Frábær FH dagur um helgina - umfjöllun

13.10.2008 Heiðar Arnarson

N1 deild kvenna og karla

   

Kaplakriki, laugardagurinn 11. október, kl 14 og 16

Konur: 31-35
Karlar: 27-27



Stórkostlegur fjölskyldudagur var haldinn í Kaplakrika á laugardaginn var. FH og Valur áttust þá við í karla- og kvennaflokki en ásamt topphandbolta var dagskráin þétt af skemmtiatriðum og uppákomum. Krikinn var meira eða minna þéttsetinn og frábær stemmning myndaðist þrátt fyrir að báðir leikir væru sýndir í sjónvarpinu. (Skoðið frábærar myndir af deginum sem Jóhannes Long tók.)

Krakkarnir studdu liðin dyggilega

Ungmennin

Klukkan 12 kepptu 5. 6. og 7. flokkar félagsins innbyrðis og mátti þar sjá framtíðarleikmenn FH spreyta sig á aðalvelli Kaplakrikans. Fjöldi foreldra mættu og fylgdust með. Á meðan var FH varningur til sölu þar sem foreldrar gátu keypt FH treyjur, stuttbuxur og fleiri æfingafatnað fyrir börnin sín. Þegar keppnin var afstaðin gafst svo tími til að snæða pizzusneið eða tvær.

Ragnhildur brýst í gegn

FH-Valur: Konur

Klukkan 14 var svo komið að stelpunum okkar en þær öttu kappi við gríðarsterkar Valsstúlkur í N1 deild kvenna. Mikill hugur var í FH stúlkum enda mætti fjölda áhorfenda og góð stemming var í húsinu. Leikurinn byrjaði tiltölulega jafnt. Valsstúlkur áttu þó frumkvæðið þó svo að FH liðið væri aldrei langt undan.  Valur leiddi með þetta 2-3 mörkum milli þess að FH nálgaðist þær eða jafnaði metin. Staðan var síðan 16-19 í hálfleik Valsstúlkum í vil.

Leikurinn þróaðist svipað í byrjun seinni hálfleiks en þegar leið á hálfleikinn náðu Valstúlkur betur og betur að rífa sig frá FH stúlkum þrátt fyrir góð tilþrif FH inn á milli. Mestur fór munurinn í 9 mörk þegar leið á síðari hluta seinni hálfleiks en FH klóraði þó í bakkann á síðustu mínútum og minnkaði muninn niður í 4 mörk. Lokatölur urðu 31-34 Val í vil.

Ebba átti góðan leik


FH stúlkur geta þó verið ánægðar með ákveðna kafla í leiknum og þurfa síður en svo að skammast sín fyrir sína frammistöðu þrátt fyrir tap. Þær gáfust aldrei upp og spiluðu flottan bolta inn á milli. Valsstúlkur voru einfaldlega of stór biti enda reynslumikið lið með valin mann í hverju rúmi en margar eru landsliðskonur.

Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir og Hildur Þorgeirsdóttir voru í sérflokki í leiknum. Guðrún Helga Tryggvadóttir var sterk á línunni og Ebba Særún Brynjarsdóttir var áræðin.


Gunnur með þrusu


Mörk FH:

Hildur Þorgeirsdóttir, 10

Ragnhildur Rósa Guðmundsdótir, 8

Guðrún Helga Tryggvadóttir, 4

Ebba Særún Brynjarsdottir, 3

Gunnur Sveinsdóttir, 2

Hafdís Hinriksdóttir, 2

Arnheiður Guðmundsdóttir, 2

Varin skot:

Helga Vala Jónsdóttir, 12

 

Mörk Vals:

Hrafnhildur Skúladóttir, 8

Eva Barna, 6

Íris Ásta Pétursdóttir, 5

Drífa Skúladóttir 5

Dagný Skúladóttir 5

Ágústa Edda Björnsdóttir 3

Arna Grímsdóttir 2

Hafrún Kristjánsdóttir 1

Hildigunnur Einarsdóttir 1

Varin skot:

Berglind Íris Hansdóttir 18

Marta Skorem 1

 

Ingó úr Veðurguðunum tryllti lýðinn

Skemmtiatriðin

Skemmtiatriði dagsins voru ekki af verra taginu. Hin viðkunnanlega vonarstjarna íslenskrar dægurlagatónlistar Ingó úr Veðurguðunum mætti á svæðið strax eftir kvennaleikinn og hitaði fólk upp fyrir átökin hjá körlunum.  Skemst er frá því að segja að Ingó sló algjörlega í gegn sérstaklega hjá yngri kynslóðinni. Eftir að Ingó hafði tryllt lýðinn mætti dúettinn Jói og Krissi í hús með svo til spánýtt FH lag í farteskinu og fluttu það með sinni einskæru innlifun. Tilfinning þeirra og túlkun á þessu frábæra lagi kveikti svo sannarlega í viðstöddum og ég geri fastlega ráð fyrir því að leikmenn FH liðsins, sem hitaði upp við sönginn, tvíefldist fyrir vikið. Hreint út sagt frábær skemmtun og ekki laust við smá gæsahúð.


