Áhersluatriði yngri flokka
Hér fyrir neðan er yfirlit yfir þær megin áherslur sem þjálfunarstefna knattspyrnudeildar FH gengur út frá að iðkendur hafi tileinkað sér í tækni-, leikfræði- og líkamlegum atriðum í hverju flokki.
8. flokkur
Markmið 8. flokks FH er að stuðla að því að fyrsta upplifun barnanna af íþróttinni sé jákvæð. Lítil áhersla er lögð á keppni en þeim mun meiri áhersla er lögð á að iðkendur taki knattspyrnulegum og félagslegum framförum. Kenndar eru grunnreglur í knattspyrnu og reynt að efla þrek og styrk iðkenda og einnig liðleika þeirra. Hjá FH er börnunum kennt að bera virðingu fyrir þjálfurum, samherjum og dómurum og síðast en ekki síst að bera virðingu fyrir félaginu sjálfu. Lög er áhersla á að allir iðkendur fái þjálfun í samræmi við færni hvers og eins. Umfram allt annað er lögð áhersla á leikgleði og ánægju barnanna.
Á æfingum hjá 8. flokki læra börnin aga og að fylgja hinu hefðbundna skipulagi æfinga hjá félaginu þ.e. upphitun, aðalæfing og leikræn æfing. Í 8. flokki er reynt að hafa æfingarnar sem fjölbreyttastar, farið er í leiki með og án bolta, ásamt því að farið er í einfaldar tækniæfingar og spil.
Markmið leikja með og án bolta er að efla hreyfigetu barnanna og jafnframt að hafa gaman.
Þegar farið er í tækniæfingar er markmiðið að börnin kynnist boltanum og læri grunntækni knattspyrnunnar s.s. innanfótarspyrnur, knattrak, skalla o.s.frv.
Í lok hverrar æfingar er farið í leikræna æfingu þar sem reynt er að hafa fáa í liði svo allir fái að snerta boltann sem oftast, því það er jú það sem börnin vilja - að vera með.
Tækni
Knattæfingar
Knattrak á ýmsa vegu, stefnubreytingar
Knattsendingar - innanfótarspyrna
Knattmóttaka - innanfótar, il, læri
Wiel Coerver - grunntækni
Sköllun úr kyrrstöðu
Leikfræði
Markskot - skot úr kyrrstöðu og eftir knattrak
Leikrænir leikir
Leikæfingar, fáir í hverju liði, með og án markmanns
Helstu leikreglur
7. flokkur
Áhersla er lögð á grunntækni í fótbolta – leikmenn eru mikið með bolta á æfingum, bæði í tækniæfingum og í formi ýmissa leikja. Farið er markvisst í grunnþjálfun; knattrak og tækni, spyrnur, skallatækni og skot. Æfum bæði hægri og vinstri fót og reynum sífellt að bæta okkur í að halda á lofti. Mikilvægt að leggja áherslu á að æfingar sé fjölþættar og fjölbreyttar þannig að öll börn geti fundið eitthvað við sitt hæfi og að þau upplifi gleði og ánægju á æfingunum. Æfingarnar eiga að vera fyrir alla, hópnum er oft skipt upp svo allir fái verkefni við hæfi.
Einnig er lögð áhersla á félagslega þjálfun, að iðkendur eigi góð samskipti, séu kurteisir og komi vel fram hver við annan.
Áhersla er lögð á að iðkendur læri að fara eftir reglum hvort sem er innan vallar sem utan, læri að fara eftir munnlegum fyrirmælum og hlusti á flautu.
Markmiðin eru að iðkendur taki framförum í fótbolta á öllum sviðum að loknu tímabili. Ennfremur er reynt að koma til móts við þarfir hvers og eins, æfingarnar eru einstaklingsmiðaðar og markmiðið að hver og einn fái að njóta sín. Spilum mikið 1 á 1 og 2 á 2 á örmörk og reynum að spila annars 4 á 4 eða 5 á 5. Þannig eru allir leikmenn virkir, hver og einn fær boltann oft og lærir að spila vörn og sókn.
