Fjölskylduhátíð í Kaplakrika

FH - Valur
Íþróttahúsið Kaplakrika, laugardaginn 11. október kl. 12 - 17:30
Laugardaginn 11. október verður mikill handboltadagur
í Íþróttahúsinu í Kaplakrika frá kl. 12 – 17:30. FH spilar við Val, bæði í
karla og kvennaflokki. Yngri flokkar félagsins hita upp fyrir leikina, iðkendur
FH fá glæsilega mynd af Loga Geirsyni með ólympíusilfrið, veitingar verða á
boðstólnum og nýja FH lagið verður flutt svo eitthvað sé nefnt.
Miðaverð er aðeins 1.000 kr og gildir miðinn á báða leiki. Frítt er fyrir 16 ára og yngri. Við
hvetjum því alla, sérstaklega fjölskyldufólk, til að taka daginn frá og leggja
leið sína í Kaplakrikann.

Hafdís Hinriksdóttir og Aron Pálmarsson ætla að selja sig dýrt á laugardaginn!
Konunarnar hefja leik kl. 14:00 og karlarnir kl.
16:00. Báðir leikirnir verða sýndir á RÚV. Valur hefur á að skipa gríðarsterku
karla og kvennaliði með valinn einstakling í hverju rúmi. Bæði FH liðin ætla að
selja sig dýrt en þau hafa byrjað mótið frábærlega.
Dagskrá
·
Ingó úr
Veðurguðunum treður upp í hléi á milli kvenna og karla leikja FH og Vals.
·
Nýja FH lagið
verður flutt.
·
5., 6. og 7.
flokkar stelpna og stráka í FH spila á aðalvellinum og hita upp fyrir
meistaraflokksleikina.
·
Allir iðkendur fá
glæsilega mynd af Loga Geirssyni með Ólympíusilfrið.
·
FH varningur verður
til sölu.
·
Muggur,
stuðningsmannafélag handknattleiksdeildar FH, kynnir starfsemi sína.
·
Veitingar á boðstólum
·
Atlantsolía verður
með lukkuhjól.
·
EAS – Fæðubótarefni
verða með kynningu.
·
Handboltasprell
verður í hálfleik.
·
Hægt verður að ganga
frá greiðslu æfingagjalda.
Iðkendur fá mynd af Loga með ÓL silfrið
Það er því
frábær afþreying framundan fyrir
unga sem aldna á laugardaginn milli 12 og 17:30. FHingar góðir, látið ykkur ekki
vanta og njótið þess að vera saman með fjölskyldunni.
Áfram FH!