2.2.2012

Getraunakvöld FH 10. febrúar

Getraunastarf FH hefur fengið nýtt tölvupóstfang 1x2@fh.is  Föstudagskvöldið 10. febrúar verður mikið um að vera hjá okkur í krikanum þegar lið þjálfara mætir liði leikmanna í spurningarkeppni aldarinnar.

14.1.2012

Getraunastarf FH komið aftur á laggirnar!

Það ætti ekki að hafa farið fram hjá neinum að getraunastarf FH hefur verið endurvakið í Kaplakrika.  Alla laugardaga á milli klukkan 11 og 14 er opið í kaplakaffi (gamla sjónarhóli) og eru allir hvattir til að mæta, taka þátt og hitta félagana.

4.1.2012

Farsælt samstarf framlengt

Actavis áfram aðalstuðningsaðili knattspyrnudeildar FH
31.12.2011

Árið gert upp - Handbolti og fótbolti

FH.is fékk þrjá valinkunna menn til að renna yfir bæði  handbolta og fótbolta árið. Ýtið á meira til að lesa.
30.12.2011

Getraunastarf Fimleikafélags Hafnarfjarðar

Nú er komið að því. Við biðlum til FHinga nær og fjær um að hjálpa til með að gera getraunastarf FH það stærsta í Hafnarfirði, og þó víðar væri leitað. Alla laugardaga milli kl. 11 og 13.
24.12.2011

Gleðileg jól

Fimleikafélag Hafnarfjarðar óskar stuðningsmönnum og velunnurum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

Sjáumst hress á nýju ári í Krikanum.

23.12.2011

Íþrótta- og viðurkenningarhátið Hafnarfjarðar 29.des við Strandgötu

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar og íþrótta- og tómstundanefnd afhendir viðurkenningar til hafnfirskra íþróttamanna, Íslandsmeistara, hópa Bikarmeistara, Norðurlandameistara og sérstakra afreka, ásamt vali á “Íþróttakarl og Íþróttakona Hafnarfjarðar”  og “Íþróttaliði ársins”  árinu 2011.
Afhendingin fer fram í íþróttahúsinu við Strandgötu mánudaginn 29. desember. 2011, kl. 18:00.

Við FH-ingar eigum fjölmarga íslands og bikarmeistara og eiga þeir allir að mæta.

Aðalstjórn
8.12.2011

Hið glæsilega jólahlaðborð FH - Örfáir miðar eftir

Þann 10. des kl 19:00 verður jólahlaðborð FH haldið í glæsilega veislusalnum okkar Sjónarhóli. Veislan heppnaðist svo vel í fyrra að ákveðið var að endurtaka veisluna en gera hana töluvert flottari. Dagskráin og matseðilinn er hreint út sagt glæsilegur, yfir 20 rétta hlaðborði frá Kjötcompaníinu og fjölmörg tónlistar- og skemmtiatriði.
6.12.2011

Getraunastarf Fimleikafélags Hafnarfjarðar

Nú er komið að því. Við biðlum til FHinga nær og fjær um að hjálpa til með að gera getraunastarf FH það stærsta í Hafnarfirði, og þó víðar væri leitað. Alla laugardaga milli kl. 11 og 13.
9.11.2011

Bakhjarl FH - tilboð

Bakhjörlum FH bjóðast í hverjum mánuði nýtt tilboð á Serrano. Ásamt fjölda annarra fríðinda.

Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?