Mikið unnið í stöðvaþjálfun þar sem einn þjálfari er með hvern hóp til að tryggja að hægt sé að sinna öllum vel.
Leggjum hart að iðkendum að spila út frá marki og halda boltanum niðri. Ýmsar leiðir notaðar, t.d. sérreglur í spili. Förum með þeim í grunnreglur, hvað er vörn, sókn, kantur og allt það og byrjum að kynna fyrir þeim að spila ákveðnar stöður.
7. flokkur tekur þátt í ýmsum mótum yfir keppnistímabilið – hápunkturinn hjá strákunum þriggja daga fótboltaveisla á Akranesi er nefnist Norðurálsmótið og aðalmótið hjá stelpunum Símamótið í Kópavogi. Við leggjum áherslu á að þessi fyrstu mót séu skemmtileg upplifun, að leikgleðin sé til staðar, allir spreyti sig jafnt og í nokkrum leikstöðum.
Mótin nýtum við í að kenna krökkunum sem mest og lærum af mistökum. Úrslit leikja eru ekki veigamesta atriðið. Mikilvægt er að leggja sig alltaf fram, vera kurteis við andstæðingana og dómara og félaginu til sóma.
Leggjum áherslu að kynna fyrir foreldrum hvert þeirra hlutverk er á mótum og æfingum og hvernig þau reynast iðkendum best. Reynum að virkja foreldra eins mikið og hægt er og leggja línuna fyrir foreldrastarf árgangsins næstu ár. Haldið er úti bloggsíðu þar sem færðar eru inn allar upplýsingar um starfið í flokknum.
Tækni
Knattæfingar
Knattrak á ýmsa vegu, stefnubreytingar
Knattrak með einföldum gabbhreyfingum
Einföldustu leikbrellur
Knattsendingar - innanfótarspyrna
Knattmóttaka - innanfótar, il, læri
Wiel Coerver - grunntækni
Sköllun úr kyrrstöðu
Leikfræði
Markskot - skot úr kyrrstöðu og eftir knattrak
Leikrænir leikir
Leikæfingar, fáir í hverju liði, með og án markmanns
Helstu leikreglur
6. flokkur
Í 6. flokki er mikil áhersla lögð á að vekja knattspyrnuáhugann fyrir lífstíð, kenna háttvísi og íþróttamannslega framkomu. Æfingar eiga að vera fjölbreyttar og skemmtilegar og það á að vera gaman að koma á æfingu. Allir iðkendur fá verkefni við hæfi óháð getu og þroska. Knattspyrnulegar áherslur eru knatttækni, knattrak, einfaldar gabbhreyfingar, spyrnur og einföld leikfræði. Unnið er markvisst að því að byggja upp knatttækni og knattrak oft í formi leikja. Mikil áhersla er á knattsendingar og mest á innanfótarspyrnu en einnig kynntar ristarspyrnur ásamt móttöku. Spyrnur á mark úr kyrrstöðu eða eftir knattrak. Byrjað er að kynna nokkra þætti í leikfræði eins og að dekka andstæðing, að halda stöðum og hreyfing án bolta, hreyfingu í innköstum og hornspyrnum. Kennd er sköllun úr kyrrstöðu og eftir uppkast og útspörk og einnig halda á lofti.
Líkamleg áhersla felst í hlaupum í leikjum og knattspyrnuleiknum sjálfum. Kynntar eru fyrir iðkendum einfaldar styrktaræfingar eins og armbeygjur, kviðæfingar, froskahopp, önnur einföld hopp og stigahlaup. Byrjað að kynna þeim fyrir fótavinnuæfingum og sprettum og mikilvægi þess að teygja vel.
Farið er yfir leikreglur knattspyrnunnar sem eru þær sömu hvar sem knattspyrnan er leikinn t.d í skólum eða á sparkvöllum. Á mótum læra börnin hegðun utan vallar sem innan. Þar er viðhöfð háttvísi, lögð áhersla á virðingu og síðast en ekki síst gleði. Stúlkurnar fara á Símamótið og á Pæjumótið á Siglufirði og strákarnir til Vestmannaeyja og á Laugarvatn.
