Stjarnan - FH á laugardaginn

22.10.2008 Heiðar Arnarson

   

Mýrin Garðabæ, laugardaginn 25. október 2008 kl 16:00

Næsta laugardag, 25. Október kl 16:00, mætir karlalið FH, Stjörnumönnum í Mýrinni í Garðabæ. Stjörnuliðið er sterkt og vel mannað lið og því hörkuleikur framundan. Leikurinn verður sýndur á RÚV en við hvetjum FH-inga eindregið að halda áfram að kíkja á völlinn eins og þeir hafa gert.

Gengi liðanna

Gengi Stjörnunnar hefur verið upp og ofan í byrjun móts. Þeir töpuðu fyrir Haukum í fyrsta leik, gerðu síðan jafntefli við Valsara, töpuðu á Akureyri en gerðu sér lítið fyrir og unnu HK í síðustu umferð. Þeir eru því á uppleið að öllum líkindum enda með góðan hóp leikmanna.

Við FHingar höfum byrjað vel í mótinu. Við sigruðum Akureyri fyrir norðan, töpuðum naumlega fyrir HK heima, sigruðum Víkinga örugglega á útivelli og gerðum síðan jafntefli við sterk lið Fram og Vals þar sem herslumun þurfti til að klára leikina. Við erum því hungraðir í næsta sigur og ætlum okkur að festa okkur enn betur í sessi í deildinni.

Patrekur Jóhannesson

Stjörnuliðið

Fyrir mótið var Stjörnunni spáð 5. sætið í árlegri spá formanna, þjálfara og fyrirliða liðanna og mun, ef sú spá rætist, ekki komast í úrslitakeppnina. Patrekur Jóhannesson er tekinn við skútunni af Kristjáni Halldórssyni og segir að markmiðið sé að vera á meðal fjögurra efstu liða. Meiðsli hafa sett svip sinn á leikmannahópinn á undirbúningstimanum en í samtali við sport.is fyrir mótið er Patrekur ánægður með þann mannskap sem hann hefur í höndunum. Til Stjörnunnar hafa komið leikmenn á borð við Fannar Friðgeirsson frá Val, nafni hans Þorbjörnsson frá Fredericia í Danmörku, Hrafn Ingvarsson frá Aftureldingu og Ólafur Sigurjónsson frá ÍR. Aftur á móti hafa reynsluboltar horfið á braut eins og Heimir Árnason, besti leikmaður síðasta tímabils, til Vals, Hlynur Morthens til Gróttu og Volodymyr Kysil heim til Úkraínu. Fyrir eru sterkir leikmenn eins og Roland Eradze, Björgvin Hólmgeirsson og Vilhjálmur Halldórsson.

Undirbúningur

Spilamennska FH var lengst af frábær gegn Frömmurum í síðasta leik þrátt fyrir að sigur hafi ekki náðst og margir leikmenn sprungu virkilega út. Nú er að byggja áfram á þeirri spilamennsku og læra af þeim leikköflum þar sem spilamennskan var hvað síst. FH liðið er hungrað í næsta sigur sinn í deildinni og munu gera hvað þeir geta til að innbyrða hann næsta laugardag. Menn æfa af krafti í vikunni og að öllum líkindum endurheimtum við reynsluboltana tvo í liðið fyrir leikinn, fyrirliðann Hjört Hinriksson úr banni og Guðmund Pedersen úr meiðslum.

Ástand

Ástand er eins gott og mögulegt er. Hjörtur og Guðmundur verða væntanlega í hóp. Hilmar Þór Guðmundsson er allur að koma til eftir erfið bakmeiðsli. Ólafur Gústafsson, Árni Stefán Guðjónsson og Heiðar Örn Arnarson eiga þó töluvert í land vegna meiðsla.


Staðan í deild

Nr. Félag Leik U J T Mörk Nett Stig
1. Valur 5 3 2 0 149:124 25 8
2. FH 5 2 2 1 148:144 4 6
3. Akureyri 5 3 0 2 134:131 3 6
4. Fram 4 2 1 1 112:110 2 5
5. HK 5 2 0 3 131:142 -11 4
6. Haukar 4 2 0 2 111:109 2 4
7. Stjarnan 4 1 1 2 93:100 -7 3
8. Víkingur 4 0 0 4 109:127 -18 0

Stuðningur

FH fékk frábæran stuðning áhorfenda í Safamýrinni sl. fimmtudag sem voru duglegir við að hrópa og hvetja(þegar þeir komust að fyrir Viggó). FH stuðningsmenn voru a.m.k. jafnmargir og stuðningsmenn Frammara. Ekki amalegt það! Við óskum því áfram eftir þessum gríðarmikilvæga stuðningi og þó leikurinn sé sýndur í beinni hvetjum  við fólk til að mæta í Garðabæinn á laugardaginn.

Áfram FH!

Heiðar Örn Arnarson


Framkvæmdir í Kaplakrika

Eins og flestir iðkendur, foreldrar og almennir FH-ingar hafa tekið eftir er nóg um að vera á Kaplakrikasvæðinu þessa dagana. Áður en langt um líður komum við til með að eiga eitt allra glæsilegasta íþróttasvæði landsins. En á meðan framkvæmdum stendur þarf að sýna þolinmæði og fara varlega um svæðið. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina og aðgengi á svæðinu.

Myndasafn

Könnun

Ætlar þú að mæta á æfingar hjá Hlaupahóp FH