Jói og Krissi kveiktu i fólkinu

FH-Valur: Karlar

Karlarnir hófu síðan leik og hann var af dýrari gerðinni. FHingar byrjuðu afar vel, komust í 4-1 og leiddu fyrri hálfleik með 2-5 mörkum. Sóknarleikurinn var einstaklega góður með Aron Pálmarsson í algjörum sérflokki og Ólaf Guðmundsson og Ásbjörn Friðriksson einnig í miklum ham. Vörnin var ekki síðri. Sigurður Ágústsson var að stjórna vörninni einstaklega vel. Tímasetningar leikmanna voru afar góðar, menn voru virkilega á tánum og öll hjálparvörn og forvinna með eindæmum góð.  Eitt skyggði þó á, Hjörtur fyrirliði ákvað að gefa Sigga Eggerts á lúðurinn. Það er víst bannað, Hjörtur sá rautt. Staðan í hálfleik var 14-18 FH í vil.

Siggi að setja rosalegt mark!

Seinni hálfleikur þróaðist svipað í byrjun. FHingar voru afar áræðnir, tóku hröð upphlaup í hvert skipti og voru hvergi bangnir við að keyra á Valsliðið. Valsmenn sóttu þó smátt og smátt á og náðu að jafna í fyrsta skiptið 23-23 um miðjan hálfleikinn. Eftir það var leikurinn í algjörum járnum. Liðin annaðhvort skiptust á að skora í bakið á hvort öðru eða skjóta í tómt. Hvort lið skoraði síðan aðeins 4 mörk á síðustu 18 mínútum leiksins. Griðarleg spenna myndaðist í lokinn og bæði lið gátu stolið sigrinum. Magnús Sigmundsson varði skot Valsmanna þegar um 15 sek. voru eftir og Aron gat svo unnið leikinn með aukakasti þegar leiktími var liðinn. Hann var óheppinn og negldi boltanum í slá.


Walk of shame...

Stórmeistarajafntefli því staðreynd en eftir á að hyggja verður að segjast að FHingar hafi átt sigurinn skilið. Þeir hleyptu Valsmönnum of nálægt og því fór sem fór. FH liðið var samt sem áður frábært í leiknum og leikurinn var í háum gæðaflokki. Sóknarboltinn var allsráðandi og skemmtanagildið mikið. Með jafnteflinu hirti FH annað sætið í deildinni!

Bestir í leiknum voru Aron sem var í algjörum sérflokki en á móti honumm lék silfurmaðurinn Sigfús Sigurðsson sem vissi ekki hvað á sig stóð veðrið lengi vel þegar drengurinn smurði boltann hvað eftir annað í vinklana. Óli var sterkur í fyrri hálfleik og skoraði svo mikilvægt jöfnunarmarkið undir lokin. Ási er búinn að var stöðugur í byrjun móts og frábær fengur fyrir FHliðið í byrjun. Hefur staðið sig virkilega vel.  Maggi kom svo sterkur inn í seinni hálfleik og varði mjög mikilvæga bolta.

Ari skorar annað marka sinna

Mörk FH:

Aron Pálmarsson  12

Ásbjörn Friðriksson  4

Ólafur Guðmundsson  4

Sigurður Ágústsson   2

Guðmundur Pedersen  2

Ari Þorgeirsson  2

Hjörtur Hinriksson  1

Varin skot:

Magnús Sigmundsson  16 skot

 

Óli átti góðan leik

 

N1 deild karla

Nr. Félag Leik U J T Mörk Nett Stig
1. Valur 4 2 2 0 114:101 13 6
2. FH 4 2 1 1 120:116 4 5
3. Fram 3 2 0 1 84:82 2 4
4. Haukar 3 2 0 1 88:74 14 4
5. Akureyri 4 2 0 2 106:108 -2 4
6. HK 4 2 0 2 105:113 -8 4
7. Stjarnan 3 0 1 2 64:74 -10 1
8. Víkingur 3 0 0 3 86:99 -13 0

 

N1 deild kvenna

Nr. Félag Leik U J T Mörk Nett Stig
1. Stjarnan 4 4 0 0 109:84 25 8
2. Valur 4 3 0 1 110:92 18 6
3. Haukar 4 3 0 1 121:110 11 6
4. FH 4 2 0 2 105:104 1 4
5. HK 4 2 0 2 107:105 2 4
6. Fram 4 1 0 3 90:96 -6 2
7. Grótta 4 1 0 3 94:113 -19 2
8. Fylkir 4 0 0 4 88:120 -32 0


Stuðningur

Fjöldi fólks mætti á laugardaginn á báða leiki og studdu virkilega vel við bakið á FH liðunum. Frábær stemmning myndaðist og sjaldan verið eins gaman í Krikanum. FH áhorfendur eru einstakir og klárt mál að eftir laugardaginn geta menn verið stoltir af því að vera FHingar.

Bestu þakkir fyrir frábæran dag. Og ef vitnað skal í fyrliða karlaliðsins „Það eru forréttindi að vera FHingur“.

Áfram FH!


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?