Viðtal - Ingvar Viktorsson
1.10.2008
Heiðar Arnarson
FH.is fékk i betri stofuna stórmenni í sögu FH, mann sem unnið hefur fyrir félagið í hartnær 40 ár. Ingvar Viktorsson er hér í örstuttu viðtali en hann lét af formennsku aðalstjórnar FH fyrir ekki svo löngu síðan eftir mikið og gott starf.

Ingvar Viktorsson
Sæll Ingvar, hvernig
hefurðu það? Hvað ertu að bardúsa í dag?
Það er allt gott að frétta af mér eins og væntalega öllum
FHingum þessa dagana,við böðum okkur í sviðsljósinu. Frábær frammistaða
fótboltans í sumar bæði eldri og yngri karla og kvenna. Góð byrjun í
handboltanum sem lofar svo sannarlega fyrir veturinn,bæði hjá stelpunum og
strákunum.
Nú þegar ég er hættur formennsku í FH eftir að hafa verið í
forsvari á hinum ýmsu stöðum þar í rúm 40 ár er gott að slaka á og fylgjast
með. Ég mun sækja leiki í vetur en óttast mest að ég æsi mig of mikið og verði
mér til skammar,sérstaklega á ég erfitt með dómarana þegar illa gengur.
Hefurðu fylgst með
byrjun móts í karlaboltanum? Nú hafa FHingar byrjað ágætlega. Þínar væntingar
um veturinn og framtíðina?
Mér finnst okkar unga lið byrja mjög vel og veit að það á aðeins
eftir að batna, ég þekki suma strákana mjög þar sem þeir voru nemendur mínir og
Elvari treysti ég í gegnum þykkt og þunnt enda fer þar frábær náungi í alla
staði.
Nú ert þú annálaður FH
ingur og verið lengi í bransanum. Hvernig stendur félagið sem heild í dag?
Félagið okkar er stórveldi í íslenskum íþróttum og þær
framkvæmdir sem nú eru í gangi í Krikanum eiga eftir að styrkja okkur
félagslega um langa, langa framtíð.Styrkleiki byggist á frábæru íþróttafólki í
öllum íþróttagreinum sem við tökum þátt í jafnt yngri sem eldri. En kannski er
styrkurinn mestur í því fólki sem gefur kost á sér til að starfa fyrir félagið
og þá síðast en ekki síst öllum þeim fjölda foreldra sem þar koma að málum. Framtíð
FH er því björt og ég fullyrði að ekkert félag á Íslandi og þótt víðar væri
leitað á sér jafn bjarta framtíð!!!
Við þökkum Ingvari kærlega fyrir spjallið og góðan innblástur.
Áfram FH!
