Ný lið - Nýjir búningar - Ný áskorun
15.9.2008

Einar Andri Einarsson framkvæmdastjóri hnkd. FH og Jóhann Guðjónsson frá JAKO handsala samning milli aðilanna tveggja. Með á myndinni eru þau Hafdís Hinriksdóttir, Hildur Þorgeirsdóttir, Heiðar Örn Arnarson og Aron Pálmarsson leikmenn meistaraflokka kvenna og karla í splunkunýjum JAKO FHbúningum. Frá vinstri: Hafdís, Hildur, Einar, Jóhann, Heiðar og Aron.


Meistaraflokkur karla spilar í vetur í Úrvalsdeild eftir nokkurra ára fjarveru. FH-ingar eiga því lið í efstu deild í bæði karla- og kvennaflokki og þannig á það að vera enda er FH eitt sigursælasta lið frá upphafi í handknattleik á Íslandi og hefur alið af sér marga frábæra leikmenn.
Yngri flokka starfið hefur í gegnum tíðina verið framúrskarandi og nýtur félagið afrakstur þess nú um stundir þar sem karla- og kvennalið FH eru nánast einvörðungu skipuð uppöldum FH-ingum.
FH-ingar munu í vetur klæðast fallegum búningum frá JAKO þar sem svarthvíti búningurinn verður áfram okkar aðalsmerki. Jóhann Guðjónsson frá Namo ehf., umboðsaðila fyrir JAKO á Íslandi, og Einar Andri Einarsson framkvæmdastjóri hnkd. FH sátu fyrir svörum við handsal samnings milli FH og JAKO.
FH.is byrjaði á að spyrja Jóhann hvernig það hafi komið til að FH-ingar klæðist JAKO búningum á komandi tímabili. Sjálfsagt hafa þeir heyrt að gott orðspor færi af þjónustunni, við önnur félög í handbolta og fljótri afgreiðslu sem er styrkur okkar, kannski umfram flesta ef ekki alla aðra aðila í þessum geira, svaraði Jóhann til.
Flestir sem fylgst hafa með íþróttum hafa eflaust séð þetta merki, JAKO, en hvaðan er þetta merki og hvernig stenst það öðrum þekktum íþróttavörumerkjum snúning? Þetta er Þýskt vörumerki sem verður 20 ára á næsta ári. Þetta er virkilega gott fyrirtæki og stöndugt, ennfremur hafa þeir lagt mikið uppúr snöggri og góðri þjónustu og lagera þar af leiðandi mjög mikið og til að mynda þegar við fáum pöntum getum við afgreitt frá þeim yfir 98% af því sem við pöntum með þeirri sendingu. Ennfremur getum við skoðað hvort vörurnar eru til á lager hjá þeim bæði stærðir, litir og magn og þar af leiðandi getur við upplýst okkar viðskiptavini hvort varan sé fáanleg og ennfremur tímasett afgreiðslufrestinn, sem getur verið allt niður í 2 daga ef þarf.
Þá segir Jóhann að fyrirtækið eigi í viðskiptum um allt land og í öllum íþróttagreinum. Í handbolta eru það Stjarnan, Afturelding, ÍR, Jumboys, Höttur og Hörður Ísafirði ásamt FH. Ennfremur kaupa flest öll lið af okkur Jako handbolta, sem hafa reynst afar góðir og á góðu verði. Ennfremur seljum við til margra liða harpix, sem við flytjum inn frá Noregi. Hvað varðar aðrar íþróttgreinar eigum við viðskipti nánast í öllum bæjarfélögum landsins.
En hvaða gildi hefur það fyrir JAKO að FH-ingar munu spila í búningum fyrirtækisins? Vonandi mjög jákvæð því þeim mun fleiri sem spila í JAKO-búningum, þá verður merkið meira áberandi sem sýnir að fólki líkar vel við vörurnar, sagði Jóhann og bætti við að JAKO þjónusti nánast allar íþróttagreinar s.s. fótbolta, blak, frjálsar íþróttir, körfubolta, golf og fleira en til gamans má geta þess að íslensku körfuknattleikslandsliðin spila öll í JAKO-búningum.
Aðspurður um lengd samningsins millum FH og JAKO og í hverju hann fælist svaraði Jóhann þessu til: Samningurinn er trúnaðarmál milli aðila en gengur í megindráttum út á það að báðir aðilar hafi hag af þessum samningi til lengri tíma litið.
Við báðum Jóhann að kíkja í kristalskúluna og spá fyrir um gengi liðanna í vetur. Karlalið FH er að koma upp um deild og fyrsta árið er kannski ávallt markmiðið að halda sæti sínu í deildinni. Það er gott markmið og ef það tekst, sem ég hef fulla trú á, er framtíðin björt. Vissulega er hefðin til staðar hjá félaginu og vinnur það á jákvæðan hátt með ykkur. Varðandi stelpurnar að þá höfðu þær á brattann að sækja í fyrra og vonandi verður tímabilið í ár betra en það síðasta.
