Gleðin og ánægjan mun geisla af okkur á vellinum

19.9.2008 Heiðar Arnarson
FH stúlkur hefja leik í N1 deild kvenna á morgun, laugardag. Leikið verður við Gróttu kl 16 úti á nesi. Stelpurnar eru búnar að æfa eins og berserkir í allt sumar og er gífurleg tilhlökkun í þeirra hópi. Af þessu tilefni tók Hilmir Heiðar Lundevik sérlegur blaðamaður kynningarmálaráðs handknattleiksdeildar, Hafdísi Hinriksdóttur tali á léttu nótunum fyrir þennan mikilvæga leik.

 

Sæl Hafdís, hvernig er svo að vera komin aftur í Krikann og maka á sig harpixinu?

Það er bara alveg frábært, virkilega gaman að vera komin aftur á heimaslóðir, Kaplakriki er alltaf sá staður sem mér þykir vænst um af þessum íþróttahúsum og hér á ég svo sannarlega heima.

 

Hvernig hafa æfingar liðsins gengið í sumar og haust?

Æfingarnar hafa gengið mjög vel, við erum búnar að vera duglegar að æfa og höfum lagt mikið á okkur. Ég var undir handleiðslu Silju Úlfarsdóttur í sumar og það var alveg frábært, hrikalega klár þjálfari hún Silja og kann ég henni bestu þakkir fyrir að koma mér í stand á met-tíma.

Hópurinn er vel samstilltur, það er frábær mórall og virkilega skemmtilegt hjá okkur á æfingum og utan þeirra.

 

Það er náttúrulega alkunna að leikmenn Meistaraflokks kvenna í FH eru miklir stuðboltar. Mun sú stemmning ná að skila sér út á völlinn í vetur.

Jú ég held að það sé nú engin spurning, við amk ætlum okkur að nota þennan vetur til að sanna okkur og sýna að við erum til alls líklegar. Vonandi mun sú gleði og ánægja sem hefur fylgt okkur í sumar og núna í vor, geisla af okkur úti á vellinum.

 

Hvernig er standið á þér líkamlega eftir þessa pásu sem þú tókst frá handboltanum?

Ég er í töluvert betra sandi en ég hef verið núna í nokkur ár. Eins og ég sagði þá æfði ég stíft í sumar hjá henni Silju og hjálpaði hún mér virkilega mikið að koma á mig vöðvum og ná snerpunni og því öllu aftur. Það hafa svona smávægileg meiðsli sett smá strik í reikninginn en þau eru úr sögunni núna, þannig að ég mun mæta í góðu standi í fyrsta leik. Og hreinlega get ekki beðið.

 

Þið hljótið að hafa sett stefnuna hærra en 7. sætið sem ykkur var spáð fyrir mót?

Já auðvitað, við vitum hvað í okkur býr og ætlum okkur að sýna það að við erum betri en margir trúa. Þetta er auðvitað svolítið í okkar höndum, við erum með marga frábæra leikmenn og höfum alla burði að stríða topp liðunum í vetur, og að sjálfsögðu munum við mæta blóðþyrstar í alla leiki í vetur. En fyrst og fremst ætlum við að hafa gaman og njóta þess sem við erum að gera, ég vona bara að sú gleði skili sér uppí palla og liðinu ofar en 7 sætinu.

 

Eru einhver skilaboð sem þú vilt koma til FH-inga?

Ég vil bara hvetja alla að mæta og hvetja okkur og strákana í vetur. Þetta verður án efa skemmtilegur vetur og bæði lið vel mönnuð. Ég hef bullandi trú á báðum liðum og held að þetta verði ekkert nema frábært.

 

Koma svo stúlkur!

Áfram FH!!!


Framkvæmdir í Kaplakrika

Eins og flestir iðkendur, foreldrar og almennir FH-ingar hafa tekið eftir er nóg um að vera á Kaplakrikasvæðinu þessa dagana. Áður en langt um líður komum við til með að eiga eitt allra glæsilegasta íþróttasvæði landsins. En á meðan framkvæmdum stendur þarf að sýna þolinmæði og fara varlega um svæðið. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina og aðgengi á svæðinu.

Myndasafn

Könnun

Ætlar þú að mæta á æfingar hjá Hlaupahóp FH