N1 deild karla og kvenna
Íþróttahúsið Kaplakriki, laugardagurinn 11. október, kl. 14:00 og 16:00
Laugardaginn 11. október verður mikill
handboltadagur í íþróttahúsinu í Kaplakrika frá kl. 12 – 17:30. Dagskráin verður
frábær. Konurnar hefja leik kl 14:00 og karlarnir kl.
16:00. Báðir leikirnir verða sýndir á RÚV.
Valur hefur á að skipa
gríðarsterku karla og kvennaliði með valinn einstakling í hverju rúmi. Bæði FH
liðin ætla þó að selja sig dýrt en þau hafa byrjað mótið frábærlega.
Gengi liðanna gegn Val
Stúlkurnar
Samkvæmt
upplýsingum af HSÍ vefnum hafa liðin leikið 39 sinnum sín á milli frá 1995.
FH hefur unnið 13 leiki, Valur 24 og tvisvar sinnum skildu liðin jöfn.
Síðustu tvö tímabil hefur Valur unnið alla 8 leikina nokkuð örugglega en fram að þeim tíma voru
innbyrðis viðureignir jafnar. Valsliðið er sterkara í ár en það
var í fyrra. Það hefur bætt sterkum leikmönnum við kjarna sem hefur lengi æft saman og því ljóst að
leikurinn verður erfiður fyrir stelpurnar okkar. Þær eru þó hvergi bangnar og munu gera allt sem þær geta til að snúa
taflinu við á laugardaginn!

Drengirnir
Samkvæmt upplýsingum af vef HSÍ hafa liðin leikið 18
sinnum frá árinu 1995. FH hefur sigrað 7 sinnum, Valur 8 sinnum og 3 leikir
hafa endað með jafntefli. Liðin
hafa ekki mæst síðan árið 2006 í Íslandsmótinu þar sem FH beið lægri hlut í 2
leikjum. Fyrir þann tíma hafði FH sigrað í 5 af 8 leikjum liðanna frá
aldamótum. Valsliðið er afar sterkt með silfurleikmann frá ÓL innanborðs ásamt
silfurþjálfara frá ÓL. Liðið hefur átt við mikil meiðsli að stríða en vermir
samt sem áður toppsætið. FH drengirnir hlakka til að taka á Valsmönnum á
laugardaginn og freista þess að ná fyrsta sigri þeirra á liðinu síðan 2003.
Gengi
liðanna í haust og frammistaða einstakra leikmanna
Stúlkurnar
Stúlkurnar
hafa leikið 3 leiki í N1 deild kvenna.
Fyrsta
viðureignin var við Gróttu úti á
Nesi. Sá leikur spilaðist ekki vel og
endaði með eins marks tapi 22-21. Stúlkurnar voru í raun klaufar að fá ekki stig þar sem þær misnotuðu hvert tækifærið á fætur öðru.
Því
næst tóku FH stúlkur á móti HK
í Kaplakrika. Þær mættu grimmar til leiks og tóku strax forystu. Leikurinn var afar
jafn en staðan í hálfleik var 11-11. FH liðið var þó betri aðilinn og innbyrti verðskuldaðan sigur, 25-24.
Þá
sóttu FH stúlkur Fylki heim
í Árbæinn þar sem þær unnu nokkuð sannfærandi sigur, 23-28. FH var þó ekki að
spila sinn besta leik. Seinni hálfleikurinn gerði gæfumuninn eftir að stúlkurnar
höfðu verið 2 mörkum undir í hálfleik og lagði grunninn að fimm marka sigri.
Þær
Guðrún Helga Tryggvadóttir, Gunnur Sveinsdóttir, Hafdís Inga Hinriksdóttir, Helga Vala Jónsdóttir og
Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir hafa spilað best það sem af er hausti.
FH
er í 2.-4. sæti í N1 deild kvenna með 4 stig.
Drengirnir
Drengirnir
hafa leikið 3 leiki í N1 deild karla og 1 leik í Eimskipsbikarnum.