Þá er það lokaspurningin Jóhann sem brennur á öllum FH-ingum: Er langt að bíða að FH-ingar fagni Íslandsmeistaratitli í JAKO-búningi? Ég hugsa að það verði á vordögum 2010.
Einar Andri Einarsson nýr framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar var einnig tekinn tali við handsal samnings. Aðspurður um hvernig samningur við JAKO kom til sagði Einar þetta: Undir lok þessa tímabils var samningi okkar við Adidas að ljúka og þá fórum við af stað til þess að kanna hvaða fyrirtæki hefðu áhuga á að fá FH í sína línu. Jako sýndi það strax að þeir vildu fá okkur og þegar við fórum að skoða vöruna sem þeir höfðu upp á að bjóða þá var þetta aldrei spurning. Samstarfið við þá síðan hefur verið frábært og við erum mjög stoltir að því að leikmenn okkar skuli vera í Jako fatnaði. Segir Einar sáttur við sinn hlut.
En hvaða gildi hefur það fyrir FH að spila í búningum frá JAKO og hvaða væntingar gerir félagið til samningsins? Fyrst og fremst erum við með frábæran samstarfsaðila sem vill hjálpa til við að félagið nái árangri. Jói og félagar í JAKO gera sömu kröfur og við um að liðið líti vel út og þau styðja dyggilega við bakið á okkur til að svo megi verða. Við væntum þess að eiga farsælt samstarf við Jako enda er varan og þjónustan sem þeir hafa upp á að bjóða fyrsta flokks.
Aðspurður um gengi FH liðsins í vetur og væntingar til liðsins hafði Einar þetta að segja: Persónulega er ég mjög bjartsýnn á veturinn. Kvennaliðið okkar hefur tekið ótrúlegum framförum á einu ári undir stjórn Guðmundar Karlssonar. Fyrir rúmu ári síðan þurftum við að draga kvennaliðið úr keppni á æfingamóti vegna manneklu og þátttaka á Íslandsmótinu ekki sjálfgefin. Í dag er raunin önnur, það eru um 20 stelpur að æfa og búnar að standa sig frábærlega í sumar. Hafa æft af miklum krafti og tekið miklum framförum eins og sást á Reykjavíkurmótinu nú á dögunum. Við erum búin að fá góðan markmann frá Stjörnunni, hana Helgu Völu, auk þess sem við höfum endurheimt Hafdísi Hinriks og Sigrún Gils sem munu styrkja liðið mikið.
Auk þess eru mjög efnilegar ungar stelpur komnar inn í hópinn hjá okkur þannig að hópurinn er orðinn mun þéttari. Við erum ennþá að leita að frekari liðstyrk og vonandi tekst okkur það því að lengi má gott bæta. Raunhæf markmið eru að gera betur en í fyrra og styrkja enn frekar þann grunn sem við erum að byggja í kvennnaboltanum í FH. Markmiðið er að koma FH í fremstu röð í kvennaboltanum á allra næstu árum.
Karlaliðið er að fara í gríðarlega erfiða baráttu í vetur. Liðið er líklega eitt það efnilegasta sem sést hefur í íslenskum handbolta hin síðari ár en það er ljóst að baráttan verður erfið í vetur þar sem að úrvalsdeildin er gríðarlega öflug þetta árið. Auk þess er FH liðið einstakt í bolta íþróttum á Íslandi í ljósi þess að það er nánast eingöngu byggt á heimamönnum. Við höfum þó náð að styrkja liðið töluvert með yngri og eldri leikmönnum.
Tveir reynslu boltar snúa aftur í Krikann eftir tveggja ára frí. Þetta eru þeir Magnús Sigmundsson og Hjörtur Hinriksson sem munu eflaust koma til með að styrkja ungu strákana í verkefnunum í vetur. Auk þeirra höfum við fengið tvo unga norðanmenn þá Ásbjörn Stefánsson og Arnar Sveinbjörnsson sem báðir eru tvítugir. Ásbjörn er fastamaður í 20 ára landsliði Íslands.
Raunhæf markmið í vetur eru að berjast fyrir lífi félagsins í efstu deild. Það er verðugt verkefni eins og staðan er í dag. Ég er hins vegar alveg viss um að það tekst. Strákarnir eru þrátt fyrir ungan aldur gríðarlega reyndir og eru ekki að fara að sætta sig við neitt annað en sigur í hverjum leik. Það er hins vegar ljóst að til þess að strákarnir nái sýnu besta fram þarf stuðningur FH - inga að vera góður og þess vegna vil ég skora á alla að FH - inga að fjölmenna á völlinn í vetur. segir Einar Andri bjartsýnn og ljóst að mikill hugur er í framkvæmdastjóranum fyrir tímabilið í vetur.
Það er stutt að bíða fyrir spennta FH-inga að sjá stelpurnar og strákana hefja tímabilið í nýjum treyjum. Það er því ekki úr vegi að hvetja FH-inga nær og fjær að standa þétt á bakvið lið okkar, mæta í Krikann og sýna stuðning í verki.
Áfram FH!
Hilmir Heiðar Lundevik og Heiðar Örn Arnarson

