Blásið til sóknar - Skyggnst inn í veturinn

17.9.2008 Heiðar Arnarson

Saga handknattleiks í FH er stórbrotin saga glæsts árangurs.  Saga glæsilegra afreksmanna.  Saga afreka og aðdáunar.  Saga sem hvaða lið sem er væri stolt af.  En það er ekkert sjálfgefið í þessum efnum og því hefur FH kynnst allharkalega.  Handknattleiksdeild FH hefur á undanförnum árum gengið í gegnum ýmsar þrengingar sem hamlað hafa starfi og framþróun deildarinnar.  Er þar fyrst og fremst um að kenna afar erfiðri skuldastöðu auk þess sem árangur meistaraflokka félagsins hefur ekki verið sem skyldi og náði nýjum lægðum með falli karlaliðsins í 2. deild fyrir 2 árum.

En fátt er svo með öllu illt að ei boði gott var einhvern tímann sagt og þetta varð til þess að menn innan félagsins settust niður og sögðu hingað og ekki lengra.  Í gang fór allsherjar naflaskoðun, bæði á leikmannamálum karla og kvenna og eins á innra starfi og stjórnun deildarinnar.

Þessi tveggja ára fjarvera karlaliðsins frá keppni þeirra bestu hefur verið notuð til að byggja upp nýtt og bráðefnilegt lið sem byggt er upp af ungum drengjum sem aldir eru upp hjá félaginu.  Flestir þeirra eru unglingalandsliðsmenn og afar efnilegir.  Þeim til halds og trausts eru svo eldri og reyndari leikmenn, FH-ingar sem komnir eru að nýju til félagsins til að taka þátt í spennandi uppbyggingu og ljúka ferlinum á heimaslóðum.

Að sama skapi er kvennalið FH einnig byggt upp af uppöldum, ungum stúlkum sem margar hverjar eru í yngri landsliðum og félagið væntir mikils af.

FH hefur á að skipa afar færum þjálfurum fyrir þessi lið, þeim Guðmundi Karlssyni og Elvari Erlingssyni.  Báðir afar metnaðarfullir fyrir hönd félagsins og samstíga í því að horfa til framtíðar varðandi uppbyggingu liðanna.  Slíkt er ómetanlegt og mun skila sér á næstu árum.

Núverandi stjórn Handknattleiksdeildar FH er stórhuga og hefur tekið allt starf deildarinnar til endurskoðunar með það að markmiði að gera það skilvirkara og sýnilegra.  Það hefur verið fækkað í stjórn sem í dag er skipuð aðeins 5 mönnum í stað 11 áður.  Á móti hafa verið stofnuð nokkur svokölluð vinnuráð sem skipuð eru 3-5 mönnum hvert og bera ábyrgð á afmörkuðum hlutum starfseminnar.  Um er að ræða fjármálaráð, sem sér um fjáraflanir, samskipti við lánadrottna o.þ.h., kynningarmálaráð, sem sér um öll mál er snúa að ímynd deildarinnar, samskipti við fjölmiðla, útgáfumál o.fl., leikjaráð sem stjórnar öllu er lýtur að umgjörð leikja, meistaraflokksráð karla og kvenna, en það mun sjá um að halda utanum leikmenn liðanna, aðbúnað þeirra og samskipti við stjórn.  Með þessu fyrirkomulagi eru fleiri sem koma að rekstri og stjórn deildarinnar og ábyrgð dreift á fleiri hendur.  Vinna þessara ráða er komin í fullan gang og hefur sumarið verið notað til fundahalda og hugmyndavinnu varðandi allt það er að ráðunum snýr.  T.d. verður umgjörð leikja í Krikanum stórbætt og vonandi sjást merki um það strax í fyrstu leikjum liðanna.  Þá hefur kynningarmálaráð þegar lokið sínu fyrsta verkefni sem var að láta taka „alvöru“ myndir af leikmönnum meistaraflokkanna, myndir teknar af fagmönnum og er óhætt að segja að mjög vel hafi tekist til.

Í lok greinar er hlekkur þar sem sjá má þann afrakstur.

Einn liður í bættum aðbúnaði leikmanna er að deildin hefur ráðið til sín tvo afar færa þrek- og styrktarþjálfara til að vera þjálfurum innan handar við þann þátt þjálfunar.  Þetta eru þau Hreiðar Gíslason, íþróttakennari, einkaþjálfari og fyrrv. frjálsíþróttamaður, og svo hin eina og sanna Silja Úlfarsdóttir, sem auðvitað þarf ekki að kynna.  Þau munu einnig taka að sér þennan þátt hjá unglingaflokkum félagsins.  Með þessu geta þjálfarar flokkanna einbeitt sér í meira mæli að handboltalegum þætti þjálfunar.  Væntir stjórnin mikils af þessu samstarfi.

