Námskeiðalýsing

Í sumar verða haldin frjálsíþrótta- og heilsunámskeið á vegum frjálsíþróttadeildar FH.

Námskeiðin verða haldin á frjálsíþróttavelli félagsins í Kaplakrika.

Námskeiðin eru fyrir 6-11 ára (fædd 1999-2005)
Tími: Mánudaga-Föstudaga kl. 13:00-16:00.
Boðið er upp á gæslu kl. 16:00-17:00.

Á námskeiðunum verður farið almennt yfir mataræði, hollustu og hreyfingu. Við kynnum ólíkar greinar frjálsíþrótta og förum í skemmtilega leiki. Í lok hvers námskeiðs verður uppskeruhátíð og allir fá viðurkenningarskjal. Á hverju námskeiði verður haldið frjálsíþróttamót þar sem börnin fá að spreyta sig ásamt því að boðið verður upp á Stórmót Gogga galvaska í Mosfellsbæ dagana 26. – 27. júní og Gaflarann 7. – 8. ágúst. Börnin eiga að koma með nesti en lögð er áhersla á að þau komi með hollan mat svo sem ávexti, grænmeti, mjólkurmat (skyr) og holla drykki. Námskeiðin verða haldin:
10.– 25. júní
a 28. júní – 9. júlí
3. – 13. ágúst

Skráning fer fram á heimasíðu félagsins http://www.fh.is/. Einnig er hægt að skrá börnin á staðnum í upphafi hvers námskeiðs. Nánari upplýsingar um námskeiðin eru á www.fh.is og hjá Þóreyju Eddu Elísdóttur sem hefur yfirumsjón með námskeiðunum. Þórey Edda Elísdóttir hefur yfirumsjón með frjálsíþrótta- og heilsunámskeiðum FH.
Þórey Edda Elísdóttir
Sími: 895 2705.
Netfang: the@mi.is

Hægt er að skrá börnin hér á heimasíðu félagsins

Framkvæmdir í Kaplakrika

Eins og flestir iðkendur, foreldrar og almennir FH-ingar hafa tekið eftir er nóg um að vera á Kaplakrikasvæðinu þessa dagana. Áður en langt um líður komum við til með að eiga eitt allra glæsilegasta íþróttasvæði landsins. En á meðan framkvæmdum stendur þarf að sýna þolinmæði og fara varlega um svæðið. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina og aðgengi á svæðinu.

Myndasafn

Könnun

Ætlar þú að mæta á æfingar hjá Hlaupahóp FH