“Við fáum álíka margar sóknir og
Valur” segir
Guðmundur Karlsson, þjálfari kvennaliðs FH og “Miði er möguleiki”
segir Elvar Erlingsson, þjálfari karlaliðsins þegar þeir eru inntir eftir spjalli um
stórleikina sem leiknir verða á morgun við Val í karla og kvennaflokki.
Þessir góðu og gildu frasar munu að
öllum líkindum óma í leikmannaklefum Kaplakrikans á morgun.

Guðmundur Karlsson og Elvar Erlingsson í léttu spjalli fyrir leikina á morgun.
Sælir drengir! Við vindum okkur beint
að efninu. Hverjir eru möguleikar liða okkar á laugardaginn og hvert er
markmiðið fyrir leikina?
G: Möguleikar
okkar eru til staðar og góðar líkur á að við fáum álíka margar sóknir og Valur.
Markmiðið er að halda áfram því sem við höfum gert vel á stórum köflum þeirra
leikja sem búnir eru og við förum í alla leiki með sigur sem markmið.
E:
Miði er alltaf möguleiki. Liðin hefja leik sem jafningjar.
Markmið laugardagsins er að hafa okkar "mótiveringu" í lagi og góða
stemmningu í hópnum.
Nú hafa liðin byrjað vel og bæði sigrað tvo leiki af
þremur í N1 deildinni. Hvernig er stemmningin í hópunum? Eru þið bjartsýnir á
góð úrslit?
G: Já, ágætis byrjun hjá okkur og í raun
hefði verið sanngjarnt að vera með eitt stig í viðbót. Það er hins vegar ljóst
að við höfum leikið við þau lið í upphafi mótsins sem spáð var sæti í neðri
hluta deildarinnar ásamt okkur og því gott að koma sterkt út úr því. Samt er
ljóst að restin af umferðinni er erfiðari ef eitthvað er. Hópurinn er þéttur og
það er ágætis samkeppni en jafnframt mjög góður mórall. Ég er alltaf bjartsýnn
fyrir leiki og það að ná góðum úrslitum er afstætt en Valur er með hörkulið.
E: Stemmningin hefur
verið fín en það er alls ekki sjálfgefið að svo verði. Við búum hana til
sjálfir og ef okkur tekst vel upp þá er ég bjartsýnn.
Af
leikmönnum Valsliðanna, hverja og hverjar ber helst að varast og á hvaða sviði
stöndum við betur ef við berum liðin saman?
G: Valur er með tvöfalt lið og í raun
ótrúlega sterkan mannskap. Það er í raun magnað að sjá hvað þeirra 14 manna
hópur er sterkur en það eru núverandi eða fyrrverandi landsliðsmanneskjur í
öllum stöðum auk þess að hafa einn besta erlenda leikmann deildarinnar
innanborðs. Valur er að mínu viti með besta hópinn en það eru jú bara 7 inná í
einu og þar liggur okkar möguleiki. Í hreinum samanburði, svona stöðu fyrir
stöðu, þá hallar verulega á okkur af augljósum ástæðum þar sem þeirra lið er
samsett af eintómum landsliðsmanneskjum en í okkar liði eru 2-3 í yngri
landsliðum en engin í A-landsliði sé miðað við síðasta landsliðsval. Okkar
styrkur er að við erum með ekta FH-blóð í æðum en í okkar 18 manna hópi eru
einungis 3-4 sem ekki eru uppaldir FH-ingar. Það höfum við framyfir Val og ég
myndi ekki vilja skipta á einum einasta leikmanni.
E: Samkvæmt spánni eigum
við að hafa fátt umfram Val. Þeir eru mjög vel spilandi og vel skipulagðir í
aðgerðum sínum. Þeirra veikleiki í dag er lítil breidd í útilínunni en
þeir vinna það ágætlega upp með mjög
snöggum leikmönnum sem erfitt getur verið að ráða við. Þeir hafa svo auðvitað
einn "silfurmann" í liðinu sem er alls ekki slæmt. Okkar helsti styrkur verður ákefðin ef við finnum
hana!
Að lokum, hvernig fer leikurinn?
G: Það eru tvær útgáfur af úrslitum í
minum huga og ef að við kjósum þá útgáfu sem tengist gríðarlegum liðsaga,
hlýðni og trú leikmanna á verkefnið þá náum við góðum úrslitum. Segjum 23:22.
E: Ég held að það verði
eins með handboltaspána og efnahagsspána, ómögulegt um að segja.
Kvennaliðið hefur leik kl.14 en karlaliðið kl. 16.
FH.is þakkar köppunum kærlega fyrir
spjallið og hvetur þá til góðra verka á
laugardaginn kemur!
Áfram FH!
