FH í 16 liða úrslit bikarsins

7.10.2008 Heiðar Arnarson

Eimskipsbikarinn 2008/2009


2   22-45  

Víkin, þriðjudagurinn 7. október, kl 20:00


FH er komið í 16 liða úrslit Eimskipabikarsins eftir laufléttan sigur á Víkingi 2, en leikurinn fór fram í Víkinni fyrr í kvöld. Allir liðsmenn fengur að spila í leiknum og hvorki fleiri né færri en 23 mörk skildu liðin að. Lokatölur voru 22-45 FH í vil eftir að hafa verið yfir 11-18 í hálfleik.

Leikurinn var jafn til að byrja með og héngu Víkingarnir í FHingunum framan af eða þar til um 15 mínútur voru liðnar af leiknum. Þá varð ekki aftur snúið og Víkingsleikmenn, menn eins og Steinar Birgisson og Karl Þráinsson, sem margir hverjir hafa lítið spreytt sig í handbolta síðustu árin sprungu á limminu þar sem formleysi sagði til sín. Hálfleikstölur voru 11-18. Í seinni hálfleik var það sama uppi á teningnum. FHingar mjökuðust lengra og lengra framúr þar sem þeir beittu óspart hraðaupphlaupum og enduðu á að sigra leikinn með 23 mörkum 22-45.

Allir fengu að spreyta sig í kvöld og þó svo að ekki hafi verið um erfiðan mótherja að ræða var mikilvægt að menn tækju leikinn alvarlega og kláruðu hann almennilega. FH er því verðskuldað komið áfram í 16 liða úrslit og verður forvitnilegt að sjá hverjir mótherjarnir verða þar.

Næst á dagskrá er fjölskyldudagur í Kaplakrika þar sem karla og kvenna lið FH taka á móti Val kl 14 og 16. Þú kæri FHingur lætur það ekki fram hjá þér fara! Nánar um það í vikunni.

Áfram FH!!


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?