FH hafði betur í spennuleik!

27.9.2008 Meistaraflokkur kvenna
Nánari umfjöllun kemur síðar
Kjósið mann leiksins á síðu Muggs; http://www.123.is/muggur

N1 deild kvenna í handbolta

25-24
Kaplakriki, laugardagurinn 27. september 2008 kl. 16:00

FH stelpur sigruðu áðan stöllur sínar úr HK í fyrsta heimaleik vetrarins.  Leikurinn var í járnum frá fyrstu mínútu og fór að lokum svo að stelpurnar okkar unnu 25-24.  Í hálfleik var staðan 12-12.

Áhorfendur voru um 200 og getur það ekki talist annað en mjög góð mæting þar sem fótboltastrákarnir urðu Íslandsmeistarar á sama tíma!

Markaskorarar FH:
Hafdís Inga Hinriksdóttir 10
Birna Íris Helgadóttir 3
Hildur Þorgeirsdóttir 3
Sigrún Gilsdóttir 2
Guðrún Helga Tryggvadóttir 2
Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir 2
Ingibjörg Pálmadóttir 2
Gunnur Sveinsdóttir 1

Helga Vala Jónsdóttir varði 26 skot í FH-markinu.


Markaskorarar HK:
Pavla Kúlíkova 10
Elva Björg Arnarsdóttir 9
Arna Sif Pálsdóttir 2
Brynja Magnúsdóttir 2
Jóna Sigríður Halldórsdóttir 1

Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir varði 21 skot í HK-markinu.

Dómarar voru Ómar Ingi Sverrisson og Þorlákur Kjartansson.




Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?