N1 deild karla í handknattleik

Safamýri, fimmtudagurinn 16. október, kl. 19:30
Karlalið FH mun nk. fimmtudag heimsækja Frammara í
Safamýrina í N1 deild karla. Um verður að ræða hörkuleik mjög góðra liða. Fram er
sem stendur með 4 stig í 3.-6. sæti en FH er í 2. Sæti með 5 stig en leikið
einum leik betur.
Gengi liðanna
Gengi liðanna hefur verið gott í byrjun móts. Frammarar
hafa unnið tvo leiki, unnu HK sannfærandi í fyrsta leik og því næst Víkinga.
Þeir töpuðu síðan nokkuð illa fyrir Völsurum.
FH hafa unnið Akureyri í hörkuleik og Víkinga nokkuð
sannfærandi. Við höfum síðan tapað naumlega fyrir HK en gerðum nýlega jafntefli
við Val.
Framliðið
Viggó Sigurðsson er kominn aftur í boltann og þjálfar nú
Framliðið eftir töluverða pásu. Fram hefur ekki bætt mikið við sig frá því í
fyrra. Magnús Stefánsson kom frá Akureyri í vinstri skyttu, Magnús Einarsson
frá Aftureldingu í hornið og Davíð Svansson markvörður, einnig úr Mosfellsbænum.
Fyrir hjá liðinu eru menn eins og Halldór Sigfússon og stórFHingurinn Andri
Berg Haraldsson. Frammarar hafa sett skýr markmið fyrir mótið; að vinna alla
titla sem í boði eru.
Undirbúningur
FH spilaði gríðarlega vel gegn Val á laugardaginn var og
átti með réttu að halda báðum stigum eftir. Liðið mun mæta grimmt til leiks og
ætla sér stóra hluti gegn sterku liði Frammara á fimmtudaginn. Undirbúningur
fyrir leikinn er kominn á fullt skrið.
Ástand
Ástand er svipað og áður. Liðið er í góðu ásigkomulagi en nokkrir leikmenn eru frá vegna
meiðsla, Ólafur Gústafsson er að jafna sig eftir aðgerð á hné, Hilmar Þór
Guðmundsson er að braggast eftir erfið bakmeiðsli sem og Árni Stefán
Guðjónsson. Heiðar Örn Arnarson mun í byrjun nóvember leggjast undir hnífinn
vegna axlarmeiðsla.
Líklegur hópur á fimmtudag:
Markverðir
Magnús
Sigmundsson
Daníel
Andrésson
Aðrir
leikmenn
Guðmundur
Pedersen
Benedikt
Reynir Kristinsson
Ólafur
Guðmundsson
Ásbjörn
Friðriksson
Aron
Pálmarsson
Guðni
Már Kristinsson
Jón
Helgi Jónsson
Ari
Þorgeirsson
Þorkell
Magnússon
Hjörtur
Hinriksson
Sigurður
Ágústsson
Sigursteinn
Arndal
Staðan
| Nr. |
Félag |
Leik |
U |
J |
T |
Mörk |
Nett |
Stig |
| 1. |
Valur |
4 |
2 |
2 |
0 |
114:101 |
13 |
6 |
| 2. |
FH |
4 |
2 |
1 |
1 |
120:116 |
4 |
5 |
| 3. |
Fram |
3 |
2 |
0 |
1 |
84:82 |
2 |
4 |
| 4. |
Haukar |
3 |
2 |
0 |
1 |
88:74 |
14 |
4 |
| 5. |
Akureyri |
4 |
2 |
0 |
2 |
106:108 |
-2 |
4 |
| 6. |
HK |
4 |
2 |
0 |
2 |
105:113 |
-8 |
4 |
| 7. |
Stjarnan |
3 |
0 |
1 |
2 |
64:74 |
-10 |
1 |
| 8. |
Víkingur |
3 |
0 |
0 |
3 |
86:99 |
-13 |
0 |
Stuðningur
Stuðningur áhorfenda á laugardaginn var gegn Val var einstakur. Um 900
manns mættu í Krikann á frábæran handboltaleik og studdu frábærlega við liðið.
Áfram þurfum við stuðninginn og ég skora á FHinga sem mættu á laugardaginn var
til að taka fimmtudagskvöldið frá og styðja við liðið á fimmtudaginn. Liðið
hlakkar til leiksins og ætlar sér stóra hluti!
Áfram FH