Flokkur (fæðingarár) Verð – Allt tímabilið
3. flokkur karla (2005-2007) kr. 126,000
3. flokkur kvenna (2005-2007) kr. 126,000
4. flokkur karla (2008-2009) kr. 123,000
4. flokkur kvenna (2008-2009) kr. 123,000
5. flokkur karla (2010-2011) kr. 116,000
5. flokkur kvenna (2010-2011) kr. 116,000
6. flokkur karla (2012-2013) kr. 105,000
6. flokkur kvenna (2012-2013) kr. 105,000
7. flokkur karla (2014-2015) kr. 91,000
7. flokkur kvenna (201-2015) kr. 91,000
8. flokkur karla (2016-2017) kr. 79,000
8. flokkur kvenna (2016-2017) kr. 79,000
9. flokkur (Leikskóla aldur) kr. 35,000

Upplýsingar:

Þeir iðkendur sem eru að byrja í handbolta hjá okkur þurfa að hafa samband við skrifstofa@fh.is til að fá aðgang að Sportabler appinu.

Skipta má greiðslum niður á allt að 9-10 mánuði.

Mikilvægt að setja inn og/eða yfirfara allar upplýsingar um foreldra/forráðamenn ss. símanúmer, netföng ofl. svo öll samskipti geti gengið sem best.

Til að fá aðstoð við skráningu er best að spyrja á spjallinu á Sportabler eða senda póst á skrifstofa@fh.is

Barna- og unglingaráð FH hvetur foreldra/forráðamenn eindregið til að kynna sér reglur sveitarfélaga um frístundastyrk/hvatapeninga. Hægt er að nýta styrkinn strax við skráningu og því er best að ljúka skráningu fyrr en síðar. Fjárhæð styrksins er mismunandi milli sveitarfélaga.

Reglur Hafnarfjarðarbæjar má finna hér.

Greiðsla æfingagjalda er forsenda/skilyrði fyrir þátttöku á æfingum hjá FH og þeim mótum sem iðkendur fara á fyrir hönd félagsins. Þjálfarar skrá mætingar á hverja æfingu. Iðkendur með ógreidd æfingagjöld fá ekki að keppa fyrir hönd FH.

Mikilvægt er að hafa samband við Barna- og unglingaráð FH ef um fjárhagserfiðleika er að ræða og finna úrlausn sem leiðir til áframhaldandi þátttöku iðkanda.

Reglur varðandi endurgreiðslu æfingagjalda:

Óski iðkandi að hætta æfingum verður úrsögn að berast með tölvupósti á netfangið skrifstofa@fh.is Það er á ábyrgð forráðamanna að tilkynna úrsögn; tilkynning til þjálfara iðkendans er ekki tekin gild. Sé iðkandi skráður allt árið en hætti síðan að æfa, fást æfingagjöld endurgreidd hlutfallslega (1/3 eða 2/3) af fullu árgjaldi. Greiða þarf æfingagjöld út yfirstandandi önn.

Dæmi: Iðkandi í 5. flokki er skráður allt árið en hættir að æfa í nóvember. Viðkomandi þarf þá að greiða til áramóta eða 48.000, en fær niðurfelld æfingagjöld eftir það.

Til að stöðva greiðslu frístundastyrks til FH þarf að senda tölvupóst á skrifstofa@fh.is

Ekki er heimilt að endurgreiða það sem greitt hefur verið með frístundastyrk Hafnarfjarðarbæjar.