Þá hefur stjórnin ráðið framkvæmdastjóra í fullt starf enda ekki vanþörf á í stóru félagi.  Í það starf valdist  „góðkunningi“ félagsins, Einar Andri Einarsson.  Kemur hann til með að sjá um daglegt amstur sem tilheyrir stórri deild, fjáraflanir, samskipti við HSÍ, Hafnarfjarðarbæ, styrktaraðila o.fl. auk þess að koma að stefnumótun deildarinnar ásamt stjórn og vinnuráðum.  Hann verður einnig tengiliður milli vinnuráðanna og stjórnar deildarinnar.

FH ætlar sér stóra hluti í nánustu framtíð, það er ljóst.  En það er ekki hægt hjálparlaust og er alltaf háð stuðningi velunnara félagsins.  Við erum svo lánsöm að hafa átt góða stuðningsaðila í gegnum tíðina og nú nýlega var endurnýjaður stór styrktarsamningur við Byr sparisjóð (áður Sparisjóður Hafnarfjarðar) sem hefur verið okkar aðal bakhjarl svo lengi sem elstu menn muna.  Einnig var gerður stór samningur við Jako varðandi búninga og munu meistaraflokkarnir leika í búningum frá Jako í vetur.  Auk þess hafa verið gerðir nokkrir aðrir samningar sem við erum mjög ánægð með.  Öllum þessum fyrirtækjum færum við miklar þakkir fyrir að taka þátt í þessu með okkur og vonandi getum við endurgoldið traust þeirra á okkur með góðum árangri á næstu árum.

Þrátt fyrir þrengingar undanfarinna ára hefur yngri flokka starf FH ávallt verið í miklum blóma og í raun til fyrirmyndar.  Flestir flokkar hafa verið í baráttu um titla ár eftir ár og aldrei dettur úr ár án þess að einhverjir titlar náist í hús.  Þarna eru í raun mestu verðmæti félagsins því efniviðurinn er gríðarlega mikill, bæði hjá drengjum og stúlkum, og ljóst að verði haldið vel á spilum þarf FH ekki að kvíða framtíðinni.

Miklar framkvæmdir standa nú yfir í Kaplakrikanum, framkvæmdir sem lýsa best þeim metnaði sem ávallt hefur ríkt innan FH.  Að þessum framkvæmdum loknum verður þetta án nokkurs vafa glæsilegasta íþróttasvæði landsins.  Jafnframt mun íþróttahúsið fá andlitslyftingu sem og allir búningsklefar og önnur aðstaða.  Úr íþróttasalnum mun verða innangengt í nýjan og glæsilega lyftingaaðstöðu og einnig í stórglæsilegt frjálsíþróttahús með hlaupabrautum og ætti þá að verða lokið árlegum útihlaupum í snjó og slyddu og slæmri færð.

Af öllu ofansögðu má sjá að það er mikið um að vera hjá FH-ingum.  Það er hátt stefnt, samstaðan í félaginu er gríðarlega mikil og allir staðráðnir í því að koma handboltanum aftur á þann stall sem hann á heima.  Á toppinn.  En það er stigið eitt skref í einu og raunsæi og skynsemi látin ráða för.  Deildin hefur ekki bolmagn til frekari skuldsetningar og því er afar mikilvægt að rækta garðinn heima fyrir og byggja upp lið innan frá.  Markmiðið er að koma félaginu í fremstu röð á næstu árum og miðast allt starf deildarinnar við það markmið.  Fjöldi manns er tilbúið til að taka þátt í þessu með okkur og vinna að afmörkuðum verkefnum.  Sérstaklega á þetta við um foreldrastarf í yngri flokkum sem er orðið mjög öflugt.

Það má að lokum draga fram gamlan frasa og yfirfæra á okkur FH-inga og segja..................“við höfum mjög einfaldan smekk.  Við viljum aðeins það besta“ 

Við viljum vera bestir.  Við ætlum okkur að verða bestir og við hvetjum alla til að taka þátt í því með okkur, áhorfendur, styrktaraðila, eldri FH-inga, foreldra og alla sem áhuga hafa á að byggja upp félagið og ná því aftur í hóp bestu félaga landsins.

Áfram FH.

Kynningarmálaráð handknattleiksdeildar FH



Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?