vel með á vefnum næstu vikuna.

Áfram FH !!!

 Heiðar Örn Arnarson




Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?