Tækni
Knattæfingar
Knattrak með einföldum gabbhreyfingum, knattrak þar sem bolta er haldið
Knattsendingar - innanfótarspyrna, bein og innanverð ristarspyrna
Sköllun - úr kyrrstöðu og eftir uppstökk, halda bolta á lofti
Knattmóttaka + stýring með innanverðum fæti
Wiel Coerver - grunntækni
Innkast
Leikfræði
Markskot; úr kyrrstöðu, eftir knattrak, skot á ferð og eftir fyrirgjafir
Skallatennis - fótboltatennis
Leikið 1:1 með ýmsum afbrigðum
Leikæfingar þar sem fáir eru í liði
Grunnuppstilling 7 manna liðs markvörður , vörn , miðja , sókn (læra allar stöður)
Að dekka mann og völdun
Innköst og hornspyrnur
Líkamlegir þættir
Hollt og gott mataræði ásamt góðri framkomu alltaf allsstaðar , góður svefn
Grunnþekking á styrktaræfingum svo sem armbeygjum , kviðaræfingum og fótaæfingum
Teygjur og slökun eftir æfingar og leiki
Andlegi þátturinn
Jákvæðni og gagnkvæm virðing
Vilji og áræðni
Gleði
5. flokkur
Í 5. flokki er farið vel í grunntækni og oft á tíðum er hún kynnt fyrir leikmönnum enda eru enn leikmenn að byrja í knattspyrnu á þessum aldri. Unnið með sendingar, þá helst stuttar sendingar og móttöku á bolta. Tækniæfingar kenndar og reynt að auka notkun ,,verri“ fótar í bæði sendingum og í leikjum. Helstu gabbhreyfingar kynntar. Þá helst skæri, snúningar og þykjast skjóta. Farið yfir skallatækni. Kennt að skalla með enni og að hafa augun opin. Flugskalli er lítið kenndur nema þá aðeins kynntur með dýnum innanhúss.
Farið er yfir leikfræði. Þá helst að halda stöðum og koma í veg fyrir að allir séu að elta boltann-halda breidd. Imprað á mikilvægi þess að hreyfa sig bæði með og án bolta. Lagt er upp út því að hafa æfingar þar sem að allir fá að njóta sín og eru mikið í boltanum. Spilað er þá á minni völlum með færri leikmönnum inná í einu.
Virðing er eitt af mikilvægum þáttum. Virðing fyrir félaginu, liðsfélögum, þjálfara, dómara og mótherjanum. Allir eru félagar og eiga að vera stoltir af sínu félagi.
Leikmannaviðtöl eru tekin til að athuga bæði líðan leikmannsins og að hjálpa honum til að ná markmiðum sínum. Leikmenn fara í ákveðnar æfingar þar sem athugað er staða þeirra tæknilega. (Halda á lofti, rekja bolta, sendingar, móttaka og skot)
Megináherslur:
· Allir fái verkefni við hæfi.
· Grunntækni viðhaldið og kynnt
· Þróun grunntækni
· Sendingar
· Móttaka
· Gabbhreyfingar
· Leikstöður kynntar
· Leikfræði lauslega – að halda breidd
Tækni
Knattsendingar með jörðu og á lofti, innanfótar, innanverð-utanverð og bein ristarspyrnur
Knattrak: hratt knattrak, knattrak þar sem knetti er haldið, knattrak m. gabbhreyfingu
Knattmóttaka jarðarbolta + stýring
Knattmóttaka hárra bolta + stýring
Knattrak og leikbrellur
Sköllun, beint áfram, skalli eftir bolvindu (með snúningi)
Wiel Coerver – gabbhreyfingar, mýkt og hraðar fótahreyfingar
Quick-feet æfingar
Samleikur af ýmsum toga sem lýkur með markskoti.
Leikfræði
Markskot: eftir knattrak og samspil, skot á ferð. Skallað að marki e. fyrirgjöf
Leikið 1:1 með ýmsum afbrigðum.
