Viðurkenningar frá Frjálsíþróttasambandi Íslands

9.3.2010 Silja Úlfars

FH fékk margar viðurkenningar á þingi Frjálsíþróttasambands Íslands.

Íþróttaafrek á Meistaramóti Íslands 2009
Bergur Ingi Pétursson og Óðinn Björn Þorsteinsson, báðir úr FH náðu 1018 stigum.

 Bergur Ingi fyrir 69,78 m í sleggjukasti og Óðinn Björn fyrir 18,30 m í kúluvarpi.

Bestu afrek árins 2009 Óvæntasta afrekið:
Kristinn Torfason, FH. Hann stökk 7,54 m í langstökki í Gautaborg 27. júní, sem er 3. besti árangur í greininni frá upphafi.

Mestu framfarir:
Örn Davíðsson, FH kastaði spjótinu 70,86 m á Norðurlandameistaramóti unglinga í Vaasa í Finnlandi 23. ágúst. Með þessu kasti bætt hann fyrri árangur sinn um sjö metra.

Besta spretthlaupsafrek ársins (100 og 200m):
Emma Ania FH. Hún keppti í Bikarkeppni FRÍ fyrir FH og sigraði í bæði 100 og 200 m hlaupum. Hún náði besta árangri keppanda fyrir íslenskt félag á árinu með 24,61 sek í bikarnum sem gefa 1032 stig, skv. töflu IAAF. Hún fékk afhentan bikar sem Karlakórinn Fóstbræður gáfu til minningar um Jón Halldórsson hlaupara og kórfélaga.

 Frjálsíþróttakarl ársins:
Bergur Ingi Pétursson, FH. Hann bætti íslandsmet sitt í sleggjuasti í 74,48 m  5. maí á síðasta ári.

Glæsilegur árangur Frjálsíþróttafólks okkar!
Til hamingju

 


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?