Í betri stólinn hjá FH.is er sestur handknattleiksgoðsögnin Kristján Arason. Kristján er sannfærður um gott gengi FH liðsins í vetur og á næstu árum. Sigureðli yngri drengjanna í liðinu, sem hafa unnið allt sem hægt er að vinna í yngri flokkum, mun fleyta þeim langt á næstu árum að mati Kristjáns.
Sæll Kristján
Hvernig mun karlaleikurinn þróast á laugardaginn,
FH - Valur. Hvaða möguleika hefur FH liðið?
Leikurinn verður jafn og skemmtilegur
því þar mætast 2 skemmtileg lið. FH þarf að spila mjög góðan leik til
vinna Val og ég hef trú á því að það muni gerast. Það lið sem
spilar góðan varnarleik og nær hraðaupphlaupum mun sigra þennan leik.
Nú segir pappírinn okkur að Valur eigi
að taka 2 stig á laugardag en tölfræðin aftur á móti sýnir að FH hefur unnið
fleiri leiki frá upphafi. Hefur það ekki töluvert vægi?
Það skiptir engu máli hvað tölfræðin
segir okkur. FH verður að horfa á hvern leik sem bikarúrslitaleik og þá
er allt hægt. Þrátt fyrir að liðið sé ungt (fyrir utan nokkra gamla refi)
þá hafa þeir verið aldir upp við að vera sigurvegarar og þeir eiga ekki
að breyta því, þrátt fyrir að vera á fyrsta ári í úrvalsdeild
Nú ert þú nýkjörinn formaður
landsliðsnefndar hjá HSÍ og upplifðir magnaðasta íþróttaviðburð Íslandssögunnar
í Kína þegar Ísland tók silfrið. Hvernig var að upplifa þessa stund þarna úti?
Hvernig geta HSÍ og félögin nýtt sér þennan meðbyr?
Að vera í kringum liðið, taka þátt í
undirbúningi, fylgjast með stemmningunni og hvernig leikmennirnir fórnuðu sér
til að toppa á Ólympíuleikunum var frábært. Síðan að upplifa Ólympíuleikana
var og er nánast ólýsanlegt. Nú er það HSÍ og félaganna að nýta sér
þennan meðbyr í enn meira unglingastarfi. Unglingastarfið hefur verið
gott hjá FH svo og HSÍ en það verður að bæta það enn meir. Ég hef trú á
því að FH muni smátt og smátt vinna sig upp í að verða topplið á Íslandi og þar
eigum við að vera!
Viðurkenndu það Stjáni, þig langaði
svakalega til þessa að hoppa í búning og taka við silfrinu?
Að sjálfsögðu vildi ég vera á palli á Ólympíuleikum
en maður hreifst með þeim
Hvernig líst þér á FH liðið í vetur og
hverjir eru möguleikar liðsins í úrvalsdeildinni? (þínar væntingar um veturinn
og framtíðina?)
FH liðið getur komið sér í efri hluta
deildarinnar ef strákarnir hafa trú á því og ég hef trú á liðinu. Það er
mikilvægt að leikmenn missi ekki einbeitingu og sjónar á því verkefni þó að
tapleikir komi inn á milli. Ég hef trú á því að FH-liðið muni á næsta
ári eða þar næsta vera komið í topp-fjögur í deildinni.
Ein spurning að lokum sem brennur á öllum FH-ingum þarna
úti. Er einhver möguleiki á að þú takir að þér þjálfun aftur í framtíðinni?
Ég hef rosalega gaman af handbolta og
það er aldrei að vita nema maður taki að sér þjálfun en þá væri það meira með
unglingaflokka, 3. og 2. flokk og skila þeim strákum í meistaraflokkinn.
Takk Kristján.
Áfram FH!