Skallatennis – fótboltatennis
Leikæfingar þar sem fáir eru í liði (farið yfir undirstöðuatriði liðssamvinnu).
Leikfræði liðs; innkast, hornspyrna, aukaspyrna, vítaspyrna
Hlaup leikmanna í stöðum (varnarmaður, miðjumaður, framherji)
Líkamlegar áherslur
Quick feet
Styrktaræfingar m/eigin þyngd, tengdar bolta.
Hreyfiteygjur
Teygjur eftir æfingar
4. flokkur
Í 4. flokki er lögð áhersla á að viðhalda tækni leikmanna með ýmsum tækniæfingum.
Leikfræði fær stærri sess og lögð er áhersla á að kenna leikkerfið 4-3-3. Unnið er með leikfræði sóknar- og varnarleiks, ásamt því að leggja áherslu á að halda breidd og að ekki slitni milli sóknar og varnar.
Lögð er meiri áhersla á líkamlega þáttinn, svo sem þolþjálfun í formi útihlaupa þar sem tekið er Coopertest við upphaf og lok þolþjálfunartímabils. Sjúkraþjálfari heimsækir hópinn og ræðir um mikilvægi liðleikaþjálfunar, sýnir teygjur og gerir grein fyrir meiðslahættu og aðgerðum til að koma í veg fyrir meiðsli. Styrktarþjálfun fer þannig fram að aðallega er unnið með eigin þyngd en einnig fá leikmenn kynningu á stöðvaþjálfun með litlar þyngdir.
Næringarfræðingur fræðir leikmenn um næringu og mataræði, sálfræðingur ræðir um markmið, liðsheild og jákvæðni. Tekin eru leikmannaviðtöl og leikmenn metnir.
Áhersla á keppni verður meiri, getuskiptir hópar á hluta æfinga og farið í keppnisferð til útlanda. Efnilegustu leikmenn á eldra ári fara í Afreksskólann.
Tækni
Spyrnu og móttaka bolta æfðar undir pressu, í leikformi með ákveðin markmið
Knattrak og leikbrellur æfðar undir pressu, í leikæfingum með ákveðin markmið
Sköllun á ýmsan hátt - skallaleikir
Hoppspyrna
Fyrirgjafir - með innanverðri rist með og án snúnings, með ristinni framanverðri
Wiel Coerver tækniæfingar
Lokið skal yfirferð og grunnkennslu og allra tækniatriða knattspyrnu
Leikfræði
Markskot af ýmsum toga:
· eftir að hafa leikið á mótherja (1:1)
· eftir móttöku á hlaupum (hraðri ferð) og þröngu svæði
· eftir eina eða tvær snertingar
· viðstöðulaust skot með jörðu og á lofti
Leikfræði hóps, sóknarleikur:
· hreyfing án knattar, aðstoð við knatthafa
· undirstöðuatriði liðssamvinnu, í sókn; dýpt, fríhlaup, vídd, hreyfing, opna svæði, aðstoð
· ýmis konar samsetning liðs (jafnmargir í liði, færri, fleiri)
Samleikur:
· veggsending
· knattvíxlun
· framhjáhlaup
· knattrak og sending (þar sem ásetningur er dulinn)
Leikfræði hóp, varnarleikur:
· gæsla maður á mann (1:1), þar sem leikmaður hefur bolta
· gæsla maður á mann (1:1), þar sem leikmaður hefur ekki bolta
· samvinna leikmanna, yfirtaka á leikmanni frá félaga
· rangstaða
· ýmis konar samsetning liðs, (jafnmargir í liði, færri, fleiri)
Undirstöðuatriði liðssamvinnu, vörn, dýpt, gæsla, loka svæði, samþjöppun, völdun
Návígi:
· að komast inn í sendingu mótherja
· návíg (tækling), rennitækling
· pressa þar sem lögð er áhersla á rétta varnarstöðu
Leikfræði liðs, föst leikatriði:
· vítaspyrna
· rétt innkast og hreyfing leikmanna án bolta
· hornspyrna (í sóknar- og varnarleik)
· aukaspyrnur (beinar og óbeinar)
Markverðir:
· grípa knött yfir höfði í kyrrstöðu og með uppstökki
