Reglur, meginmarkmið og skilyrði fyrir niðurgreiðslum Hafnarfjarðarbæjar hjá iðkendum 6 til 16 ára  í íþrótta- og tómstundafélögum frá 1. janúar 2011

  • Markmið niðurgreiðslna er að gera börnum með lögheimili í Hafnarfirði kleift að taka þátt í íþrótta- og tómstundastarfi óháð efnahag fjölskyldna og að efla íþrótta- og annað forvarnastarf í Hafnarfirði. Einnig á niðurgreiðslan að vinna gegn óæskilegu brottfalli í eldri aldurshópum iðkenda. 
  • Meginskilyrði fyrir endurgreiðslu til félaga verður að starfsemin sé á forsendum uppeldislegra gilda og forvarna í víðustum skilningi. Starfsemin fari fram undir leiðsögn hæfra starfsmanna, þannig að fagmennska sé viðhöfð við kennslu og þjálfun barna og unglinga. 
  • Félag/deild fær greiddar fyrir hvern iðkanda á mánuði til lækkunar á þátttökugjaldi eins og hér segir , kr. 1.700  fyrir 6 ára til 12 ára og kr. 2.550 fyrir 13 ára til 16 ára og miðað skal við fæðingarár.  Ber félagi/deild að lækka þátttökugjald iðkandans sem þessu nemur við greiðslu á æfingagjaldi. 
  • Niðurgreiðslur ná einungis til félaga með skipulagða kennslu/þjálfun í að minnsta kosti 10 vikur á önn og að lágmarki eina æfingu í viku.
  • Ef þátttökugjald er hærra en sem nemur niðurgreiðslu Hafnarfjarðarbæjar innheimtir félag/deild mismuninn hjá forráðamönnum.
  • Niðurgreiðsla bæjarins skal ekki nema hærri fjárhæð en ákvörðuðu æfingagjaldi.
  • Niðurgreiðslur ná eingöngu til tveggja íþrótta- og/eða tómstundagreina í senn.
  • Niðurgreitt verður aðeins hjá félögum utan Hafnarfjarðar sem bjóða upp á starfsemi sem ekki er í boði hjá félögum í Hafnarfirði.
  • Árinu er skipt upp í þrjár annir, janúar – maí, júní – ágúst og september – desember. Almennt er gert ráð fyrir að ástundun  barns/unglings sé 11 mánuðir á ári.
  • Framkvæmd niðurgreiðslunnar er þannig að forráðamenn verða að fara inn á vef Hafnarfjarðarbæjar í íbúagáttina og staðfesta þátttöku iðkandans hjá viðkomandi félagi/deild rafrænt. Íbúagáttin er opin ákveðinn tíma á hverju starfstímabili fyrir janúar – maí er opnunartíminn 1. – 15. febrúar, júní – ágúst er opnunartíminn 1. – 15. júlí og september – desember er opnunartíminn 1. – 15. október. Eingöngu er hægt að staðfesta þátttökuna á opnunartíma íbúagáttarinnar. Þegar forráðamaður staðfestir þátttöku barns fær viðkomandi félag/deild sendan tölvupóst. Þegar íbúagáttinni hefur verið lokað á hverju tímabili tekur Hafnarfjarðarbær saman lista með fjölda þátttökustaðfestinga forráðamanna og sendir til félaga/deilda og greiðir félögum/deildum niðurgreiðslustyrki samkvæmt nánara samkomulagi við viðkomandi íþróttafélag /deild útfrá heildarlista hvers tímabils. Í kvittun til þátttakenda um námskeiðskostnað skal félag geta um hlut bæjarfélagsins í greiðslu vegna námskeiðsgjaldsins.
  • Þjónustuverið s. 5855500 veitir frekari upplýsingar og aðstoð varðandi skráningar í íbúagáttina.

Samþykkt í Íþrótta- og tómstundanefnd Hafnarfjarðar 04.02.2011

Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?