"Við vitum hvað í okkur býr"

4.10.2008 Heiðar Arnarson

Fyrirliði kvennaliðs FH, Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir, er bjartsýn fyrir komandi tímabil enda segir hún liðið betur á sig komið nú en á sama tíma og í fyrra.


Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir

 

Hvernig leggst tímabilið í fyrirliða meistaraflokks kvenna?

Það leggst bara alveg ágætlega í mig, við erum búnar að æfa mjög vel í allt sumar og ætlum okkur að byrja betur en í fyrra.

 

Er hópurinn í vetur sterkari en í fyrra að þínu mati?

Við erum búnar að missa nokkra leikmenn síðan á síðasta tímabili en fá Hafdísi og Helgu Völu í staðinn þannig að getulega séð hugsa ég að við séum með svipað lið og í fyrra. En hópurinn er kominn skrefinu lengra en á sama tíma í fyrra þannig að við ætlum okkur að gera betur.

 

Þið fóruð í æfingaferð til Portúgal síðsumars. Þið hafið vonandi náð að stilla saman strengina og komið með eitthvað annað heim en mikla brúnku?

Já þessi ferð var alveg meiriháttar náðum að æfa mjög vel. Við komum heim í töluvert betra formi og mannskapurinn náði að þjappa sér vel saman fyrir utan það hvað brúnkan var gríðarlegJ

 

Heldurðu að meira jafnvægi verði í leik liðsins en í fyrra. Þið unnuð Stjörnuna sem síðar urðu meistarar og töpuðuð svo illa fyrir lakari liðum. Er ekki markmið að sýna meira stabílitet í vetur?

Jú það er okkar markmið að sjálfsögðu að fá meira jafnvægi í leik liðsins og þar af leiðandi vinna fleiri leiki. Við vitum alveg hvað býr í okkur og það er bara kominn tími á að sýna það.

 

Eitthvað að lokum?

Vil bara hvetja alla FH-inga að fjölmenna á leikina, við þurfum ykkar stuðning.

Áfram FH!                  


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?