· knöttur kýldur með annarri og báðum höndum (hnúum)
· knöttur gripinn eftir að hafa kastað sér
· knetti spyrnt frá marki, hoppspyrna
· knetti kastað frá marki
· leikfimi, fimi og snerpa
Meginhlutverk markmanna:
· verja skot
· kljást við fyrirgjafir - úthlaup
· aðstoða, stjórna vörninni
· koma knetti í leik
Líkamlegir þættir
Þol – útihlaup, Coopertest og intervalþjálfun
Styrkur – ýmsar æfingar með eigin þyngd og létt stöðvaþjálfun
Hraði og snerpa- sprettir, fótavinna með og án bolta, hopp og hlaupastílsþjálfun
Liðleiki-klassískar teygjur og hreyfiteygjur
3. flokkur
Í 3. flokki er lögð áhersla á að viðhalda tækni leikmanna með ýmsum tækniæfingum. Leikfræði fær stærri sess auk afreks- og einstaklingsmiðaðar þjálfunar. Auk þess að veita leikmönnum innsýn í næringarfræði, markmiðsetningu og leiðir til að hjálpa leikmönnum að verða betri í fótbolta.
Markmið:
· Að bjóða iðkendum upp á góða kennslu sem hentar hverjum og einum þ.a. að þeir taki framförum.
· Að iðkendum finnist gaman að æfa í FH og þeir styrkist sem einstaklingar, líkamlega og félagslega.
· Að byggja upp góða knattspyrnumenn sem geta náð langt í sinni íþrótt.
· Leggja áherslu á að spila góðan fótbolta.
· Að iðkendur beri virðingu fyrir félagi sínu, þjálfurum, samherjum, andstæðingum og dómurum og komi vel fram fyrir hönd félagsins.
· Að iðkendur séu stoltir af því að vera í FH og leggja sitt af mörkum til félagsins.
Efnilegustu leikmenn flokksins fara í Afreksskólann. Á þessum aldri er meiri sérhæfing í æfingum út frá stöðum og hlutverki á leikvelli. Getuskipt er á æfingum og í vali á liðum. Leitað er allra leiða til að leikmenn fái sem mesta örvun og hvatningu. Til dæmis væri æskilegt að FH ætti góð tengsl við félög á Norðurlöndum eða í Evrópu sem hægt væri að fara með efnilega leikmenn og þjálfara til æfinga. Markmiðið er fyrst og fremst að búa til góða knattspyrnumenn frekar en að búa til lið sem vinnur titla þó svo að það sé ennþá skemmtilegra þegar þetta tvennt fer saman. Stefnt skal að æfingaferð út fyrir höfuðborgarsvæðið á vordögum og keppnisferð til útlanda a.m.k. annað hvert ár.
Tækni
Haldið áfram að vinna með tækni og bætt ofan á þann grunn sem leikmenn eiga að vera komnir með.
Knattrak og gabbhreyfingar.
Knattrak. Leggja jafna áherslu á báða fætur. Snúningar með boltann. Halda áfram að vinna með gabbhreyfingar, taka menn á.
Sköllun:
Halda áfram að vinna með skallatækni. Úr kyrrstöðu og eftir uppstökk.
· sóknarskalli (skalli á mark)
· varnarskalli (skalla bolta burt af hættusvæði)
· vinna skallaeinvígi (tækni og staðsetning)
Sendingar og skot:
· innanfótarsendingar
· ristarspyrnur, innanverð, bein, utanverð. Leggja jafna áherslu á báða fætur
· fyrirgjafir
· markskot af ýmsum toga;
· eftir að hafa leikið á mótherja (1:1)
· eftir móttöku á hlaupum (hraðri ferð) og á þröngu svæði
· eftir eina og tvær snertingar.
· viðstöðulaust eftir jörðu og á lofti, kontra
Móttaka:
· geta tekið á móti bolta og tekið hann með sér fljótt og vel. Leggja áherslu á fyrstu snertinguna; að geta stýrt boltanum á þá átt sem maður vill. Taka á móti með öðrum fæti – senda með hinum.
