Akureyri 26-31 FH - Umfjöllun

20.9.2008 Heiðar Arnarson


26-31

Höllin, Akureyri, fimmtudaginn 18. september 2008 kl 19:30


Handboltamenn úr FH skelltu sér í flugvél til Akureyrar síðdegis í gær til að keppa fyrsta leik sinn í N1 deild karla þennan veturinn. Þrátt fyrir ókyrrð í lofti og hjartað  í buxum eftir strembna flugferð tóku FHingar á honum stóra sínum og sigruðu Akureyringa með 5 marka mun, 26-31 eftir jafnan baráttuleik.



Óli var maður leiksins í gær

Fyrri hálfleikur

FHingar mættu til Akureyrar með sjálfstraustið í lagi í gær og eftir 7 mínútna leik var staðan 1-5 okkur í vil. Menn voru að spila sprækan sóknarleik, létu boltann vinna vel, völdu góð færi og voru áræðnir í sínum aðgerðum. Varnarleikur var góður með Sigga Ágústs  við stjórnvölinn og Óla Guðmunds sem indíana fyrir framan í 3-2-1 vörninni . Akureyringar komust lítt áleiðis því hægur sóknarleikur þeirra var brotinn á bak aftur. Baráttan var mun meiri okkar megin.

Akureyringar sóttu þó í sig veðrið. Jónatan Magnússon fór að láta til sín taka og ef hann skoraði ekki spilaði hann vel upp á samherja sína og nýtti vítin sem hann tók vel. Eftir 22ja mínútna leik jöfnuðu Akureyringar í 9-9 og í járnum hélst leikurinn fram að hálfleik. Akureyri var yfir í hálfleik 14-13. Atkvæðamestir hjá FH voru Aron Pálma og Óli Guðmunds sem sýndu góða spretti ásamt því að gamla kempan Maggi Sigmunds varði vel.

Seinni hálfleikur

Seinni hálfleikur var áfram í járnum. Akureyri voru með yfirhöndina í leiknum en voru þó aldrei meira en 1-2 mörkum yfir. Þess á milli jöfnuðu FHingar metin. Óli og Aron héldu áfram að vera atkvæðamiklir  í sókn en varnarleikurinn hefði mátt vera skipulagðari og aggressívari lungan úr seinni hálfleik þar sem menn voru að hleypa Akureyringum ákjósanleg færi og tóku hreinlega ekki nógu mikið á þeim. Það átti eftir að breytast. Þrautseigjan sagði til sín, form og þrek hafði mikið að segja á lokasprettinum og í stöðunni 26-25 fyrir Akureyri og 5 mínútur eftir varð vendipunktur í leiknum. Akureyri sprungu á limminu. Danni sem kominn var í markið varði tvo mikilvæga bolta ásamt því að Akureyri missa boltann.  FH komust í 26-28. Þá tóku norðanmenn leikhlé en það dugði ekki til og strákarnir okkar keyrðu yfir þreytta Akureyringa og unnu 26-31.


Danni tók mikilvæga bolta í lokin

Niðurstaða

 Frábær endasprettur og gífurlegur karakter sem liðið sýndi í gær. Það var frábært að sjá hve liðið er samstillt og hafði mikla trú á því sem það var að gera. Frábær sigur og frábært að byrja mótið á þennan hátt. Liðið hélt í við Akureyri , leikmenn voru þolinmóðir, unnu sína vinnu og sitt skipulag vel og það skilaði sér á endasprettinum. Óli Guðmunds átti góðan leik í sókn sem vörn. Aron var atkvæðamikill og skoraði mjög mikilvæg mörk, oft upp úr engu. Ásbirni , nýjum í hópnum, ber að hrósa líka en hann var áræðinn sérstaklega í fyrri hálfleik. Drengurinn mætir á heimaslóðir með pressu á bakinu en komst vel frá sínu. Markmenn áttu fínan leik en í sameiningu vörðu Magnús og Daníel 20 bolta í leiknum.

Mörkin skoruðu(mörk/skot):

Ólafur Guðmundsson    9/12

Aron Pálmarsson              7/11

Guðmundur Pedersen  4/7

Ásbjörn Friðriksson         4/7

Ari Þorgeirsson                 3/4

Sigurður Ágústsson         2/2

Hjörtur Hinriksson           1/1

Jón Helgi Jónsson             1/1

 

Varðir boltar(boltar/mörk fengin á sig)

Magnús Sigmundsson     11/14

Daníel Andrésson     9/12


Staðan

Nr. Félag Leik U J T Mörk Nett Stig
1. FH 1 1 0 0 31:26 5 2
2. Valur 1 1 0 0 34:29 5 2
3. Fram
0 0 0 0:0 0 0
4. Haukar
0 0 0 0:0 0 0
5. HK
0 0 0 0:0 0 0
6. Stjarnan
0 0 0 0:0 0 0
7. Akureyri 1 0 0 1 26:31 -5 0
8. Víkingur 1 0 0 1 29:34 -5 0

Aðrir leikir og næstu

Fim. 18.sep.2008 19.30 Höllin Akureyri Akureyri - FH 26-31 (14-13)
Fim. 18.sep.2008 19.30 Víkin Víkingur - Valur 29-34 (15-14)

Lau. 20.sep.2008 16.00 Digranes HK - Fram

Lau. 20.sep.2008 16.00 Ásvellir Haukar - Stjarnan


Fim. 25.sep.2008 19.30 Framhús Fram - Víkingur

Fim. 25.sep.2008 19.30 Kaplakriki FH - HK


Lau. 27.sep.2008 16.00 Ásvellir Haukar - Akureyri

Lau. 27.sep.2008 16.00 Mýrin Stjarnan - Valur

 

Stuðningur

Strákarnir fóru á Akureyri með stuðning Hafnfirðinga í anda. FH hjartað spilaði stóran þátt í sigrinum í gær. Hafnfirðingar eru hvattir til að sýna stuðning sinn í verki og mæta á fyrsta heimaleikinn í vetur sem er á fimmtudaginn nk gegn HK.

Áfram FH!

Heiðar Örn Arnarson



Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?