Skráning og greiðsla æfingagjalda

Knattspyrnudeild FH hefur tekið í notkun skráningar- og greiðslukerfið Nora. Æfingagjöld verða innheimt í gegnum kerfið* tvisvar á ári. Einnig heldur það utan um póstlista, símanúmer forráðamanna, mætingar og ef þörf krefur heilsufarsupplýsingar.

Ef iðkandi vill stunda knattspyrnuæfingar hjá félaginu verður hann að vera skráður í kerfið að öðru leiti er hægt að meina honum aðgang að æfingum og keppni.

Skráning verður að fara fram fyrir þann 8. nóvember.

Upplýsingar um æfingargjöld 2011-2012 má finna hér

Tekið skal fram að leikmannasamningar hafa verið felldir úr gildi og nýja Nora kerfið tekur við.

*Athugið að í vefskráningunni er einungis hægt að ganga frá greiðslu með kreditkorti en ef óskað er eftir því að staðgreiða/millifæra inn á reikning skal senda skráningu á skraning@fh.is. Þá skráir starfsmaður viðkomandi iðkanda inn í kerfið þegar gengið hefur verið frá greiðslu.

Íbúagátt Hafnarfjarðar
Sú nýbreytni hefur verið tekin upp að foreldrar greiða nú æfingargjald að fullu.
Þeir sem skrá barn sitt í Íbúagátt Hafnarfjarðar fá hluta æfingargjalds endurgreitt frá félaginu tvisvar á ári sem nemur:

2011
6-12 ára (1999-2005) =  1.700 á mánuði = 20.400 fyrir árið
13-16 ára (1995-1998) =  2.550 á mánuði = 30.600 fyrir árið

2012
6-12 ára (2000-2006) =  1.700 á mánuði = 20.400 fyrir árið
13-16 ára (1996-1999) =  2.550 á mánuði = 30.600 fyrir árið

Börn yngri en 6 ára greiða fullt gjald.

Samkvæmt nýju skráningarkerfi þá munu þeir sem borga með kreditkorti fá endurgreitt á kortin sín þegar knattspyrnudeild FH hefur fengið greitt frá Hafnarfjarðarbæ. Þeir sem borga með millifærslu eða greiðsluseðli fá endurgreiðsluna lagða inn á reikninginn sinn. Endurgreiðsla fer fram tvisvar yfir árið.

Íbúagátt Hafnarfjarðar er opin þrisvar yfir árið: 1.-15. október,  1.-15. febrúar, 1.-15. júlí.
Mælt er með að prenta út kvittun til staðfestingar á skráningu í Íbúagátt.

Skráning í Íbúagátt hér

Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?