Fyrsti
leikur var gegn Akureyri. Eftir
frábæran lokasprett innbyrtu FH drengirnir sigur eftir háspennuleik, 26-31. Akureyri voru
líklegri til afreka í leiknum og stjórnuðu lengst af en FH liðið var hungraðara
á lokasprettinum.
Því
næst tók FH á móti HK í
Kaplakrika. Leikurinn bauð upp á allt sem skemmtilegur handbolti getur boðið
upp á, baráttu, spennu og frábæra stemmningu. Að endingu sigruðu HK menn 33-36
en FH hefði hæglega getað jafnað leikinn undir lokin.
FH
mætti svo í Víkina og sigraði Víkinga
nokkuð létt eftir að hafa leitt allan leikinn. Lokatölur voru 27-29 en þær
tölur gefa ranga mynd af gangi leiksins því FH náði 7 marka forystu þegar um 8
mínútur voru til leiksloka.
FH
lék síðan í Eimskipsbikarnum í vikunni og innbyrti laufléttan sigur gegn Víkingi 2 í Víkinni. Lið
Víkings 2 byggir á gömlum handboltakempum sem hafa lagt skóna á hilluna frægu.
Lokatölur 22-45 FH í vil.
Þeir
Aron Pálmarsson, Ásbjörn Friðriksson, Ólafur Guðmundsson og Sigurður Ágústsson
hafa spilað best það sem af er hausti.
FH
er í 2.-4. sæti N1 deildarinnar með 4 stig.
|
N1
deild kvenna
|
|
N1
deild karla |
|
L
|
U
|
J
|
T
|
Stig
|
|
|
L
|
U
|
J
|
T
|
Stig
|
|
1. Stjarnan
|
3
|
3
|
0
|
0
|
6
|
|
1. Valur
|
3
|
2
|
1
|
0
|
5
|
|
2. Valur
|
3
|
2
|
0
|
1
|
4
|
|
2. Haukar
|
3
|
2
|
0
|
1
|
4
|
|
3. Haukar
|
3
|
2
|
0
|
1
|
4
|
|
3. FH
|
3
|
2
|
0
|
1
|
4
|
|
4. FH
|
3
|
2
|
0
|
1
|
4
|
|
4. Fram
|
3
|
2
|
0
|
1
|
4
|
|
5. Fram
|
3
|
1
|
0
|
2
|
2
|
|
5. Akureyri
|
4
|
2
|
0
|
2
|
4
|
|
6. Grótta
|
3
|
1
|
0
|
2
|
2
|
|
6. HK
|
4
|
2
|
0
|
2
|
4
|
|
7. HK
|
3
|
1
|
0
|
2
|
2
|
|
7. Stjarnan
|
3
|
0
|
1
|
2
|
1
|
|
8. Fylkir
|
3
|
0
|
0
|
3
|
0
|
|
8. Víkingur R.
|
3
|
0
|
0
|
3
|
0
|
Stuðningur
Laugardagurinn verður fjölskyldudagur eins og hann gerist
bestur. Frábær afþreying fyrir unga sem aldna og metnaðarfull dagskrá frá kl 12 til 17:30. FH stúlkur hefja leik kl. 14:00 og FH drengir kl. 16:00 eins og áður segir. Það er
ljóst að um virkilega erfiða leiki verður að ræða fyrir bæði lið.
Í báðum Valsliðunum er valinn maður í hverju rúmi og engin
tilviljun að þeim var spáð 2. sæti í N1 deild karla og kvenna. Okkar lið eru þó
hvergi bangin og hafa mikið sjálfstraust. Liðin hafa byrjað frábærlega og eru í
góðri stöðu í deildinni.
Leikirnir verða mjög erfiðir en með stuðningi áhorfenda eiga
liðin eftir að ná langt. Því hvetjum við ykkur kæru FHingar að taka þátt í
þessum fjölskyldudegi og styðja við bakið á stelpunum og strákunum okkar. Með
ykkar stuðning að vopni fara liðin alla leið!
Viðtöl við þjálfara liðanna vegna leikjanna verða birt á
vefnum á morgun og viðtal við stórmenni í íslenskum handbolta kemur í
kjölfarið. Fylgist með!
Áfram FH!
