Fram náði stigi gegn FH-Umfjöllun

17.10.2008 Heiðar Arnarson

N1 deild karla

   

28-28


Framhúsið, fimmtudagurinn 16. október, kl. 19:30

FH og Fram gerðu 28-28 jafntefli í frábærum háspennuleik í Framhúsinu í gærkveldi. FH hefði með herslumun getað sigrað leikinn en náðu ekki að finna netið í síðustu sókn leiksins. Þess má geta að FH var án tveggja lykilleikmanna, Guðmundar Pedersens sem er meiddur á ökkla og Hjartar Hinrikssonar fyrirliða sem var í banni. FH heldur því öðru sæti deildarinnar 2 stigum á eftir Val.

Fyrri hálfleikur

FH byrjaði leikinn afar vel. Ólafur Guðmundsson fór á kostum og gat skorað nánast þegar hann vildi og ef hann skoraði ekki bjó hann mörkin til. Aron Pálmarsson var einnig að fara illa með Fram vörnina og spilaði vel fyrir liðið og þá helst á sjóðheitan Ólaf. Vörnin var líka að verjast vel en framliggjandi 3-2-1 vörn okkar FHinga var gífurlega öflug. Frammarar fengu aldrei frið og alltaf var næsti maður tilbúinn að brjóta eða bakka félagann upp.  FH var yfirleitt 3-4 mörkum yfir í í hálfleiknum, voru yfir 2-6, 8-11, 10-14 og fórum svo í 11-16. Frammarar sóttu svo aðeins í sig veðrið og staðan í hálfleik var 15-17. Frábær fyrri hálfleikur hjá FH.

Síðari hálfleikur

Í síðari hálfleik jafnaðist leikurinn töluvert og eftir 7 mínútur í seinni hálfleik jöfnuðu Frammarar í 20-20. Á þessum tímapunkti var Óli Guðmunds búinn að skora 10 mörk úr 10 skotum og auk þess átt 5 sendingar sem gáfu mark. Geri aðrir betur! Daníel Andrésson var hér kominn í markið og varði vel. Leikurinn var hér eftir í járnum það sem eftir lifði leiks. Fram komst i tveggja marka forystu 23-21 en FH hélt þó haus og  jafnaði 25-25 og komst svo yfir 27-28 þegar um þrjár mínútur voru eftir. Rúnar Kárason skytta Frammara, sem átti stórleik í gær, skoraði þá sitt 15. mark og jafnaði metin 28-28. FH átti lokasókn þegar um 40 sekúndur voru eftir. Liðið spilaði þær út og átti svo síðasta skot undir lokin en Davíð Svansson markvörður Fram varði skot Arons. Lokatölur 28-28.

   

Niðurstaðan

Fyrir leikinn höfðu fáir trú á því að FH liðið gæti náði stigi eða stigum gegn Frömmurum. Sérstaklega þar sem tveir lykilmenn, Gummi Ped og Hjörtur Hinriks, fyrirliði voru fjarri góðu gamni í leiknum. Annað kom á daginn og eins og leikurinn spilaðist geta Frammarar prísað sig sæla að hafa náð stigi út úr leiknum. Frammarar eltu lið FH lengst af og undir lokinn hefði FH getað landað sigrinum með smá heppni. Liðið hefur rjúkandi sjálfstraust í byrjun móts og ekki nokkurt lið sem getur bókað sigur gegn FH liðinu. Niðurstaðan er mjög góð. FH heldur öðru sæti þrátt fyrir jafntefli og eru nú 2 stigum á eftir Val. Þegar frammistaða einstakra leikmanna er skoðuð ber Ólafur Guðmundsson af í  þessum leik. Hann var stórkostlegur fyrstu 40 mínútur leiksins, skoraði og bjó til mörk þegar hann vildi. Það dró aðeins af honum um miðjan seinni hálfleik og var helst til bráður í sókninni á köflum en heilt yfir einstakur leikur af hans hálfu. Aron var afar ógnandi og Framvörnin átti í erfiðleikum með hann. Helst brugðu þeir á það ráð að lúskra verulega á honum. Sigurður Ágústsson var síðan mjög öflugur í sókn sem vörn og átti frábæran leik. Daníel Andrésson markvörður kom svo með mjög góða innkomu eftir að Maggi hafði ekki alveg fundið sig í fyrri hálfleik.

Markaskorarar FH (mörk/skot):

Ólafur Guðmundsson 12/16

Aron Pálmarsson  5/13

Sigurður Ágústsson  4/5

Ásbjörn Friðriksson 3/4

Benedikt Kristinsson 3/4

Þorkell Magnússon 1/3

Varðir boltar (varin/skot(víti)):

Daníel Andrésson 11/20(1)

Magnús Sigmundsson 3/8

 

Markaskorarar Frammara:

Rúnar Kárason 15

Andri Berg Haraldsson 5

Guðjón Finnur Drengsson 3

Magnús Stefánsson 2

Magnús Einarsson 1

Halldór Jóhann Sigfússon 1

Brjánn Bjarnason 1

Varðir boltar:

Magnús Erlendsson 10

Davíð Svansson 7

 

N1 deild karla

 

Nr. Félag Leik U J T Mörk Nett Stig
1. Valur 5 3 2 0 149:124 25 8
2. FH 5 2 2 1 148:144 4 6
3. Fram 4 2 1 1 112:110 2 5
4. Haukar 4 2 0 2 111:109 2 4
5. Akureyri 4 2 0 2 106:108 -2 4
6. HK 5 2 0 3 131:142 -11 4
7. Stjarnan 4 1 1 2 93:100 -7 3
8. Víkingur 3 0 0 3 86:99 -13 0

Aðrir leikir og næstu leikir

Mið. 15.okt.2008 19.30 Vodafone höllin Valur - Haukar 35-23 (21-08)
Fim. 16.okt.2008 19.30 Framhús Fram - FH 28-28 (15-17)
Fim. 16.okt.2008 19.30 Digranes HK - Stjarnan 26-29 (13-17)
Lau. 18.okt.2008 16.00 Víkin Víkingur - Akureyri

Fim. 23.okt.2008 19.30 Ásvellir Haukar - Fram

Fim. 23.okt.2008 19.30 Höllin Akureyri Akureyri - Valur

Fim. 23.okt.2008 20.00 Digranes HK - Víkingur

Lau. 25.okt.2008 16.00 Mýrin Stjarnan - FH

Stuðningur

Frábær stemmning myndaðist í Framhúsinu í gærkvöldi og fjöldi FHinga mættu á leikinn. Liðið var dyggilega hvatt áfram allan tímann og FH-áhorfendur slógu ekki slöku við sem endranær í haust. Frábær stuðningur sem fleytti liðinu langt í leiknum. Nú er um að gera að halda áfram og næst mætum við Stjörnunni laugardaginn 25. október í Mýrinni. Höldum áfram að styðja dyggilega við FH liðið!

Áfram FH!

Framkvæmdir í Kaplakrika

Eins og flestir iðkendur, foreldrar og almennir FH-ingar hafa tekið eftir er nóg um að vera á Kaplakrikasvæðinu þessa dagana. Áður en langt um líður komum við til með að eiga eitt allra glæsilegasta íþróttasvæði landsins. En á meðan framkvæmdum stendur þarf að sýna þolinmæði og fara varlega um svæðið. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina og aðgengi á svæðinu.

Myndasafn

Könnun

Ætlar þú að mæta á æfingar hjá Hlaupahóp FH