· móttaka innanfótar
· læri
· brjóst
· rist
Leikfræði
Leikfræði einstaklings, varnarleikur:
· að komast inn í sendingu mótherja
· tækling, rennitækling
· pressa (rétt varnarstaða - ná knetti af mótherja)
· gæsla
· hjálparvörn
· vinna skallaeinvígi. Rétt staða.
· varnarskalli, skalla bolta úr hættusvæði
Markverðir:
· grípa knött yfir höfði í kyrrstöðu og með uppstökki
· knöttur kýldur með annarri og báðum höndum (hnúnum)
· knöttur gripinn eftir að hafa kastað sér
· knetti spyrnt frá marki, hoppspyrna
· knetti kastað frá marki
· leikfimi, fimi og snerpa
Meginhlutverk markmanna:
· verja skot
· kljást við fyrirgjafir - úthlaup
· aðstoða, stjórna vörninni
· koma knetti í leik
Leikfræði hóps, sóknarleikur:
· samleikur leikmanna, ýmis afbrigði (veggsending, knattvíxlun, framhjáhlaup)
· hreyfing án knattar, aðstoð við knatthafa
· undirstöðuatriði liðssamvinnu, sókn, dýpt, fríhlaup, vídd, hreyfing, opna svæði, aðstoð
· skapa marktækifæri, markskot
· halda bolta innan liðs
Leikfræði hóps, varnarleikur:
· gæsla maður á mann (1:1), þar sem leikmaður hefur bolta
· gæsla maður á mann (1:1), þar sem leikmaður hefur ekki bolta
· svæðisvörn
· undirstöðuatriði liðssamvinnu, vörn; dýpt, gæsla, lokun svæða, samþjöppun, völdun
· samvinna leikmanna, yfirtaka á leikmanni frá félaga
· rangstaða
Leikfræði liðs, sóknarleikur:
· sóknarleikur við eðlilegar aðstæður, róleg uppbygging, hröð uppbygging, hraðaupphlaup
· föst leikatriði, vítaspyrna, horn, innkast (hreyfing leikmanna), beinar og óbeinar aukaspyrnur
· byggja upp spil út frá vörn
· skipta bolta milli kanta
Leikfræði liðs, varnarleikur:
· varnarmöguleikar; leikið maður á mann, svæðavörn, blönduð varnaraðferð
· vörn gegn föstum leikatriðum; vörn gegn aukaspyrnum, hornspyrnum, innköstum
· sérstakir leikmöguleikar; pressuvörn, leikið þar sem leikmenn eru færri eða fleiri í liðum
Leikkerfi:
· unnið er út frá leikkerfum sem byggist á 4 manna varnarlínu. Ýmist 4-3-3 eða 4-4-2
Líkamlegir þættir
Styrkur – Ýmsar æfingar með eigin þyngd, stöðvaþjálfun. Styrktaræfingar sem eru fyrirbyggjandi varðandi meiðsli. Kenna undirstöðuatriðin hvað varðar að lyfta lóðum í tækjasal en leggja áherslu á léttar þyngdir.
Þol – Unnið með þol. Fyrst og fremst með leikrænum æfingum en einnig með styttri lotuhlaupum (intervalþjálfun).
Hraði og snerpa- sprettir, fótavinna með og án bolta, hopp og hlaupastílsþjálfun.
Liðleiki - klassískar teygjur og hreyfiteygjur.
Næringarfræði: Næringarfræðingur ræðir við hópinn um rétta næringu íþróttafólks og leikmenn halda matardagbók í eina viku sem næringarfræðingurinn fer yfir.
Andlegir þættir
Unnið er með hluti eins og að setja sér markmið. Þjálfarar halda fundi með hópnum þar sem farið er yfir markmiðin og leiðir til þess að ná þeim. Eins halda þeir einstaklingsfundi með leikmönnum þar sem farið er yfir markmið og stöðu hvers og eins leikmanns.
Vinna markvisst að því að efla liðsanda, virðingu fyrir liðsfélögunum og félaginu.