Fylkir - FH á laugardaginn!

3.10.2008 Meistaraflokkur kvenna
vs

Fylkishöll, laugardagurinn 4. október, kl. 16:00

 

 

Þriðja umferð N1 deildar kvenna fer fram á morgun, laugardag, og sækja okkar stúlkur Fylkisstelpur heim.

 

Gengi liðanna

Eftir tap í fyrsta leik mættu okkar stelpur ákveðnar til leiks og innbyrtu eins marks sigur gegn HK í síðustu umferð.

Fylkir hefur tapað báðum sínum leikjum í vetur.  Í fyrstu umferð mættu þær liði Vals og töpuðu stórt, 18-34.  Síðast mættu þær Fram og töpuðu 23-29 eftir jafnan leik.

 

Fylkir

Fylkisliðið er mikið breytt frá síðasta tímabili.  Nýr þjálfari, Aðalsteinn Reynir Eyjólfsson, tók við af Guðríði Guðjónsdóttur.  Liðið missti erlendu leikmennina þrjá þær Elzbieta Kowal, Jelena Jovanovic og Natasha Damiljanovic en til liðsins gengu þær Auður Ómarsdóttir (frá Akureyri), Guðrún Ósk Maríasdóttir (frá Gróttu), Katrín Andrésdóttiir (frá Val), Kristín Kara Collins (frá Val) og Rebekka Rut Skúladóttir (frá Val).


Ástand

Hópurinn er í góðu standi fyrir utan Elínu Hrafnsdóttur sem er veik og því ekki spilfær.  Í hennar stað kemur Ebba Særún Brynjarsdóttir.

 

Líklegur hópur á laugardag:

Markverðir

Helga Vala Jónsdóttir

Sigríður Arnfjörð Ólafsdóttir

Aðrir leikmenn

Ingibjörg Pálmadóttir

Líney Rut Guðmundsdóttir

Birna Íris Helgadóttir

Gunnur Sveinsdóttir

Ebba Særún Brynjarsdóttir

Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir

Hafdís Inga Hinriksdóttir

Hildur Þorgeirsdóttir

Arnheiður Guðmundsdóttir

Hafdís Guðjónsdóttir

Guðrún Helga Tryggvadóttir

Sigrún Gilsdóttir

 

Stuðningur

FH stelpurnar þurfa á öllum ykkar stuðningi að halda og vonast til að FH-ingar fjölmenni í Árbæinn kl. 16 á morgun, laugardag. Stelpurnar eru til alls líklegar og þú, kæri lesandi, gætir verið sá sem gerir gæfu muninn eftir leik. Liðið er breytt frá því í fyrra, veturinn er í okkar höndum. Það er bara spurning, ætlar þú að taka þátt í þessu ævintýri með okkur í vetur og skila báðum liðum FH á toppinn?

 

Áfram FH!!



Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?