Fyrsti heimaleikur kvennaliðsins, FH - HK
26.9.2008
Hafdís Hinriksdóttir
vs
Kaplakriki, laugardagurinn 27. september, kl. 16:00
Önnur umferð N1 deildar kvenna fer fram á
morgun, laugardag, og taka okkar stúlkur á móti HK í Krikanum. Það er ekki hægt að búast við öðru en
hörkuleik en þessum tveimur liðum er spáð harðri samkeppni af fyrirliðum og þjálfurum
í deildinni.
Gengi liðanna
Fyrsti leikur
vetrarins hjá okkar stelpum var við Gróttu úti á Nesi og tapaðist hann með 1
marki. Stelpurnar voru í raun klaufar að hirða ekki a.m.k. 1 stig en þær hentu
hverju tækifærinu á fætur öðru frá sér og því fór sem fór. Fyrri hálfleikurinn
var dapur en stelpurnar girtu sig í brók og mættu brjálaðar til síðari
hálfleiks og komu sér aftur inn í leikinn. En tap var staðreynd engu að síður
og okkar stelpur því stigalausar eftir fyrstu umferðina.
HK liðið tók á
móti Fram í Kópavoginum og vann þar heldur óvæntan sigur. Þær áttu dúndur
seinni hálfleik og gerðu sér lítið fyrir og unnu Fram liðið, sem lenti í öðru
sæti N1 deildarinnar í fyrra með jafnmörg stig og Íslandsmeistarar Stjörnunnar.
HK liðið
HK liðið hefur
misst tvo öfluga leikmenn frá síðasta tímabili, systurnar Auði og Rut
Jónsdætur. Einnig misstu þær markmann og
markahæsta leikmann N1 deildarinnar í fyrra, svo að eitthvað sé nefnt. Þær hafa aftur á móti fengið Pövlu Plaminkovu frá Gróttu, skyttu frá Ungverjalandi og Jólöntu
okkar. Þannig að liðið er töluvert
breytt frá því í fyrra. Erlingur Richardsson þjálfar stelpurnar, hann er klár
þjálfari og kann virkilega að berja lið saman.
HK liðið er með
einn sterkasta línumann deildarinnar hjá sér ásamt því að eiga sterkan markmann
en þar að auki styrkja erlendu leikmennirnir liðið verulega.
Undirbúningur
Stelpurnar hafa æft vel undanfarna viku og
eru virkilega spenntar að spila fyrsta heimaleikinn í vetur. Æfingarnar hafa
gengið virkilega vel og liðinu hefur gengið vel á æfingum. Það er mikil
stemming í hópnum og ætla stelpurnar sér mikinn í þessum leik, sem og öðrum.
Ástand
Ástand hópsins gæti ekki verið betra, allar
heilar og hafa æft vel. Gömlurnar í
liðinu eru óðum að komast í gott stand og má með sanni segja að allir leikmenn
séu við hestaheilsu.
Líklegur
hópur á laugardag:
Markverðir
Helga Vala Jónsdóttir
Sigríður Arnfjörð Ólafsdóttir
Aðrir
leikmenn
Ingibjörg Pálmadóttir
Líney Rut Guðmundsdóttir
Birna Íris Helgadóttir
Gunnur Sveinsdóttir
Elín Hrafnsdóttir
Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir
Hafdís Inga Hinriksdóttir
Hildur Þorgeirsdóttir
Arnheiður Guðmundsdóttir
Hafdís Guðjónsdóttir
Guðrún Helga Tryggvadóttir
Sigrún Gilsdóttir
Stuðningur
FH stelpurnar þurfa á öllum ykkar stuðningi
að halda og vonast til að FH-ingar fjölmenni í Krikann kl. 16 á morgun,
laugardag. Stelpurnar eru til alls líklegar og þú, kæri lesandi, gætir verið sá
sem gerir gæfu muninn eftir leik. Liðið er breytt frá því í fyrra, veturinn er
í okkar höndum. Það er bara spurning, ætlar þú að taka þátt í þessu ævintýri
með okkur í vetur og skila báðum liðum FH á toppinn?
Með baráttu-kveðjum
Áfram
FH!!
Hafdís Inga Hinriksdóttir