"Rétt haldið á spöðunum í FH"

22.9.2008 Heiðar Arnarson

Í sumar barst meistaraflokki FH í handknattleik mikill liðsstyrkur að norðan, nánar tiltekið frá Akureyri en Ásbjörn Friðriksson, tvítugur unglingalandsliðsmaður gekk þá í raðir FH.

Þrátt fyrir ungan aldur hefur Ásbjörn leikið 3 tímabil í efstu deild, fyrst eitt ár með KA þar sem hann er uppalinn, og síðustu tvö tímabil með liði Akureyrar.



Ásbjörn Friðriksson, nýr liðsmaður FH

FH.is tók Ásbjörn tali og við byrjuðum á að spyrja hvernig það hafi komið til að hann gekk í raðir FH sem eru í Úrvalsdeild að nýju eftir smá fjarveru.

„Ég kom suður til að fara í íþróttafræði við Háskólann í Reykjavík og valdi FH af því að það var mest spennandi kosturinn. Liðið er ungt og efnilegt og leiðin liggur bara uppávið hjá klúbbnum. Hér á ég góðan möguleika á að festa mig í sessi sem handboltamaður og ef ég stend mig vel sé ég fram á mikinn spilatíma. Hér er rétt haldið á spöðunum og því gott að vera í FH.“

 

En skyldu það hafa verið mikil viðbrigði að koma til FH frá Akureyri?

„Það er óhætt að segja að munurinn er talsverður já. Mesti munurinn er náttúrulega sá að maður þarf ekki að fara eins langt í alla útileiki, allir leikirnir á höfuðborgarsvæðinu fyrir utan að fara norður. Undirbúningstímabilið var líka frábrugðið því hér spiluðum við vel á annan tug æfingaleikja í sumar og haust en fyrir norðan voru þetta kannski 5-6 æfingaleikir sem voru þá allir spilaðir um helgar. Maður æfði eins og rotta alla vikuna og spilaði svo um helgar en hérna getum við spilað leiki í miðri viku og tekið þá frekar frí um helgar,“ sagði Ásbjörn.

 

„Mér var mjög vel tekið á fyrstu æfingunum og það er mjög góður andi í liðinu, létt yfir mönnum og gaman á æfingum. Það segir sig sjálft að maður nennir ekki að vera að leggja þetta mikinn tíma í þetta ef gleðin er ekki til staðar. Menn eru staðráðnir í því að gera góða hluti á komandi tímabili og andinn er góður í liði FH,“ sagði Ásbjörn er hann var spurður út í móttökurnar og stemmninguna í liðinu.

 

Þessi knái Akureyringur er líka ánægður með þjálfara liðsins:

„Það eru nýjungar hjá Elvari og hann er ólíkur fyrri þjálfurum mínum. Hann er gífurlega vel skipulagður í æfingunum, veit nákvæmlega hvað hann vill og nýtir hverja æfingu mjög vel. Hjá honum er tilgangur með hverri æfingu, því til stuðnings er hægt að nefna að þegar við erum að hita upp markmenn þá er Elvar klár með hlaup og hreyfingar sem við æfum áður en við skjótum á markið svo við fáum eitthvað út úr því sem er bara mjög gott. Hann er líka mikið með fótavinnuæfingar og fleira sem er strax byrjað að skila sér hjá mér.“

 

Ásbjörn er á því að hann er búinn að bæta sig sem leikmaður síðan hann kom til FH:

„Ég finn aðallega mun á mér hvað varðar styrk og snerpu auk þess sem að ég er orðinn mun betri varnarmaður en ég var. Fyrir norðan lék ég litla sem enga vörn en sé fram á að spila mikið í vörn í vetur. Ég er kvikari sem skilar sér í því að maður er betri varnarmaður en áður. Ég get ekki kvartað yfir spilatíma þar sem ég er búinn að spila mjög mikið í þeim leikjum sem spiluðum á undirbúningstímabilinu, ég er búinn að vera mikið hægra megin og ef ég stend mig vel fæ ég vonandi fleiri tækifæri á miðjunni, það er undir sjálfum mér komið,“ sagði Ásbjörn, greinilega sáttur.

 

Hvað með markmiðin í vetur, bæði hjá liðinu og hjá þér persónulega?

„Fyrsta markmið er náttúrulega að halda sér uppi í deildinni en auðvitað förum við í alla leiki til þess að vinna. Við förum ekkert með það að markmiði að ná í eitthvert ákveðið magn af stigum og vona svo það besta. Við eigum séns í öll liðin þrátt fyrir að mörg þeirra séu með ógnarsterka leikmannahópa og mikla reynslu. Við höfum verið að spila ágætlega í mörgum æfingaleikjum og náð góðum úrslitum svo ég er bjartsýnn. Hvað varðar persónuleg markmið ætla ég bara að halda þeim fyrir mig.“

 

En hvar endar svo FH í deildinni í vor?

„Allavega ekki í neðstu tveimur sætunum, það er á hreinu. Það væri gaman að ná 5. sæti og ná að lenda fyrir ofan eitthvað af þessum liðum sem talin eru sterkari en við s.s. Fram, Stjörnunni og HK. Svo verður hægt að byggja ofan á þetta lið í framtíðinni,“ sagði Ásbjörn að lokum, bjartsýnn á veturinn enda engin ástæða til annars.

 

FH.is þakkar Ásbirni fyrir gott viðtal og óskar honum og FH-liðinu góðs gengis í vetur.

 


 


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?